Samtíðin - 01.02.1942, Síða 13

Samtíðin - 01.02.1942, Síða 13
SAMTÍÐIN Vegna innflutningstálmana og vöruskorts hafa landsmenn ekki get- að undanfarið fengið nægilegt efni til að lialda við framleiðslutækjum sín- um og verðmætum eignum, öðrum. Það er því miklu fremur nauðsyn en að það sé áhyggjuefni, að fé hef- ur safnazt fyrir i landinu til að mæta þessum brýnu þörfum, þegar frarn úr rætist um hömlurnar og vöru- skortinn. Að úllán lánsstofnana Iiafa minnk- að ber vott um velmegun landsmanna og þar af leiðandi minni lánsþörf en venjulega. — Er það síður en svo áhyggjuefni. Þá er það peningaveltan í höndum almennings. Það er ekki svo oft, að „hnífur al- mennings kemur i feitt“ í þessu til- liti, að það megi sýnast vert að liafa stórar áhyggjur út af því. Almenn- ingur er því vanastur, að hafa fé af skornum skammti. Hann var á und- anfarandi fjárnauðatíma húinn að „svelta sig“ um margar brýnar þarf- ir. Það er því ekki nema eðlilegt, að allmikillar „eyðslu“ þyki gæta hjá al- menningi í notkun handbærs fjár. Að nokkru leyti er sú fjárnotkun til að hæla úr undanförnu „svelti“ um hrýnar nauðsynjar, og er þann hluta eyðslunnar ekki að átelja. Hitt á sér þó eflausl allmikinn stað, að miklu fé sé einnig evtt á óskyn- samlegan hátt. Það er því einna helzt þessi eyðsla, sem rétt er að nema ögn staðar við. — Til hennar mun mega telja þrjár meginástæður: 1. Örlæti og höfðingshmd í skap- gerð þj óðarinnar. 9 Þessa eiginleika i fari þjóðarinnar er í sjálfu sér sízt að lasta. Hins vegar ber að temja þessa skapseinkunn sem aðrar, við skynsamlega forsjá, og er mönnum það eðlilega misjafnlega gefið sem annað. 2. Ótti við, að verðgildi peninganna fari sifellt rýrnandi. Það er augljóst mál, að hin vaxandi verðbólga er sama sem rýrnun á verðgildi peninga vorra. En afleiðing þess er ekki sú, að eyða beri öllu handbæru fé, sem unnt er. Eyddur eyrir kemur aldrei aftur, en sparað- ur eða geymdur eyrir kemur alltaf að einhverjum notum síðar, máske lil að fullnægja mjög aðkallandi þörf. Það er aldrei forsjálni i þvi fólgin, að eyða fé til þess, sem er hégóminn einber. Fyrir fátækan, og tíðast fé- vana, almenning er óþörf fjáreyðsla sama sem að torvelda bjargræðis- horfurnar síðar. 3. [Óttinn við skattkerfið. — Al- menningur ályktar sem svo, að ef hann eyðir ekki fé sínu, þá verði það af sér tekið í skatta og skyldur. Ör- snauður maður sé hinn eini ríkisþegn, sem standi óhallur gagnvart skatta- kröfunum. Oflangt mál væri í þessari stuttu grein að ræða þetta efni til nokkurrar hlilar. En jála verður, að það er óneit- anlega sá galli á skattakerfi voru, að það krefst framlaga frá skattþegnun- um til ríkis- og sveitar-þarfa af tekj- um, sem engan veginn eru fullar þurftartekjur, og af eignum, sem ekki levfa neinu af þvi, sem hverjum, einasta fjölskyldumanni og smá- framleiðanda er nauðsynlegt að eiga í algjörlega arðhærum eignum.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.