Heilbrigðismál - 01.03.1997, Side 32

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Side 32
vörusamningum og milliríkjasamningum. Var Stephan þegar allt kemur til alls ekki of stífur einstaklingshyggjumaður - einyrki? Er speki hans ekki of einföld í þeim flókna upplýsinga- og tölvuheimi sem við byggj- um? Verðum við ekki að lengja skóla- gönguna og auka ítroðsluna til vera sam- keppnishæf!? Og kemst nútímamaðurinn hjá því að eiga málsverð sinn undir lýð- hylli eða embættum? Sjálfur tel ég að orð Stephans eigi betur við nú undir lok aldarinnar en við upphaf hennar. Ég skil ósköp vel hvernig börn og unglingar missa trúna á eigin mátt and- spænis ríkisvaldi, menntastofnunum, markaðsöflum og öðrum voldugum kerf- um sem eru oft hrokafull og tornæm á þarfir einstakingsins og telja barnsvitið bókstaflega hlægilegt. Börnum er snemma kennt að reiða sig á aðra en vantreysta eig- in hugsunum, bara af því að það eru þeirra hugsanir. Sérhvert mannsbarn er hafsjór innri möguleika og náttúrugæða, en lærir snemma að betla af öðrum fáeina vatns- dropa. Það er síst auðveldara að finna og móta sína eigin röddu í dag en það var á tíma Stephans; menntastofnanir gera lítið til að vekja það besta sem í hverjum ein- stakling býr. Vissulega er óviturlegt að boða aftur- í leit okkar að hinu góða lífi höfum við til- hneigingu til að einfalda hlutina og látum okkur dreyma um hið góða, gallalausa líf. Það er þessi draumur sem oft vill fjarlægja okkur hvers- dagslífinu og skapar okkur margvíslegt böl. hvarf til bændamenningar og sjálfsþurfta- búskapar en það er ekki langsótt að leggja að hverjum einstaklingi að rækta sína eigin hugsun og eigna sér sitt eigið tungutak. Það er þetta sem ljóðskáldið gerir. Ef Stephan er okkur fyrirmynd þá er það sem ljóðskáld og bóndi. Á sama tíma og Stephan semur þau kvæði sem hér hafa verið rædd skrifar Rainer Maria Rilke bréf til ungs ljóðskálds. Þar víkur hann að ljóð- skáldinu og bölinu: E/ hversdaglíf þitt virðist fátæklegt, skaltu ekki álasa því, álasaðu frekar sjálfum þér; viður- kenndu fyrir sjálfum þér að þú ert ekki nægi- lega ntikið Ijóðskáid til að kalla fram ríkidæmi þess; því fyrir hinum skapandi einstaklingi er ekki til nein fátækt eða fátæklegir, ómerkilegir staðir. í leit okkar að hinu góða lífi höfum við tilhneigingu til að einfalda hlutina og lát- um okkur dreyma um hið góða, gallalausa líf. Það er þessi draumur sem oft vill fjar- lægja okkur hversdagslífinu og skapar okkur margvíslegt böl. Miðlungsskáldum tekst oft að færa hversdagsleikann nær okkur - en afburðaskáldinu tekst að færa okkur nær hversdagslífinu. Róbert H. Haraldsson er lektor í heimspeki við Háskóla íslands og ritstjóri Skírnis. 32 HEILBRIGÐISMÁL 1/1997

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.