Samtíðin - 01.05.1935, Side 15

Samtíðin - 01.05.1935, Side 15
SAMTÍÐIN 13 JURTAGRÓÐUR OG TILBÚINN ÁBURÐUR. í Deutsche Medizinische Wochenschrift, sem er eitt þektasta læknisfræðistimarit Þjóðverja, birtist eftirfarandi grein fyrir skömmu. Hún á eig-i lítið erindi til vor, ef staðhæfingar þær, sem þarna er haldið fram, reynast réttar, að tilbúni áburðurinn sé að spilla jurtagróðrinum svo, að heiisu manna og dýra sé hætta búin, og er því hér gerður lauslegur útdráttur úr henni. Síðustu áratugina hefir verið litið um of efnislega á þá næringu, sem jurtagröðurinn þarfnast. Næringin hefir ekki verið samsett af nógu miklum lífrænum efnum. Nú er það hins vegar vitanlegt, að allur jurta- gróður er fyrst og fremst lífræns eðl- is, og sú næring, sem hann þarfnast, á því einnig að vera lífræn. Menn litu svo á, að jurtirnar drægi til sín úr jarðveginum ýms sölt, kalísölt, fós- fórsölt, köfnunarefnissölt o. s. frv., og því væri ekkert annað en að bæta þessum efnum aftur í jarðveginn, og þá fengi gróðurinn alla þá næringu, sem hann þyrfti með. Þessi skoðun er þó óðum að hverfa úr sögunni. Það hefir sannast, að áburðarefnin, sem náttúran leggur til, húsdýraáburður, jurtaleifar o. þ. h., hafa mikla yfir- burði yfir hinn tilbúna áburð, og eru fjölmargar ástæður til þess. Fyrst og fremst sú, að moldarefn- in eru mjög gagnleg fyrir jarðveg- inn, og því gott að jurtaleifar og slíkt samlagist jarðveginum aftur. Þá er það eigi síður nauðsynlegt, að gerlar berist í jarðveginn, til þess að þeir hreinsi til í honum, og losi hann þann- ig, að plönturnar þurfi minna að hafa fyrir því að láta ræturnar vaxa í all- ar áttir, og þannig, að vatnið eigi auðveldara með að gegnvæta jarð- veginn, svo að jurtin hafi minna fyrir því að ná næringarefnunum úr hon- um. Þá er það veigamikið atriði, að þeg- ar áburðurinn kemst í jarðveginn, hefst gerjun hans, og við það verður jarðvegurinn hlýrri. Eins og kunnugt er, þurfa jurtirnar á mikilli kolsýru að halda, og er það einna erfiðast fyr- ir þær að fá nóg af kolsýrunni. Þegar gerjunin fer fram, framleiðist kol- sýra, og kemur það jurtinni að miklu gagni. Moldarefnin í jurtaleifum og slíku koma einnig í veg fyrir súrefn- isskort í jarðveginum, og þau ásamt húsdýraáburðinum hafa einnig þann eiginleika að vinna á móti því, að skaðlegar sýrur myndist í jarðvegin- um. Og loks innihalda þessi efni bein- línis svonefnd vaxtarefni (Auxine), sem eigi eru síður nauðsynleg öllum gróðri. Það má með nokkurri vissu segja, að ef einungis eru notuð ólífræn á- burðarsölt, hlýtur svo að fara fyr eða síðar, að jarðvegurinn eyðileggist með öllu. Þar sem mannshöndin kem-

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.