Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 6

Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 6
4 SAMTÍÐIN JAKOBÍNA JOHNSON SKÁLDKONA ER KOMIN í HEIMSÓRN TIL ÍSLANDS. Meðal farþega hingað á „Gullfossi" í síðustu ferð skipsins hingað til lands var hin fræga skáldkona vor vestan hafs, frú Jakobína Johnson. Er hún hingað komin að vitja ættjarðar sinn- ar eftir langa dvöl í Vesturheimi, en þangað fluttist hún 5 ára gömul. Frú- in er þingeysk að uppruna, fædd á Hólmavaði í Suður-Þingeyjarsýslu 24. október árið 1883, og er hún dótt- ir Sigurbjarnar Jóhannssonar skálds frá Fótaskinni og konu hans, Maríu Jónsdóttur. Hún er kvænt ísaki Jóns- syni frá Háreksstöðum í Norður- Múlasýslu, og eru þau hjónin búsett vestur í Seattle. Frú Jakobína Johnson er kennari að mentun. Hún er löngu víðfræg orðin fyrir kveðskap sinn frumsam- inn, en eigi síður fyrir fjölmargar afbragðsþýðingar á íslenskum kvæð- um eftir mörg bestu ljóðskáld vor, og hefir hún snúið kvæðunum á enska tungu með þeim hætti, að þau njóta sín prýðilega í hinum enska búningi. Með þessu hefir skáldkonan fært út landmörk íslenskra bókmenta, landi voru og þjóð til gagns og sóma. Þjóð vor stendur því í mikilli þakk- arskuld við frú Jakobínu, og munu margir verða til þess að votta henni þakklæti sitt, meðan hún dvelst hér á landi í sumar. Hefir sérstök heim- boðsnefnd starfað ötullega að því í vetur að undirbúa hér sem allra best komu skáldkonunnar, og er frú Guð- rún J. Erlings formaður nefndar- innar. Kvöldið, sem frú Jakobína John- son sté hér á land (föstudaginn 21. júní 1935) eftir rétta þriggja vikna för frá Seattle, hélt frú Guðrún J. Erlings henni veislu og bauð þangað þeim samstarfsmönnum sínum úr heimboðsnefndinni, sem þá voru staddir í Reykjavík, og nokkrum mönnum öðrum. Þar fékk ritstjóri SAMTÍÐARINNAR tækifæri til að kynnast skáldkonunni og hlusta á hana flytja síðasta kvæðið, sem hún hefir ort. Er það kveðið á leiðinni austur yfir Atlantshaf, og nefnist: Urn nótt á Atlantshafi. Þetta gull- fagra ljóð hefir frú Jakobína leyft oss að birta hér í ritinu, og fylgja því innilegar hamingjuóskir skáld- konunnar til hins unga tímarits vors um gæfu og gengi. Frú Jakobína Johnson hefir síðast- liðinn vetur komið 14 sinnum fram á opinberum fundum vestur í Seattle og flutt þá jafnan erindi um íslenskar bókmentir og listir. Sýnir þetta m. a. hvern virkan þátt hún á í því, að vinna íslandi gagn í Vesturheimi. Hún talar íslensku undravel og má um hana segja, að fögur íslensk orð liggja „tvenn og þrenn“ á tungu henni, ef hún þarf á þeim að halda. SAMTÍÐIN býður skáldkonuna innilega velkomna heim til ættjarðar- innar og vonar, að hún megi njóta sumarsins hér sem best og megi hverfa héðan á komanda hausti með fult fang yrkisefna og góðra endur- minninga.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.