Samtíðin - 01.05.1934, Side 19

Samtíðin - 01.05.1934, Side 19
S AMTÍÐIN gengnr laus, enda ekkert undar- legt við það. Ég átti einu sinni heima á Is- chía um tíma, og þar var asm besti kunningi minn. Það voru ör- lögin, sem leiddu okkur saman. Ég hafði tekið mér aðsetur í litlu bátaskýli niður við höfnina, og asninn var nági’anni minn. Mér var ómögulegt að sofa í hinu drungalega herbergi á hótel- inu, og ég tók með ánægju tilboði Antoniós vinar míns, að dvelja í svala bátskýlinu hans niður við höfnina, meðan hann stundaði fiskiveiðar í Gaetaflóanum. Ég lifði eins og blóm í eggi og bjó mér til ágætan mat innan um pottana og netin í skýlinu. Ég oi-ti löng ástarljóð til hafs- ins og sat klofvega á bátskili, meðan ég var að bví. Þegar kvölda tók og rökkvaði í bát- skýlinu, lagðist ég til hvíldar í bólið mitt' og breiddi segl yfir mig, en minninguna um hamingju- saman dag hafði ég fyrir kodda. Ég sofnaði við báruniðinn og vaknaði í dögun. Á hverjum morgni kom gamli asninn, ná- granni minn, til mín. Hann stakk höfðinu, hátíðlegur á svip, inn um opnar dymar og starði á mig. Ég varð altaf for- viða á því, að hann skyldi standa svona kyr og stara á mig, þar sem ég lá. Ég get ekki fundið nokkra aðra skynsamlega skýr- ingu á framkomu hans en þá, að honum hafi fundist ég fallegur og snotur á að líta. Ég lá hálfvak- andi og horfði á hann — mér fanst hann líka vera fallegur. Hann minti á gamla konu á fjölskyldumynd, þar sem hann stóð við dyrakarminn með grátt höfuð, en heiðbláan himinn sumar- morgunsins að baksviði. Úti birti æ meir, smábárumar byrjuðu að glitra. Svo skein sólargeisli beint framan í mig, ég þaut á fætur, og bauð bláum Neapelsflóanum góðan daginn. Ég hafði ekkert að gera allan daginn, en vesalings asninn átti, eða svo hafði verið ákveðið, að vera að þræla fram á miðjan dag uppi í Caramicciola. En þegar hér var komið, vorum við orðnir svo samrýndir, að ég útvegaði annan í staðinn fyrir hann, og svo ráfuðum við, glaðir og áhyggjulausir, allan daginn eins og reglulegir flækingar um þær götur, er verkast vildi. Stundum var ég á undan, og asn- inn smábrokkaði á eftir mér, stundum var hann á undan og hafði sett sér eitthvert ákveðið mark fyrir ferðina, og þá elti ég auðvitað. En allan tímann athugaði ég vandlega þessa skemtilegu per- sónu, sem ég hafði kynst á svo óvæntan hátt, og það var orðið langt síðan ég hafði verið með svo skilningsnæmum og skemti- legum félaga. Mér hefði þótt gam- an að segja miklu fleira um þetta, en hinar eiginlegu, sál- fræðilegu bollaleggingar verða ef 15

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.