Samtíðin - 01.02.1942, Page 27
samTíðin
23
frægt í Berlín, Weimar, Rostock,
Königsberg og Erfurt.
Napóleon lagði nú undir sig hvert
þýzka ríkið á fætur öðru, og því næst
var friður saminn. Scliulmeister
fluttist þá til Meinau, sem er í grennd
við Strassburg og hugðist að lifa
þar rólegu lífi, því að hann var nú
orðinn auðugur maður. En hann
gleymdi ekki velgerðarmanni sínum,
hinum mikla frakkneska stríðsjöfri,
og hafði þvi jafnan gát á öllu þvi
markverðasta, er gerðist handan
Rinar. Hafði liann einkaumráð yfir
e. k. síma, sem hann gat á tæpum 6
mínútum sent slcilahoð með (um
24 millistöðvar) frá Strassburg til
Parísar.
En nú tók að lialla undan fæti hjá
Scliulmeister. Eflir því, sem meira
svarf að Napóleoni, átti liann örðugra
uppdráttar. Síðustu æviár sin lifði
Sclmlmeister í fátækt og óvirðingu.
Hann andaðist í Strasshurg árið
1853.
Njósnarar af hans tag'i eru nú að
mestu úr sögunni. Nútíma njósnar-
starfsemi er rekin með vélrænu
skipulagi af samstarfsmönnum, þar
sem bæði eru að verki afburða
tunguniálamenn og tæknisérfræð-
ingar. Nútímavirkjum og hergögn-
um verður ekki lýst að neinu gagni
nema af hálærðum sérfræðingum.
Annars konar fólk kemur þar ekki
til greina. Hin gífurlega styrjaldar-
tækni nútímans gerir aðrar og meiri
kröfur til starfsmanna leyniþjónust-
unnar en hernaður fyrri alda.
Gerið svo vel og sendið Samtíðinni ár-
gjald yðar fyrir 1942, kr. 10.00, sem allra
fyrst.
Vefnaðarvöruverzlun
Austurstræti 10 — Reykjavík
Metravara, — smávara,
Kvenundirfatnaður,
Sokkar, — mjaðmabelti,
Kápur, — kjólar.
Karlmannaföt og frakkar
Manchetskyrtur og bindi,
Nærföt, — sokkar,
Hattar, húfur o .m. m. fl.
Vörur sendar gegn póstkröfu
um land allt.
GLUGGA!
HURÐIR!
cg allt til húsa smíðar
Magnús Jónsson
TRÉSMIÐJA
Reykjavík
Vatnsstíg 10. Sími 3593
Pósthólf 102.