Samtíðin - 01.02.1942, Blaðsíða 8
4
SAMTÍÐIN
Um ameríska háskóla
Viðtal við ÞÓRHALL ÁSGEIRSSON, B. A.
EIN GLEÐI-
LEG und-
antekning frá
lijnum hörmu-
legu skaðræðis-
áhrifum núver-
andi heimsstyrj-
aldar er aulcin
viðky nning okk-
ar við Ameríku-
menn, traustari amerísk-íslenzk
tengsl en áður hafa þekkzt. í heims-
styrjöldinni 1914—18 færðust við-
skipti okkar við Vesturheim stórum
í aukana, en það er naumast fyrr en
í þessu stríði, að nauðsynin liefur
kennt okkur, að fleiri tegundir við-
skipta við Ameríku en vöruskipti
gætu verið okkur haglcvæm,. Það er
fyrst nú, að menntalíf Vesturheims
liefur opnazt íslenzku námsfólki héð-
an að heiman. Hafa upp á síðkaslið
allmargir íslenzkir stúdentar lagt
leið sina vestur um haf lil háskóla-
náms.
Samtíðin liefur snúið sér til eins
þessara stúdenta, Þórhalls, sonar As-
geirs Ásgeirssonar bankastjóra, og
iæðið hann að svara nokkrum, spurn-
ingum viðvíkjandi amerískum há-
skólum. Þórhallur Ásgeirsson hóf
hagfræðinám við Stokkhólmsháskóla
haustið 1937, dvaldist hér í sumar-
leyfi 1939 og komst ekki aftur til
Stokkhólms vegna stríðsins. Fór hann
því vestui’ um liaf sumarið eftir og
hefur síðan stundað nám sitt við liá-
skólann í Minneapolis.
Hvernig lizt þér á amerísku há-
skólana? spurði ég Þórhall Ásgeirs-
son.
- Það eru stórkosllegar stofnan-
ir. Af engu lief ég orðið jafnhrifinn
í Ameríku og þessum risavöxnu
menntasetrum. Háskólasvæðin, hygg-
ingarnar sjálfar og aðhúnaður allur
skarar mjög langt fram úr þvi, sem
ég hafði áður kynnzt í Svíþjóð eða
haft kynni af í Evrópu.
— Þú varst tvö ár við háskólann í
Stokkhólmi. Geturðu gert stuttan
samanhurð á sænskum og amerísk-
um háskólum?
— Það er ekki auðgert. Amerísku
háskólarnir eru svo margir og mis-
jafnir, að örðugt er að lala um þá
sem eina heild. Þeir heztu eiga naum-
ast sinn líka i víðri veröld og svipuðu
máli gegnir ef til vill um þá lélegustu.
Stúdentatalan er hærri í Bandaríkj-
unum en i nokkru öðru landi. Þar eru
um 1.300.000 stúdentar árlega inn-
ritaðir í háskólana, og m.yndi það
samsvara því, að um 1200 íslenzkir
stúdentar væru við háskólanám
samtímis. Þess her þó að gæla, að
fyrstu tveim árunum verja stúdentar
í Bandaríkjunum venjulega til undir-
búningsnáms undií sérnám silt, og
samsvara þau því að vissu leyti tveim
siðuslu vetrunum í menntaskólum