Heilbrigðismál - 01.03.1997, Síða 9

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Síða 9
Læknislist á fyrstu öld- um Islands byggðar miðaðist fyrst og fremst við að gera að sárum ef til átaka kæmi. Eins og iðn eða íþrótt Frægastur íslenskra lækna á fyrri öldum var Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri við Arnarfjörð, d. 1213. Læknislistin var honum ættgeng, eins og mörg dæmi verða til fundin fyrrum, og auk þess sem hann hafði heima numið framaðist hann efalaust í læknislist á ferðum sínum erlendis en var að upplagi mjög hneigður fyrir slíkt. Sagan segir að Atli Höskuldsson, langafi Hrafns, væri í liði Magn- úsar konungs góða í or- ustunni á Hlýrskógaheiði 1043 og væri hann einn þeirra manna er kon- ungur kvaddi til þess að binda sár manna eftir or- ustuna. Hafði hann ekki fengist við lækningar áð- ur, en síðan gerist hann læknir fullkomlega. Son- arsonur hans, Sveinbjörn, faðir Hrafns, var talinn góður læknir. Er sýnilegt að hér gengur læknislistin svo sem hver önnur iðn eða íþrótt frá föður til sonar, en um kunnáttu og hæfni slíkra lækna hlaut þó mjög að fara eftir því hversu þeim var lagin al- úð til starfans og áhugi um að halda kunnáttu sinni við og auka hana. Hér má líka sjá vott þess að læknislist þessara tíma, fyrst og fremst sáralækningarnar, var mjög af þeirri nauðsyn sprottin að til væru menn er kynni að gera að sárum ef til hernaðar kæmi. Vígvellirnir urðu höfuðskóli herlæknanna ytra, feldtskeranna er svo voru nefndir, og síst var hætta á því að þryti slík- ar menntastofnanir né verkefni sem þeim voru tengd. Nákomnir herlæknun- um voru bartskerarnir, er reyndar voru fyrst og fremst hárskerar og rak- arar og iðn en stunduðu auk þess blóðtökur og aðrar handlækningar og svo sáralækningar á styrjaldartímum. Bart- skerarnir erlendu mynd- uðu sérstaka iðnaðarstétt með föstum lögum og skorðuðum venjum, sem þá var títt, en munu fæstir verið hafa miklir vísindamenn. Hér á landi getur bartskera ekki framan af öldum og aldrei var hér um skipu- lega bartskeraiðn að ræða í líkingu við það sem tíðkaðist ytra. Allt um það voru jafnan ein- hverjir menn í landinu sern fengust við sára- lækningar, hliðstæðir bartskerunum utanlands. Þorkell Jóhannesson Imskólarektor (f. 18%, d. 1960). Saga fslendinga, 1950. Lífið Meðan lifað er, skal erfiða. Sæmundur Magnússon Hólm listmálari og prestur (f 1749, d. 1921). Þegar maður er vanur því að lifa á engu er hægt að lifa á litlu. Gunnar Gunnarsson rithöfundur (f. 1889, d. 1975). Sagt Fjötur um fót Það er árátta stjórn- málamanna og raunar ýmissa embættismanna að tala niður til aldraðra, líkt og fleiri hópa sem þjóðfélagið neyðist til að taka tillit til en vill helst vita sem minnst af, því þeir eru fjötur um hag- vaxtarfótinn. Árni Björnsson læknir. Morgnnblaðið, 6. niaí 1997. Kraftaverkalausn Fólk sem ætlar sér að grennast verður einfald- lega frá fyrsta degi að hugsa um að borða skyn- samlega, óháð því hvað megrunin muni taka langan tíma. Það eina sem dugir er að læra inn á rétt mataræði og stunda reglulega þjálfun. Þessi kraftaverkalausn er hins vegar erfið og þarfnast mikils skipulags og stendur í raun allt líf- ið. Ólafur Sæmundsson næringar- fræðingur. Dagur-Tíminn, 9. janúar 1997. Þrennt Hugsun, hreyfing og hollt mataræði er undirstaða vel- líðunar. Gaui litli. Dagur- Timinn, 21. júní 1997. Eðlileg viðbrögð Sorgin er eðlileg við- brögð við áföllum og hún er leið okkar til að ná aftur tökum á lífinu. Sorginni lýkur ekki svo lengi sem við lifum, en við getum lært að afbera hana og hætt að láta hana birgja okkur sýn fram á veginn. Páll Pétursson félagsmálaráðherra. Ný dögun, 1. tbl. 1997. Að axla ábyrgðina Aðstæður hverrar manneskju eru einstæðar og þess vegna verður hver og einn að finna sína leið, bregðast á sinn hátt við þeim verkefnum sem lífið leggur honum á herðar. Höfuðatriðið er að hann gangist við frelsi sínu og axli ábyrgðina sem því fylgir. Vilhjálmur Árnason prófessor. Lesbók Morgunblaðsins, 15. febrúar 1997. Mótun uppeldis Uppvaxandi kynslóð á rétt til uppeldismótunar sem stuðlað getur að því að einstaklingurinn öðlist sjálfsvirðingu, fái tæki- færi til að fást við þrosk- andi viðfangsefni, verði siðferðilega ábyrgur og fær um að sýna öðrum virðingu, kærleika og til- litssemi. Sigurður Pálsson prestur. Forvarnamál 2+2, mars 1997. HEILBRIGDISMÁL 1/1997 9

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.