Samtíðin - 01.11.1955, Síða 8

Samtíðin - 01.11.1955, Síða 8
4 SAMTÍÐIN um finna hið rétta og örugga ráð, er bæði mun verða það ódýrt og auðvelt í notkun, að allt mannkynið getur veitt sér það. Veistu ? 1. Hver orti þetta: Bára blá að bjargi stígur og bjargi undir deyr. 2. Hver er höfundur sagnanna um Sherlock Holmes? 3. Hvað heitir höfuðborg Alaska ? 4. Hvað merkir Budapest? 5. Af hverju er orðið viski (whisky) dregið? Svörin eru á bls. 29. Efni þessa heftis : Á mannkynið að deyja úr hungri . . Bls. 3 Ástamál ...................•.....— 4 Kvennaþættir Freyju ............. — 5 Dægurlag mánaðarins ............. — 8 Skáldin kváðu (1. vísnaþáttur) .... — 9 Sigurjón frá Þorgeirsstöðum: Æsku- ást (saga) .................... — 10 Gréta Garbo (æviágrip) .......... — 12 Svíakonungur ráðgast við framlið- inn (framhaldssaga) ........... — 15 Ingólfur Davíðsson: Gamankvæði . . — 18 Sonja: Samtíðarhjónin............ — 19 Lýsing Þingeyjarsýslu (ritfregn) . . — 23 Árni M. Jónsson: Bridgeþáttur .... —25 Nýjar erlendar bækur ............ — 27 Skopsögur. — Getraunir o. m. fl . Forsíðumyndin er af ensku leikkonunni ANN TODD í kvikmyndinni „Græna slæðan“, sem sýnd verður í Gamla Bíó. . Ásiamál : Maður velur sér ekki dstvinu. Hún fellur honum í skaut. Einhver hefur bætt við: Fellur eins og þak- steinn í höfuð honum. — Claude Anel. Að elska er eitt skref í áttina til þess að finna ánægju í fullkomleik- anum. — Leibnitz. Hljóðfall ástarinnar er það eina, sem okkur er eftirlátið af máli paradísar. — Bulver-Lgtton. Lauslát kona er eins og smásagna- safn, þar sem formálinn er falleg- astur. Við fáum bókina léða og höf- um gaman af henni, og margir lesa hana með forvitni; hún er fljótles- in, og að lokum er hún orðin svo þvæld, að þeir seinustu, sem hafa hana handa milli, verða að láta sér nægja að lesa prentvilluskrána. — Sophie Arnould. Ef sá, sem hefur kysst konu einu sinni, kyssir hana ekki oftar, er hann óverðugur þeirrar gleði, sem hann öðlaðist. — Ovid. Ástin ætti að vera ánægja, en ekki pynding. — Napóleon 1. Hjónabandið verður alltaf bar- átta við tröll, sem allt vill eyðileggja — vanann. — Balsac. LESIÐ ásta- og kynjasögur Samtíðar- innar. Útfyllið og sendið okkur áskrift- arpöntunina neðst á bls. 2. Kraftur hins sunnlenzka gróðurs býr í smjörinu og ostunum frá okkur. Mjólkurbú Flóamanna

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.