Samtíðin - 01.03.1941, Side 20
16
SAMTÍÐIN
Tvö guðshús
frá 1823 og 1940
j\,T ATTHIASARKIRKJAN á Akureyri, sejn
mun vera veglegasta lúthersk kirkja,
er reist hefur verið liér á landi, var víg'ð
17. nóv. síðastl. Hafði hún verið í smíðum
hátt á annað ár. Uppdráttinn að kirkjunni
gerði húsameistari ríkisins, próf. Guðjón
Samúelsson. Hæð turnanna frá jörðu ér 2(5
metrar. Kirkjan er 34 m. á lengd, og breidd
aðalkirkjunnar er 14 m. Hæð frá gólfi upp
í hvelfingu kirkjunnar er 8M; m. Sæti eru
í kirkjunni fyrir um 550 manns, en vegna
þess, hve gólfflötur hennar er stór, má enn
fjölga sætum að miklum mun. Akureyri hef-
ur hér eignast veglegt guðshús, sem hinn
fagri uorðlenski höfuðstáður hafði orðið
mikla þörf fyrir. Er Matthíasarkirkjan hin
mesta bæjarprýði og söfnuði sinum til mik-
ils sóma. Megi hún ávallt blessunar njóta.
ESSASTAÐA-
KIRKJA er
eitt hið virðuleg-
asta guðshús á
íslandi.Hafið var
að reisa hana um
1780, en fullgerð
var hún árið
1823. Bessastaðir
eiga sér mikla
sögu, og standa
liúsin þar sem
eins konar minn-
ismerki liðinna
alda. Sigurður
Jónasson forstj.
keypti Bessastaði
s.l. ár. Hann hef-
ur þegar látið
fara fram mikla
viðgerð á kirkj-
unni, og er slikt
mjög þakklætis-
verður virðingar-
vottur gagnvart
þessu 118 ára
gamla guðshúsi.