Heilbrigðismál - 01.03.1997, Qupperneq 16

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Qupperneq 16
sem við daglega gjöf leiddi ekki til nýrnaskemmda. I tilraunum með rottur og mýs hefur mátt fá fram illkynja frumu- breytingar í nýrum og að nokkru leyti í lifur, ef dýrunum var gefið okratoxín A um munn í tvö ár." í til- raunum með mýs voru notaðir svo stórir skammtar að erfitt er að meta hvort niðurstöðutölurnar væru marktækar. í tilraunum með rottur var dagskammtur hins vegar ekki meiri en 70 míkróg/kg/dag. Er sá skammtur ekki nema tæplega tí- faldur á við þann, sem áður er að vikið og olli nýrnaskemmdum í svínum. I skammtímatilraunum dregur okratoxín A úr frumuskiptingu og virkni lymfuhvítfrumna (ekki síst náttúrlegra drápsfrumna) í skömmt- um, sem eru allnokkru meiri en þarf til þess að framkalla nýrna- skemmdir í tilraunadýrum. Trúlega getur þetta haft áhrif á sýkingar- varnir líkamans og einnig aukið líkur á meinvörpum frá illkynja æxlum. I dýratilraunum hefur komið fram að okratoxín A hefur skaðleg áhrif á fóstur. Á grundvelli þessara dýratilrauna er þó erfitt að meta líkur á því hvort okratoxín A kunni að valda fósturskemmdum í mönn- um. Ófullnægjandi upplýsingar eru fyrir hendi um það, hve mikið okratoxín A kunni að vera í fæðu manna og fóðri húsdýra á Norður- löndum. Nauðsynlegt verður að teljast að afla upplýsinga um magn okratoxíns A í fæðutegundum eða fóðri og bera saman við magn þess í blóði manna. Erlendis er sums staðar fylgst með magni okratoxíns A í nýrum svína og verður það að sjálfsögðu einnig að teljast nauð- synlegt hér á landi. í svipinn er tal- ið, að daglegt hámarksneyslugildi okratoxíns A skuli ekki vera um- fram 5 ng/kg x líkamsþyngd. Þetta litla magn bendir því ótvírætt til þess, að okratoxín A sé eða geti verið háeitrað efni. í Rannsóknastofu í lyfjafræði hef- ur lengi verið áhugi á því að skima fyrir okratoxíni A og aflatoxínum (þekktir krabbameinsvaldar í lifur í Áfríku og víðar) í matvælum á ís- lenskum markaði, einkum korn- vöru. Höfundur og Kristín Ólafs- dóttir, deildarstjóri eiturefnadeild- ar, hófu því samstarf við Franklín Georgsson, forstöðumann rann- sóknastofu Hollustuverndar ríkis- ins, og Margréti Geirsdóttur, sam- starfsmann hans. Starfsmenn Hollustuverndar völdu sýni til rannsóknar og greindu fjölda myglusveppa í sýn- unum. Starfsmenn Rannsóknatofu í lyfjafræði skimuðu því næst fyrir aflatoxínum og okratoxíni A í sýn- unum með svokallaðri flúrmælingu eftir að úrhluti (extrakti) úr sýnun- um hafði verið rennt gegnum þar til gerðar súlur með einstofna mót- efnum gegn aflatoxínum eða okra- toxíni A. Helstu niðurstöður þess- ara rannsókna eru sýndar í með- fylgjandi töflu. Þar má sjá að fjöldi myglusveppa í sýnum var mjög breytilegur (var mestur í valhnetum). Nær ekkert aflatoxín var að finna í fyrstu ellefu sýnunum, sem rannsökuð voru í ágúst 1996, og var þeim mælingum þá hætt. Okratoxín A fannst hins vegar í alls ellefu sýnum (þ.e.a.s í tæplega þriðjungi allra sýna) í magni sem marktækt má telja. At- hyglisvert var að ekki var neitt ör- uggt samband milli fjölda myglu- sveppa í sýnum og magns okra- toxíns A. Með tilliti til fyrrgreindra niður- staðna var ákveðið að rannsaka út- breiðslu okratoxíns A í blóði manna og tengja þær rannsóknir við nýrnabilun í fólki. Því var leitað samtarfs við Guðmund Vikar Ein- arsson, dósents í þvagfærasjúk- dómum. Rannsóknir þessar verða hluti af stærra samnorrænu rann- sóknaverkefni og munu að öllu for- fallalausu hefjast í haust. Er ætlun- in að birta niðurstöðutölur frá öll- um Norðurlöndunum sameigin- lega. Þorkell Jóhannesson læknir, dr. med., er prófessor í lyfjafræði við læknadeild Háskóla íslands og for- stöðumaður Rannsóknastofu í lyfja- fræði. Landbúnaðarráðuneytið kostaði efniskaup vegna þessara rannsókna. míkróg = 1/1000000 úr grammi; ng = 1/1000000000 úr grammi. • Aðalfundur Krabbameinsfélags Stór erlendur rannsókna- styrkur Á aðalfundi Krabbameinsfélags íslands, sem haldinn var í maí, kom fram að félagið hefur nýlega hlotið stóran bandarískan styrk til rann- sókna á tengslum áhættuþátta brjóstakrabbameins við stökkbreyt- ingar og brjóstakrabbameinsgen. Um er að ræða samvinnuverkefni Tölvinnustofu, Krabbameinsskrár og Rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði. Styrkurinn nemur 36 milljónum króna. Leitarstarfið er enn sem fyrr veigamesti þátturinn í rekstri Krabbameinsfélags íslands. Nú er í athugun að breyta bilinu milli skoðana þannig að fram yfir þrí- tugt verða frumustrok frá leghálsi tekin á tveggja ára fresti, á þriggja ára fresti fram á miðjan sextugsald- ur og síðan á fjögurra ára fresti eftir það, að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. í haust verða miklar breytingar á skipulagi tóbaksvamafræðslunnar. í stað hefðbundinna heimsókna verð- ur skólunum boðið nýtt námsefni Heilsudrykkur Þegar boðið er til samkvæma í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík er ætíð á boðstólum sérstakur óáfengur heilsudrykkur, sem hefur líkað mjög vel. Meðfylgjandi uppskrift er miðuð við tíu manns: • 1,5 lítrar hreinn appelsínusafi. • 1 lítri hreinn ananassafi. • 1-2 appelsínur. • 1 sítróna. • 1 fjórðungsdós af kurluðum ananas. • 1 lítri Seven Up eða Sprite. • Klaki. Gosið er sett í rétt áður en safinn er borinn fram og klakinn allra síðast. 16 HEILBRIGÐISMÁL 1/1997

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.