Samtíðin - 01.05.1934, Qupperneq 8

Samtíðin - 01.05.1934, Qupperneq 8
S AMTÍÐIN kominn að sækja um prestsem- bætti. En áður en aðþvíkæmi, varð hann sturlaður, og sýndi brjálsemi hans sig í því, að hann örvænti um' sáluhjálp sína og taldi víst, að hann fengi ekki umflúið hinn ei- lífa kvalastað. Þessi hræðsla hefir vafalaust staðið í sambandi við hjátrú hans um það, að hann væri raunverulega galdramaður. Sennilega hefir hann verið vel viti borinn að eðlisfari. Að minsta lcosti hefir Þormóður í Gvendar- eyjum, sem var skáldmæltur mað- ur og hygginn og einnig talinn rammgöldróttur,haft dálæti áhon- um. Loftur dvaldi um tíma hjá honum, áður en hann fór í skóla, og þá hefir hann vafalaust drukk- ið í sig ásetninginn um að nema galdur. En eftir brottför Lofts kvað Þormóður þessa látlausu og sennilega einlægu vísu : Á hugann stríðir ærið oft óróleiki nægur, síðan ég misti hann litla Loft, er löng mér stytti dægur. Hannes Þorsteinsson telur sannar sagnir vera fyrir því, að Loftur hafi, ásamt þremur skólabræðrum sínum, stolist inn í Hólakirkju á náttarþeli; hafi það verið ásetn- ingur þeirra, að vekja með sær- ingum upp forna biskupa og nema af þeim galdur. En þeirri för lauk svo, að þessir efnilegu námsmenn urðu sjálfir nærri vitstola af og flýðu felmtraðir heim. Og um 4 og flýðu felmraðir lieim. Og um Loft er það að ininsta kosti sýni- legt, að hann hefir aldrei náð sér aftur og lést hann á unga aldri. Út af þessujn smávægilegu at- vikum hefir þjóðin smíðað þessa rammefldu galdrasögu, sem senni- lega á sér ekki líka í þjóðsögn- um annarsstaðar. Nú er það kunnara en frá þurfi að skýra, að yfirleitt er merkileg- ur skyldleiki með þjóðsögnum ýmissa landa. Sérstaklega verður það sagt um æfintýrasagnirnar, að mjög mikið af þeim er alþjóða- eign. Stundum eru æíintýrin bygð á einhverjum sögulegum atburð- um, en stundum eru hreinir hug- arórar í söguformi sameiginleg eign svo fjarskyldra þjóða eins og jafnvel Araba og íslendinga. Eitt frægasta dæmið um sameiginleg æfintýri, sem reist eru á einhverri sögulegri undirstöðu, eru sagnirn- ar um Sigurð Fáfnisbana eða Nifl- ungasögurnar, sem eiga rót sína að rekja til innrásar Húnanna inn í menningarlönd Evrópu á 4. öld. Þær sögur eru til í allskonar bún- ingum alla leið sunnan úr Búlg- aríu, upp með öllum Dónárdaln- um, norður yfir Þýskaland og út á ísland. Alstaðar er sami sögu- kjarninn, en hver þjóð setur sinn stimpil á frásagnirnar. En einmitt þegar þess er gætt, hversu mikið er sameiginlegt um þjóðsagnir ná- skyldra og fjarskyldra landa, sem beinlínis virðist bera þess vott, hve mannsandinn sé jafnan sam-

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.