Heilbrigðismál - 01.03.1997, Síða 22
skaðlegt. Á meðan beðið er eftir
frekari sönnunum er mikilvægt að
verjast ágangi framleiðenda sem
vilja markaðssetja nýjar tóbaksvör-
ur. Skoðum nánar það sem þegar er
vitað um skaðleg áhrif þessa tóbaks.
Andremma er vissulega tengd
notkun munntóbaks og neftóbaks,
þó óþefurinn sé annar en úr vitum
þess sem reykir. Þetta er ekki sjúk-
dómur heldur sóðaskapur.
Áhrif á slímhúð og tennur. í tób-
akinu eru mörg efni sem hafa slæm
áhrif á slímhúð í munni og nefi. Ni-
kótín veldur æðasamdrætti sem
aftur dregur úr blóðflæði. Með tím-
anum rýrnar slímhúðin og bólgnar. í
nefi getur þetta gengið svo langt að
gat myndast á miðsnesið (vegginn
milli nasanna). í munni nær bólgan
dýpra og dýpra og skemmir smám
saman bönd sem tengja tannrótina
við kjálkabeinið. Þessi bönd eru
hvorutveggja í senn, fjaður- og
festibúnaður tannarinnar. Þegar
þau slitna losnar tönnin og bit getur
orðið sársukafullt þar sem dempar-
ar tannarinnar starfa ekki lengur
sem skyldi. Gómur rýrnar smám
saman vegna tóbaksnotkunar og
tannhálsinn verður þá berskjaldað-
ur. Það ásamt fleiri tóbaksáhrifum
ýtir undir tannskemmdir. Tóbak upp-
litar tennur og getur líka valdið lit-
arbreytingum í slímhúð. Eftir lang-
vinna notkun geta komið fram
margs konar breytingar í slímhúð
bæði í nefi og munni, þar á meðal
forstig krabbameina og krabbamein.
Krabbamein. Árið 1761 benti
breskur læknir á samband milli
neftóbaksnotkunar og krabbameins
í nefi. Fyrstu vísbendingar um hlið-
stætt samband milli munntóbaks-
notkunar og krabbameins í munni
komu fram 1837. í reyklausu tóbaki
eru mörg efni sem eru þekktir
krabbameinsvaldar. Nú liggja fyrir
niðurstöður margra rannsókna,
bæði austan hafs og vestan, sem
sýna óyggjandi samband milli
notkunar á reyklausu tóbaki og
tíðni krabbameins í vefjum næst
ítroðslustaðnum. Þar má nefna
krabbamein í munnholi. kjálkum
og nefi. Þessi krabbamein eru sem
betur fer sjaldgæf, en þeir sem nota
reyklaust tóbak eru í mun meiri
hættu á að fá þau en þeir sem ekki
nota tóbak. Þau eru almennt mjög
illviðráðanleg og krefjast oft stórra
afskræmandi aðgerða á ásjónu
Innflutningur á reyklausu tóbaki
Upplýsingar frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Skipting milli tegunda árin 1992 og 1993 er ekki alveg ljós.
Fínkorna neftóbak Munntóbak í grisjum Samtals Breyting milli
k8 k8 k8 ára
1987 ? 7 45
1988 ? ? 7
1989 ? 7 7
1990 ? 7 581
1991 ? 7 902 + 55%
1992 936 219 1155 + 28%
1993 1227 248 1475 + 28%
1994 1566 403 1969 + 33%
1995 1392 259 1651 - 16%
1996 2408 474 2882 + 75%
1997 191 34 225 - 78%
Frá 1. febrúar 1997 er bannaður innflutningur á fínkornóttu
neftóbaki og öðru munntóbaki en skrotóbaki (innflutningur þess
er nú um 25 kg á ári).
Auk innflutta tóbaksins eru seld rúm 10 tonn á ári af hefðbundnu
íslensku neftóbaki.
Nikótín í einum skammti
Fínkornótt nef- og
munntóbak (2,5 g) 32-61 mg
Hefðbundið neftóbak
(„gamli ruddinn", 2,5 g) 25 mg
Ein sígaretta (meðaltal) 1 mg
fólks. Einnig virðast vera tengsl
milli notkunar á reyklausu tóbaki
og krabbameinsmyndunar í sum-
um fjarlægari líffærum svo sem
vélinda, maga, brisi o.fl.
Hjartasjúkdómar. Reyklaust tób-
ak veldur hækkun á blóðþrýstingi.
Þetta gæti skýrst af áhrifum nikó-
tíns (æðasamdráttur, hjartsláttar-
hraði) og hugsanlega annarra
óþekktra orsaka. Líklegt verður að
teljast að langvinn notkun reyk-
lauss tóbaks geti valdið sjúkdóm-
um í líffærum sem verða fyrir
áhrifum þrýstingsaukningarinnar,
þ.e. hjarta og æðum. Því miður hef-
ur þetta ekki verið rannsakað nægj-
anlega, en þegar liggja fyrir niður-
stöður rannsókna sem benda til að
reyklaust tóbak geti valdið hjarta-
og æðasjúkdómum. Meðan beðið
er eftir frekari rannsóknarniðurs-
töðum ber að sjálfsögðu að upplýsa
fólk um að mjög líklegt sé að reyk-
laust tóbak valdi hjarta- og æða-
sjúkdómum.
Nikótínfíkn. Mesta hættan sem
fylgir neyslu á reyklausu tóbaki er
trúlega fólgin í nikótínfíkninni
sjálfri. Hún er líkt og fíkn í ýmis
önnur efni, t.d. áfengi, flokkuð sem
sjúkdómur. Nikótínmagn í tóbaks-
skammti sem neytt er ræður miklu
um það hve hratt fíkn myndast. í
hverjum skammti af reyklausu tób-
aki, er meira af nikótíni en í einni
sígarettu. Mjög mikið nikótín er í
fínkornótta tóbakinu, snuffinu, sem
22 HEILBRIGÐISMÁL 1/1997