Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 32

Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 32
S AMTÍÐIN helst þegar erlend félög keppa við heimamenn — og sæi hann, þeg- ar hljómsveitin leikur , ,Ja vi elsker“, þá mundi því létta fyrir brjósti. Þá þrífur hann ofan hatt- inn og stendur eins og merki- kerti, logandi af metnaðarfullri föðurlandsást. Og finnist honum einhver ekki sýna tilhlýðilega virðingu, er hann ekki seinn á sér að gefa honum áminningu, og það ekki alveg bragðlausa. — „Niður með pottlokið, skíthællinn þinn, og það í hvelli!“ I seinni tíð hefir ástin borið stjórnmálin og félagsleg vanda- mál ofurliði í fjölskyldu okkar. Einar varð fyrstur til að trúlofa sig, og svo fór Randi að dæmi hans. — Á sunnudögum og á kvöldin er nú svo komið hér í húsinu, að enginn getur hreyfc sig á milli herbergja án þess að berja að dyrum, til þess að pörin fái ráðrúm til að slíta sig nokk- urn veginn hvort frá öðru. Og komi einhver nálægt legubekk eða hægindastól án þess að gera boð á undan sér, má hann eiga von á að heyra svohljóðandi samtal: — Þykir þér vænt um mig? — Já, afskaplega. — Nei, þér þykir ekkert vænt um mig. — Jú, víst þykir mér það. — Nei. — Jú. — Hvað þykir þér þá mikið vænt um mig? — Hræðilega mikið. 28 — Þykir þér ekki eins vænt um neinn og mig? — Nei, engan í veröldinni. — Hefir þér aldrei þótt eins vænt um neinn? — Aldrei. Og þannig heldur það áfram í það óendanlega. Ég held, að þetta samtal sé komið alla leið frá Adam og Evu. Það er áreið- anlega óhrekjanleg staðiæynd, að ástin geri menn blinda. Ég hefi horft á Einar teygja út hand- leggina eins og hann lífsins mögulega gat, til þess að sýna unnustu sinni, hve umfangsmikil ást hans væri, og Einar er ann- ars greindur strákur, næstum því alt of þurr í daglegri umgengni. Við Axel fórum í skemtiferð upp í sveit með „pörunum" héma um daginn, og það er nokkuð, sem við gerum ekki aftur, fyr en þau eru að minsta kosti búin að vera gift í nokkur ár. Strax og unnusta Einars gerði sig líklega til að taka upp vasaldútinn, varð Einar ekkert nema umhyggjan, og sagði: „Þú mátt ekki ofreyna þig, Björg! Ég vil ekki hafa það. Setstu niður og hvíldu þig“. Og þegar Randi ætlaði að fara að hjálpa til að matbúa, grátbað kærastinn hana, að reyna ekki of mikið á sig. — „Þú ættir heldur að hvíla þig, Randi mín!“ Eng- inn mintist á hvíld við okkur Axel. Ég veit ekki, hvemig hefði farið, ef við hefðum ekki haft vit * fyrir okkur sjálf. Frh.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.