Heilbrigðismál - 01.03.1997, Side 27
hvítblæði 11% og mergfrumuæxli
5%. Aðrir sjúkdómar voru undir
3% af heildarfjölda tilfella. Á síð-
ustu árum er orðið algengara en
áður að bandarískir brjóstakrabba-
meinssjúklingar fari í háskammta
lyfjameðferð með stofnfrumu-
ígræðslu. Þróunin hefur ekki orðið
eins ör í Evrópu. Enn skortir rann-
sóknir sem sanna óumdeilanlega
yfirburði háskammta lyfjameðferð-
ar yfir hefðbundna meðferð við
brjóstakrabbameini. Líklegt er að
þessi meðferð verði umdeild með-
an svo er, en vonast er til að niður-
stöður ýmissa rannsókna sem nú er
unnið að liggi fyrir á næstu árum.
Igræðsla er kjörmeðferð fyrir
Yfirlit yfir blóðmyndun. Sýnt er
hvernig allar tegundir blóðkorna
eru upprunnar frá ósérhæfðri
stofnfrumu (pluripotent stem
cell). Tegundir blóðkorna eru:
Rauð blóðkorn (erythrocyte),
blóðflögur (thrombocytes), hvít
blóðkom (polymorphonucleated
neutrophil, monocyte, eosinophil,
basophil) og eitilfrumur (B-cell, T-
cell).
sjúklinga með bráða hvítblæði, sem
ekki hafa svarað fyrstu meðferð og
fyrir ýmsa aðra hvítblæðisjúklinga í
áhættuhópum. ígræðsla er eina
meðferðin sem getur læknað sjúk-
dóma eins og t.d. langvinnt merg-
frumuhvítblæði. Rannsóknir hafa
sýnt fram á að háskammta lyfja-
meðferð er kjörmeðferð fyrir ýmsa
sjúklinga með eitilfrumukrabba-
mein og Hodgkins sjúkdóm ef þeir
hafa ekki svarað fyrstu meðferð og
þegar sjúkdómurinn hefur tekið sig
upp aftur. Einnig hefur verið sýnt
fram á að háskammta lyfjameðferð
bætir lífslíkur sjúklinga með
mergfrumuæxli. Rannsóknir á
gagnsemi ígræðslu fyrir ýmis ill-
kynja æxli standa yfir.
Hornhimnuígræðsla er, enn sem
komið er, eina tegund ígræðslu eða
líffæraflutnings sem framkvæmd er
á íslandi. Sennilega hafa margir ís-
lendingar heyrt um mergskipti og
kannast ef til vill við fólk sem hefur
farið í slíka meðferð. Síðustu ár
hafa sjúklingar verið sendir til ann-
arra landa til meðferðar, einkum til
Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Nú er
ísland eitt af fáum löndum Vestur-
Evrópu þar sem stofnfrumuígræðsl-
ur eru ekki gerðar, en nokkrar líkur
eru til þess að brátt verði breyting
þar á. Þessi meðferð hefur gefið
mörgum sjúklingum nýja von í erf-
iðri stöðu. Miðað við fjölda krabba-
meinstilfella á Islandi er full þörf á
að huga að þessari meðferð hér-
lendis.
Helstu heimildir:
L. B. To, D. N. Haylock, P. J. Simmons, C. A.
Juttner: The biology and clinical uses of blood
stem cells. Blood 1997, 89: 2233.
J. O Armitage: Bone marrow transplantat-
ion. New England Journal of Medicine 1994,
330: 827.
ABMTR Newsletter. Autologous Blood &
Marrow Transplant Registry - North America.
IBMTR/ABMTR Statistical Center, Nov. 1996.
A. Gratwohl, J. Hermans, H. Baldomero:
Hematopoietic Precursor Cell Transplants in
Europe. Activity in 1994. Report from the
European group for Blood and Marrow
Transplantation (EBMT). Bone Marrow Trans-
plantation 1996,17: 137.
H. J. Deeg, H-G. Klingeman, G. L. Phillips:
A Guide to Bone Marrow Transplantation.
Springer-Verlag 1992.
Sigrún E. Þ. Reykdal læknir hefnr
sérfræðiviðurkenningu í lyflækningum
og blóösjúkdómum. Hún hefur verið í
sérnámi í Bandaríkjunum en starfar
nú í sumarafleysingum á Landspítal-
anum.
Lymphoid\
StomCell '
[Thymus]
\
Prothymocyte
m
CFU-Bns
I
•
Basophlllc
Myolocyto
I
Ðasophll
Eosinophlllc
Myolocyto
Eoslnophll
Proorythroblast
Erythrocyto
¥
Thrombocytes
Promonocyte
T
1
Monocyto
Ncutrophllic
Myolocyto
Polymorpho-
nucloatod
Neutrophll
HEILBRIGÐISMÁL 1/1997 27