Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 21

Samtíðin - 01.10.1944, Qupperneq 21
SAMTÍÐIN 17 réttinda, sem lýðræðissldpulaginu hefur verið ætlað að vernda, er réttur- inn til þess að bindast félagssamtök- uin í löglegum tilgangi. Auk þeirra' pólitisku erfiðleika, sem rnundi vera á þvi, að banna hágsmunasamtökin, gæti slíkt, svo sem að ofan greinir, vart samrýmzt sjálfri lýðræðisliug- sjóninni. En annað mál er það, að enda þótt ekki þyki tækl að hanna með lögum hagsmunasamtök þau, sem virðast á góðum vegi með að koma lýðræðinu á kaldan klaka, virðisl óþarft, að lög- gjafarvaldið beinlínis stuðli að eflingu þessara samtaka. En í rauninni liafa félagssamtök þessi að meira eða minna leyti náð aðstöðu sinni í skjóli löggjafarvaldsins. Löggjafarvaldið hefur ekki aðeins látið hlutlaus hin ýmsu Iiagsmunasamtök, sem smáni saman eru að grafa grundvöllinn undan skipulagi frjálsra viðskipta og þar með í rauninni lýðræðisskipu- laginu, heldur eflt þau með öllu móti. Hverju nafni sem samtök þessi nefn- ast, hvort lieldur eru hringar, önnur atvinnurekendasamlök af ýmsu tagi eða launþegasamtök, hefur þeim tekizt að fá starfsemi sína löghelgaða og iögverndaða, enda eiga samtök þessi jafnan rík ítök i hinum póli- tísku flokkum. Nokkur einstök dæmi verða hér að nægja til þess að sýna þetta. Þvi hefur verið haldið fram af andstæðingum frjálsrar samkeppni, að samkeppnin liefði tillmeigingu til þess að eyðileggja sjálfa sig, og bent í því efni á vöxt og viðgang hringa, er öðlast hafa einkasöluaðstöðu í mörgum atvinnugreinum. En þess ber að gæta í þessu sambandi, að hringar og einkasölur hafa fvrst og fremst risið upp í skjóli tollverndar- stefnunnar, sem miðað iiefur að því að torvelda eða útiloka erlenda sam- keppni. Tollverndar- og verzlunar- haftastefnan hafa átt drýgstan þátt i því að skapa einokun þá, sem svo víða hefur rutt sér til rúms á sviði verzl- unar og iðnframleiðslu. A sama hált hefur löggjafarvaldið stuðlað að því að útrýma samkeppni á sviði landbúnaðarframleiðslunnar með tollvernd, innflutningshöftum og með því að stvðja á annan hátt sam- tök framleiðenda landbúnaðarvara til þess að lialda uppi háu verði á af- urðum sínum á innlendum markaði, t. d. með verðjöfnun, útflutnings- styrkjum o. s. frv. Þá má síðasl en ekki sízt nefna það, hvernig verkalýðssamlökunum hefur á síðustu árum tekizt að fá að- stoð löggjafarvaldsins til þess að liindra samkeppni á vinnumarkað- inum. Samkvæmt íslenzkum lögum er það nú t. d. blátt áfram ólöglegt að bjóða vinnu sína fvrir lægra verð en ráðamönnum fagfélaganna þókn- ast að krefjast. Nýlega hefur það meira að segja gerzt, að stjórn verka- mannafélags eins hér á landi liefur Jýst vfir verkfalli gegn yfirlýstum vilja þeirra, er verkfallið skyldu lieyja, og liggur ekki annað fyrir, er þetta er skrifað, en slikt liafi verið gert í skjóli laga og réttar! Hér verða þessi mál ekki rakin nánar, en aðeins bent á það, að brýna nauðsyn ber til, að afstaða löggjafar- valdsins til hagsmunasamtakanna breytist, ef hagsmunatogstreitan á ekki að leiða til þess, að nauðsjmlegt

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.