Samtíðin - 01.05.1934, Blaðsíða 25
S AMTÍÐIN
stafsetningu, var „Vaka“, eitt hið
ágætasta rit í sjálfu sér. En
„Vaka“ sofnaði og dó. Vita
menn af hverju „Vaka“ dó? Hún
dó af kínversku stafsetningunni.
Ilún dró einhvern dám af henni,
og hún dó. Og hún var að þessu
leyti dauðaverð.
Aldrei hefir slíkur hrærigraut-
ur sést eða þekst í stafsetningu
hér á landi eins og þessi ár, síð-
an kínverska stafsetningin var
valdboðin. Hún hefir gert alt vit-
laust, ruglað alla, nema þá örfáu,
sem kunnu hana, og svo hina,
sem fyrirlitu hana frá upphafi.
En þeir eru margir, sem betur
fer. Forvígismenn kínversku staf-
setningarinnar munu nú hafa lit-
ið jrfir alt, sem þeir hafa gert,
og þegar séð, að það er ekki harla
gott. Það liggur nú þegar við
borð að veita einhverja „undan-
þágu“ um z-una, og það er nú
viðurkent, að lögmál „tvöföldu
samhljóðanna“ séu svo þung, að
ekki sé hægt að kenna þau að
fullu gagni í sjálfum háskólanum.
Kínverska stafsetningin er
þegar dauðadæmd og að dauða
komin. Það er þarflegt, að gera
sér þetta ljóst nú þegar. Blöðin
liundsa hana, rithöfundarnir fyr-
irlíta hana, kennaramir hata
hana, 5—6 menn í landinu kunna
hana, bömin geta ekki lært hana,
háskólastúdentar geta ekki lært
liana, og hinum fáu forvígis-
mönnum hennar er fallinn allur
ketill í eld. (Meira).
Undir þessari fyrirsögn mun
Samtíðin flytja greinar, ýmsar
bendingar og leiðbeiningar um
heimilið. Einnig mun hún gefa
lesendum sínum kost á að ræða
eða spyrja um ýms atriði, er
snerta heimilið.
„Já, heima vil ég vera,
því heima er allra best“,
segir skáldið og margir með því.
Ýmsum er þó annan veg farið.
Nú á tímum er mikið kvartað um
að fólk uni sér ekki heima, sér-
staklega í borgunum. í stað þess
að vistast heima eins og áður var,
er fólk nú gjarna í frístundum
sínum á opinberum veitingastöð-
um eða á götum úti.
Hvað veldur þessu? Er það
tíðarandinn? Er hornsteinn þjóð-
félagsins, þessi elsta og frum-
stæðasta samtakaheild, heimilið,
að sundrast? Þessum spuraingum
skal ekki svarað hér að sinni.
Eigi heimilisfólkið að finna
hvíld, ró og ánægju á heimilinu,
verður vitanlega að leggja mikla
alúð við það, svo heimilið verði
vistlegt og þægilegt.
Margir líta svo á, að aðalatriðið
til þess að gera heimili aðlaðandi
21