Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 30

Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 30
Galdna-Leífi. Þorleifur hét maður vestfirskur. Hann var sérkennilegur mjög og hafði orð á sér fyrir að vera ákvæðaskáld og galdramaður, enda var hann kallaður Galdra- Leifi. liann var uppi á 17. öld. Lengi framan af æfinni átti Galdra-Leifi ekkert stöðugt heim- ili, en fór á milli vina og kunn- ingja og var hvarvetna tekið sem höfðingja. Var hann hinn mesti bjargvættur manna í því að kveða niður drauga og sigrast á ýmsumi óvættum, er veittu mönn- um búsifjar. Síðar kvongaðist þó Galdra-Leifi og bjó á Garðsstöð- um við fsafjarðardjúp. — Kunn- ingsskap átti Galdra-Leifi mikinn vdð huldufólk. í kvæði einu, sem til er eftir Galdra-Leifa og „Skriptanninn- ing“ heitir, talar hann mjög kunnuglega um huldufólk. Kvæði þetta er um uppruna mannkyns- ins og huldufólksins, og um eðli þess og lifnaðarháttu, um lögniál Mósesar, burtförina úr Egyfta- landi, um Krist, pínu hans og dauða o. fl. í kvæði þessu segir Þorleifur, að Adam og Eva hafi verið svo fullkomin að öllum mannkostum, fegurð og allri at- 26 gjörvi, að aldrei hafi nokkur dauð- legur maður komist til jafns við ]>au. Af því að allir erfa hæfileg- leika sína frá Adam og Evu, þá áttu sér stað hjá þeim allir mann- legir hæfilegleikar, og öll mann- leg atgjörvi í fyllingu sinni; en svo sem menn stöðugt fjarlægj- ast Adam og Evu að skyldleika, svo veitir og hæíileikunum einatt tregara og tregara að ganga í erfðir, og fyrir því er mannkyn- inu stöðugt að fara aftur. Galdra-Leifi segir, að menn hafi fundið leiði Adams, og eftir lengd þess að dæma hafi Adam verið 60 álna hár, en vöxtur mannanna hafi altaf farið minkandi, og haldi áfram að minka, sem aðrir hæfileikar og atgjörfi manna. Frá upphafi huldufólksins segir Galdra-Leifi svo: að þau Adam og Eva hafi tekið mjög niikla iðrun fyidr óhlýðni sína við guð, og hafi þau þá lagt á sig ýmiskonar mein_ læti til þess að bæta fyrir brot sitt. Til þess að geta lifað því strangara meinlætalifnaði, skildu þau að samvistum um 100 ára skeið og lifðu í einveru. Meðan Adam lifði þessu einsetumanns- lífi, gat hann huldufólkið við blómunum.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.