Samtíðin - 01.05.1935, Blaðsíða 22
20
SAMTÍÐIN
BÓKAÚTGÁFA
SÆNSK-ÍSLENSKA FÉLAGSINS.
Meðal sænskra mentamanna hefir
öldum saman verið ríkjandi mikill á-
hugi fyrir íslenskum fræðum. Fyr
meir snerist þessi áhugi þeirra ein-
göngu að fornbókmentum okkar. En
með aukinni kynningu frændþjóð-
anna hefir þessi áhugi einnig beinst
að landi okkar og nútímamenningu.
Er nú svo komið, að ýmsir Svíar hafa
gengist fyrir stofnun sænsk-íslensks
félags til eflingar menningarsam-
bandi milli Svíþjóðar og íslands, og
nefnist þetta félag Samfundet Sve-
rige—Island. íslendingar hafa metið
þetta framtak Svía með því m. a., að
þeir hafa stofnað hér á landi annað
félag, er heitir Svíþjóð, og er því
ætlað að hlúa að áhuga þeim, sem
hér er óðum að vakna fyrir sænskri
menningu.
Sænsk-íslonska félagið í Svíþjóð
hefir gengist fyrir útgáfu bóka, er
varða ísland og Islendinga. Eru þeg-
ar komin út 4 rit frá hendi félagsins
síðan 1931 eða eitt rit á ári, og er þar
svo myndarlega af stað farið, að
sjálfsagt þykir að minna hér nokk-
uð á þessi rit og drepa lítillega á efni
þeirra.
Fyrsta ritið kom út árið 1931 og
nefnist: Island, Bilder fran gammal
och ny tid (þ. e. ísland. Myndir frá
fornum og nýjum tíma). Formála
fyrir þessari bók hefir ritað Elias
Wessén, háskólakennari í Stokkhólmi,
ágætur fræðimaður og vinveittur Is-
lendingum. En sjálft ritið eru 6 rit-
gerðir. Jónas Jónsson, þáverandi
dómsmálaráðherra, skrifar þar um
samúð Svía og íslendinga, Jón Helga-
son, háskólakennari í Khöfn, um ís-
lenskar bókmentir á síðari hluta 16.
aldar og einnig ritgerð, er hann nefn-
ir: Frá Oddi Gottskálkssyni til Fjöln-
is. Þróun íslenskrar tungu um 300
ára skeið. — Dag Strömbáck, dr. phil.
í Lundi, ritar um forna og nýja þjóð-
trú á íslandi. Og loks er ræða fyrir
minni Islands eftir Ivar Venner-
ström, ráðherra. Þetta rit er 102 bls.
að stærð, prýtt nokkrum landslags-
myndum frá íslandi, og kostar kr.
4.65. Er það mjög læsilegt og stór-
fróðlegt á köflum.
Annað rit félagsins kom út árið
1932. Það heitir Fran Island. Nutids-
noveller i översattning (þ. e. Frá ís-
landi. Nútímasmásögur í (sænskri)
þýðingu). I bókinni eru þessar sög-
ur: Sagan af Sigurði formanni eftir
Gest Pálsson, Valur eftir Þorgils
gjallanda, Þurkur og Vistaskipti eftir
Einar H. Kvaran, Gamla heyið og
Feðgarnir á Hillu eftir Guðmund
Friðjónsson, Síðasta fullið eftir Sig-
urð Nordal, Tófuskinnið og Hákarla-
veiðin eftir Guðm. Gíslason Hagalín.
Framan við sögurnar er formáli
eftir Hjalmar Lindroth, prófessor í
Gautaborg, og fylgja helstu æviatriði