Heilbrigðismál - 01.03.1997, Qupperneq 34

Heilbrigðismál - 01.03.1997, Qupperneq 34
Tómas Jónasson Það á að vera metnaður okkar að hlúa vel að bömum og unglingum segir Ásgeir Haraldsson prófessor við læknadeild Háskóla Islands og forstöðulæknir Bamaspítala Hringsins í júnímánuði var þess minnst að fjötutíu ár voru síð- an Barnaspítali Hringsins var tekinn í notkun. í tilefni afmælisins var auglýst samkeppni um hönnun nýs barnaspítala, en það er framkvæmd sem flestir síðustu heilbrigðisráðherrar hafa sagt að ætti að hafa forgang. Mikil og almenn samstaða er um þessa framkvæmd innan Landspítalans eins og sjá má af yfirlýsingum lækna og hjúkrunarfræðinga. Barátta fyrir nýjum spítala var löngu hafin. þegar Asgeir Haraldsson var skipaður prófessor í barnasjúk- dómum við læknadeild Háskóla íslands og forstöðu- læknir Barnaspítala Hringsins fyrir tæplega þremur ár- um. Asgeir segir að Barnaspítalinn sé í húsnæði sem engan veginn hentar starfseminni og er ekki í samræmi við þær kröfur sem nú eru gerðar. „Aðbúnaður veikra barna og aðstandenda þeirra er óásættanlegur svo og aðstaða til starfs og náms á spítalanum," segir Ásgeir. Þrengslin eru mikil og erfitt að gera foreldrum kleift að vera hjá börnunum. „Börn eiga að fá að vera börn hvort sem þau eru heilbrigð eða sjúk um lengri eða skemmri tíma." Viðhorf til meðferðar hafa breyst mikið á síðustu áratugum. Ásgeir nefnir sem dæmi að þegar systir hans veiktist sem barn, fyrir meira en fjörutíu árum, mátti móðir þeirra ekki heimsækja hana á spítalann. Hún fór oft með föt og fleira til dóttur sinnar, reyndi að koma auga á hana í gættinni en grét oft á leiðinni heim. „Nú er viðurkennt að tengsl barna við foreldra eru öll- um börnum nauðsynleg," segir Ásgeir. „Þessi tengsl og það öryggi sem þeim fylgir er veikum börnum mikil- vægt og stuðlar að skjótum bata." Þriðji til fjórði hver íslendingur er á barnsaldri, en á því aldursskeiði er meiri hætta á ýmsum smitsjúkdóm- um heldur en þegar kemur fram á fullorðinsár. Um 3000 börn eru lögð inn á Barnaspítala Hringsins ár hvert og um 5000 koma á bráðamóttöku og göngudeild án þess að leggjast inn. Þau yngstu eru nýfædd, þau elstu um og yfir 16 ára. Ásgeir vill ekki fallast á að sam- keppni sé við barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. „Verkaskipting er til staðar og samvinna er á mörgum sviðum," segir hann. „Nú er hægt að meðhöndla marga alvarlega sjúk- Hinn nýi barnaspítali verður á lóð Landspítalans, milli kvennadeildarhússins og Hringbrautar, skammt frá gamla Kennaraskólanum. Hér er Ásgeir á væntan- legum byggingarstað. dóma sem áður leiddu til dauða," segir Ásgeir og nefn- ir krabbamein sem dæmi. Meðferðin er að vísu erfið en árangurinn jafnvel betri en annars staðar á Norður- löndum. Kostnaður við byggingu nýs barnaspítala hefur ver- ið áætlaður 800-900 milljónir króna. Byggingin verður á sjötta þúsund fermetrar en það er nokkru stærra en núverandi húsnæði. Kvenfélagið Hringurinn, sem er aðalbakhjarl barnaspítalans, á um 100 milljónir króna í byggingarsjóði, í öðrum sjóðum eru um 30 milljónir og ríkisstjórnin hefur samþykkt að 140 milljónirnar sem fengust fyrir sölu Vífilsstaðalands renni til þessa verk- efnis. Ekki er gert ráð fyrir umtalsverðri fjölgun rúma á nýja spítalanum - þau eru nú 64 - og því er ekki líklegt að spítalinn verði mikið dýrari en nú í rekstri. „Það sem helst breytist er aðstaðan," segir Ásgeir, „bæði fyr- ir börnin, foreldrana og starfsfólkið. Þá bindum við miklar vonir við aukna göngudeildarþjónustu. Börnin geta þá fengið meðferð og farið í rannsóknir að degi til en dvalið heima á kvöldin og nóttunni." Ásgeir bendir á að nú sé það viðhorf ríkjandi meðal foreldra að þeir eigi ekki að þurfa að láta börnin frá sér, allra síst þegar þau eru veik. Réttarvitund foreldra er allt önnur en áð- ur var og væntingarnar meiri. „Markmið Barnaspítala Hringsins er að lækna sjúk börn, sé þess nokkur kostur, og að útskrifa þau hraust á líkama og heilbrigð til sálar," segir Ásgeir Haralds- son prófessor. „Nýr spítali á að stuðla að því, hann á að vera vinalegur en ekki spítalalegur." Þegar Ásgeir er spurður að því hvenær framkvæmd- ir hefjist segir hann að væntanlega geti það orðið vorið 1998 og að stefnt sé að því taka hann í notkun árið 2000. Ef til vill verður vígsluathöfnin 19. júní, nokkrum dögum áður en landsmenn skunda á Þingvöll á kristni- tökuhátíð. -ir. 34 heilbrigðismál 1/1997

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.