Samtíðin - 01.05.1934, Page 21

Samtíðin - 01.05.1934, Page 21
S AMTÍÐIN sér grein fyrir, hve þungur hann sé. Allt í einu standa þeir graf- kyrrir og hlusta. Varðflokkur fer framhjá skamt í burtu, og ég sé, að enn eru sendir tveir maurar til hjálpar. Svo taka þeir allir á í einu og toga í stóra bjálkann með hægum, jöfnum á- tökum eins og sjómenn. Mér kemur í hug, að bjálkann eigi að nota til þess að gera við skemdir, sem hlutust af jarð- skjálfta. Guð einn veit, hve margir iðnir, litlir verkamenn lig’g'ja. sundurmarðir undir rúst- um hinna föllnu húsa. Ég þori ekki að spyrja, hvaða fáraafl það var, sem lagði þetta stórvirki í rústir, er byggt hafði verið upp með svo miklu erfiði, því hver veit, nema það hafi verið maður á gangi, sem að gamni sínu tætti í sundur mauraþúfuna með stafn- um sínum, um leið og hann gekk framhjá? Og allar aðrar litlu verurnar, sem ég veit ekki hvað heita, — en ég athuga smáheim þeirra með ánægju; þær eru líka sam- borgarar í hinu mikla þjóðfélagi alheimsins og rækja ef til vill borgaraskyldu sína miklu betur en ég. Þannig lýkur, að maðurinn verð ur agnarlítill, þegar hann liggur kyr og horfir niður í grasið. Að lokum finst mér, að ég sé einungis maur, sem brýst gegn um veglausan fenjaskóg með hina þungu byrði lífs míns. Ýmist er vegurinn upp í mót eða undan fæti. En verkið skal vinna. Séu bara til vinir, er rétta vilja hjálparhönd, þegar hindranimar virðast of miklar, brekkan of brött og byrðin of þung, gengur alt að óskum. En alt í einu fara forlögin framhjá og velta öllu um koll, sem byggt var upp með svo löngu og ströngu erfiði. Langt inni í veglausum skógin- um brýst maurinn áfram með þungu byrðina sína. — Ferðin er löng, og enn er drjúg stund, áður en dagsverkinu lýkur með döggfallinu. Langt ofar dagsins amstri og önnum flýgur draumurinn á létt- um gyltum vængjum. Sigurjón Guðjónsson frá Vatnsdal þýddi. Náttúruvernd. Ljótur siður er það hjá fólki, sem fer út í sveit sér til skemt- unar og til þess að njóta nátt- úrufegurðarinnar, að óprýða þann stað sem það hefir dvalið á, með því að skilja þar eftir upprifnar blikkdósir, bréfarusl, flöskur og glerbrot. Slíkt er ófyrirgefanlegt. Hver maður, sem auga hefir fyrir fallegu landslagi og nýtur þess að vera á fögrum stað, fordæmir slíkan trassaskap. Að koma á stað, þannig útleikinn, er ömui-legt, hversu fagur sem staðurinn annars er. 17

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.