Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 19

Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 19
SAMTÍÐIN 15 ()g cg lievri, hvernig orðin velta út úr munni hans, meðan liann góflar á liinum hragðljúfu kökum. „Æi-nei,“ sárbiður gamla konan. „Jú,“ segir strákurinn. „Heyrðu,“ segir þá gamla konan. ,,Ef þú vilt vera hjá mér hara svolítið lengur, af því mér leiðisl stundum svo mikið, þegar þú ert farinn, þá skal ég raula okkur þuluna mína, sem þér þykir svo falleg.“ „Hvaða andskotans þulu?“ segir strákurinn. Þá er eins og eitthvað hafi brostið i brjósi þessarar gömlu konu, og hún lætui' ókvæðisorðunum rigna vfir hið tilfinningalausa barn. þennan uppalning götunnar og nöðru af- sprengi, kvalræði guðs og manna. „Farðu lil helvítis!“ hljóðar hún að lokum sundurtættri, ískaldri röddu, sem á sér ekki framar persónulegan hlæ, er ómennsk og villt eins og ösk- ur úr harka brjálaðs manns. „Vertu sæl, amma mín,“ segir strákurinn. Og ég held áfram að silja og hlusta. Ég heyri skóhljóð drengsins færast niður stigann, fjarlægjast æ meir og deyja út. Og það líða nokkrar mínútur í þögn, nema hvað suðandi skarkali frá einstaka bíl berzt til min inn um gluggann. Síðan eins og lágvær andvörp yfir brotnum dýrgripum, nem ég nokkr- ar sundurslitnar hendingar gegnunr bilið: „Ivátt er á jólunum, koma þau senn, þá munu upp líta Gilsbakkamenn, upp munu þeir Jita og undra það mest, úti sjá þeir stúlku og blesóttan hest. Úti sjá þeir stúlku------- Upphaf Gilsbakkaþulunnar, sem endar í þungum gráti gamallar konu. Hvað þýða þessi orð, sem fyrr á öldum voru al- geng á Austurlandi og raunar viðar hér um land ? 1. Kani. 2. Klápur. 3. Nálgur. 4. Skersla. 5. Sofn. 6. Stélur. 7. Seti. 8. Tappur. 9. Uppreiða. 10. Þæri. Skýringar á bls. 29. ARGIR óttast kulda og kvarta oft undan vetrarveðrum. En kuldinn er ekki eins liættulegur og ýmsir ætla. Þvert á móti örvar liann starf líkamans á marga lund. Vöðv- arnir verða þróttmeiri, lungun taka loftið betur til sín, blóðrásin örvast, og mellingin gerir slíkt hið sama. Ivöld veðurátta um stundarsakir er einungis hollustuauki, ef menn gæta þess að klæða sig vel og gæta að öðru leyti nauðsynlegrar varúðar. (Úr New Health). Thorvaldsensbazarinn Austurstræti 4. Reykjavík. Tekur til sölu vel unna íslenzka muni. Sendið honum m. a. alls konar prjónles og band.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.