Heilbrigðismál - 01.03.1997, Qupperneq 24
Siðleysi tóbaksfrmnleiðenda
Sá urmull nýrra tegunda reyk-
lauss tóbaks sem á síðustu árum
hefur komið fram er engin tilviljun.
Tóbaksiðnaðurinn stendur frammi
fyrir minnkandi reykingum á Vest-
urlöndum. Við því bregst hann m.
a. með því að markaðssetja nýtt
tóbak, reyklaust tóbak. Þessu
smeygir hann inn á markaðinn í
sakleysislegum umbúðum, sem
minna á sælgæti og er óþverrinn
gjarnan bragðbættur og lyktarbætt-
ur (jarðarber, piparminta og fleira).
Markhópurinn er börn, ungmenni
og einnig íþróttamenn. Sem dæmi
má nefna að til skamms tíma gaf
ákveðinn tóbaksframleiðandi
sænska íshokkílandsliðinu reyk-
laust tóbak til eigin þarfa. Þá hafa
pakkningar með smáskömmtum af
fínkornóttu tóbaki verið gefnar.
Allt er þetta gert með það að mark-
miði að „skaffa" áfram nikótín-
þræla og tryggja þessari tegund
fíkniefnasala, tóbaksframleiðend-
um, viðurværi enn um sinn. Svo
mjög höfðaði þetta tóbak til ís-
lendinga að neyslan jókst úr 45 kg
1987, í tæp 3 tonn árið 1996. Drif-
kraftur þessarar aukningar er fíkn-
in og neytendurnir eru íslensk
æska, einkum ungir karlar og
drengir. Meðal annars náði þetta
talsverðri útbreiðslu á meðal
íþróttamanna.
Áfangasigur
Áhrif reyklauss tóbaks á heilsu-
far fólks hafa mun minna verið
rannsökuð en áhrif reykinga. Víða
um heim er nú verið að rannsaka
þessi áhrif og sífellt berast nýjar
upplýsingar. Nú þegar er hægt að
fullyrða að þetta tóbak er skaðlegt.
Það veldur bólgu í slímhúð í munni
og nefi, einnig tannskemmdum,
aukinni tíðni krabbameina í munni,
nefi, koki, kjálkum og víðar. Enn-
fremur eru sterkar líkur á að það
valdi sjúkdómum í hjarta og æða-
kerfi.
Stærsta hættan við neyslu á reyk-
lausu tóbaki er þó trúlega sú stað-
reynd að hún er gjarnan undanfari
reykinga. Það er því út í hött að
mæla með því að reykingamaður
fari að nota nef- eða munntóbak
til að hætta að reykja. Þeirri spurn-
ingu, hvort reyklaust tóbak sé
hættulaust, er því hiklaust hægt að
svara neitandi. Þvert á móti er það
stórhættulegt.
Bann við innflutningi, fram-
leiðslu og sölu á munntóbaki og
fínkornóttu neftóbaki frá 1. febrúar
1997 var stórt skref. Mikilvægi þess
felst ekki síst í því, að til lengri tíma
séð vinnur það gegn því að ung-
menni byrji að reykja. Tóbaksfram-
leiðendur vinna markvisst og markmið
þeirra krefjast þess að gera sem flest
ungmenni að nikótínfíklum. Tóbaks-
varnir eru ekkert annað en barátta
allra þeirra sem vilja vinna gegn
því. Þessum áfanga tóbaksvarna
má ekki glutra niður vegna lin-
kindar gagnvart þeim sem fjálgleg-
ast tala um óheft frelsi í viðskipt-
um, oft án þess að skeyta um heil-
brigðissjónarmið.
Pétur Heimisson læknir er sérfræð-
ingur í heimilislækningum og starfar
við heilsugæslustöðina og sjúkrahíisið
á Egilsstöðum.
bllémcmil
Í2»«iís
rmm
Fagmennska og ferskleiki
Hnossgæti úr öllum heimshornum
íslenskt grænmeti, ferskt og safaríkt
Heilsuvörur og fæðubótaefni
'M
Dg
24 heilbrigðismAl 1/1997