Samtíðin - 01.10.1944, Síða 10

Samtíðin - 01.10.1944, Síða 10
6 SAMTÍÐIN JÓNAS KRISTJÁNSSON læknir: Náttúrulækningastefnan KÆRA SAMTÍÐ! Þó að ég verði við tilmælum þínum um grein- arkorn um náttúrulækningar og markmið þeirra, verður þess tæplega vænzt, að í svo stuttri grein, sem þér Iientar, verði fullkomlega grein gerð fyrir svo víðtæku máli. Náttúru- lækningastefnan er í eðli sínu og framkvæmd hrein umbótastefna inn. an vébanda hinnar algengu háskóla- læknisfræði. En takmarlc hennar er þó fyrst og fremst takmörkun eða helzt útrýming hinna ört vaxandi hrörmmarkvilla. Ég hýst ekki við, að um það verð' T villzt, hvað kalla má hrörnunarkvilla y Það eru kvillar, sem hvila á eða staf: 3 af hilun einhverra líffæra, svo sen jH efnaskiptasjúkdómar, meltingarsjúk- dómar, húðkvillar, taugabilun, þroti í slímhúðinni og innkirtlum og jafn- vel að nokkru leyti einnig berkla- veiki. Það er ekki fvrst og fremst næmra sjúkdóma vegna, sem hrópað er hátt eítir fleiri og stærri sjúkrahúsum, lieldur vegna hrörnunarkvilla. Það eru menn með slíka sjúkdóma, sem kosta læknana mest starf og strit, þó án verulegs eða fullkomins árang- urs. Náttúrulækningastefnan telur það höfuðstarf læknisfræðinnar að út- rýma hrörnunarkvillunum. Meðan orsakir þessara mörgu útbreiddu og örtvaxandi kvilla eru ekki vel þekkt- Jónas Kristjánsson ar og viðurkenndar af háskólalæknis- fræðinni, er engin von lil þess að þessir hrörnunarkvillar verði stöðv- aðir og því síður að þcim verði út- rýmt. Öll von um hetri lieilsu maiin- kyninu til handa bvggist eingöngu á því, að þessum sjúkdómum verði út- rýmí. Einn frægur læknir fornaldarinn- ar, sem uppi var fyrir tæpum 2 þús- undum ára, segir, að það sé næsta ósennilegt, að þeim takist að lækna sjúkdóma, sem ekki veit, af hverju þeir stafa. Nútíðarlæknar viður- kenna þetta. En þeir segjast ekki vita

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.