Samtíðin - 01.05.1935, Page 24

Samtíðin - 01.05.1935, Page 24
22 SAMTÍÐIN Jurtagróður vísar á málma. Forn-Grikkir þóttust geta ráðið það af gróðri jarðar, hver efni lægju hulin undir grassverðinum. Rann- sóknir nútímans hafa staðfest rétt- mæti þessarar skoðunar, svo að ekki verður lengur um vilst. Merkur nú- lifandi námuverkfræðingur segir þannig frá: Fjölmargar sannanir eru nú fengn- ar fyrir því, að mjög víða í heiminum bendir jurtagróðurinn til þess, hvaða málmar búa undir honum í iðrum jarðarinnar. Því eru vísindamenn farnir að gefa þessu miklar gætur. Á þennan hátt hefir meðal annars fundist mikið af zinkmálmi í Belgíu, sem hæpið er, að nokkur maður hefði veitt athygli ella. f Englandi eru þeg- ar fengnar órækar sannanir fyrir því, að á þeim stöðum, þar sem beyki- tré þrífast vel, er gnægð af kalki í jörðu. Þar í landi og víðsvegar í Ameríku hefir fundist blýmálmur í jörðu, þar sem litartré vaxa. Enn fremur vita menn það nú orðið með vissu, að þar, sem mikið vex af birki, er járn að finna, og þannig mætti lengi telja. Þessar athuganir hafa vakið geysi- mikla eftirtekt, og þykjast menn þess nú fullvísir, að ítarlegar rann- sóknir á jurta- og trjágróðri í sam- bandi við málmvinslu muni í náinni framtíð verða til þess, að óhemju- miklir, duldir fjársjóðir verði innan skams grafnir upp úr iðrum jarðar- innar. (Magazine Digest.). Leikritagerð í fornöld. Það er annað en gaman að vera leik- ritaskáld nú á dögum. En verra var þó að að skrifa leikrit á sanskrít í fornöld, því að þá var ekki nóg með það, að ritdómararnir nörtuðu í skáldin, heldur urðu þau að gera svo vel og fylgja settum reglum. Hér fara á eftir nokkrar af þessum forskriftum, sem vesalings skáldin urðu að fylgja: — Aðalpersónan verður að sýna sig á leiksviðinu i hverjum þætti. Hún má vera indverskur goði, ráðherra eða kaupmaður. — Aðalkvenhetjan í leiknum má vera kona af góðum ættum eða skækja. Líka má skipta hlutverki kvenhetjunnar milli þess- ara tveggja kvenna, en þá mega þær aldrei hittast á leiksviðinu. — Ráðlegt þykir að láta mikið af þorp- urum koma fram í leiknum. — Leikurinn sé umfram alt ástarleikur. Hann verður að enda vel. Raunalegur end- ir er stranglega bannaður. Skoti einn andaðist og barði von- um bráðar að dyrum í himnaríki. — Hvað heitir þú? spurði Sánkti Pétur. Skotinn sagði til nafns síns. — Þá færðu ekki að koma hingað inn, mælti Pétur. — Hvernig stendur á því? Ég veit ekki betur en að ég hafi lifað heið- arlegu og reglusömu lífi, sagði Skot- inn forviða. — Það getur vel verið, ansaði Pétur, — en við getum ómögulega staðið í því að elda eintóman hafra- graut handa einum manni.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.