Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 14

Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 14
10 SAMTÍÐIN 2.00. SAEA SAMTÍÐARINNAR ÍliIirÉ S'i^urjón jrá j-^orcfeiriitö&um: ÆSKTÁST UNGI MAÐURINN nagar penna- stöngina. Kennarinn bannaði að vísu strang- lega nemendum að tanna blýanta og pennastengur. En það geta komið fyrir þau augnablik, án þess að til sé að dreifa þjózku innræti, að heil- ræðin gleymist gjörsamlega. Rás við- burðanna er stundum duttlmigafull. Og ýms viðbrögð samleikaranna á sviði lífsins geta vei’kað eins og sprengikúla. Andlegt jafnvægi hi’yn- ur niður, likt og stafir úr gjarðalausri tunnu, og hugurinn verður í upp- námi. Ungi maðurinn stynur mæðulega. Hann hnykkir til höfðinu, hrekur hárlokk, sem laumazt hefur ofan í augu, aftur á hvirfilinn. Hann hleyp- ir í brýnnar og hamast að skrifa, tek- ur fjörkippi eins og ótaminn góð- hestur. Þess á milli rekur hann i vörður. Þá tekur hann sér hvíld, nagar pennastöngina og biður eftir andagiftinni. Hann er að skrifa bréf. Skriftin er stórkarlaleg, stafirnir hreint ekki á- ferðarfallegir. Fagurkerar mundu velta vöngum, rýna og ræskja sig, kalla rithöndina pírumpár. En hver, sem sér unga manninn að störfum, fengi sjálfsagt ómótstæðilega löngun til að kynnast því, sem hann hefur fest á pappírinn. Það er eitt af boðorðum siðmenn- ingarinnar að hnýsast ekki í einka- mál, sem verið er að trúa pappímum fyrir. Það er ein áf þeim siðareglum, sem mannkindin gæti haft í heiðri, án kinnroða. En hvað sagði sjálfur postulinn: „Það góða, sem ég vil, geri ég ekki.“ — Lesandinn getur tekið sér stöðu bak við unga mann- inn. Hann gæti staðið langt í burtu. Rréfið blasir við á borðinu. Stórir stafir mynda orð — orðin safnast saman í setningar. Og áður en þú veizt af, hefur eðlislæg forvitni frum- mannsins tætt af þér sýndarhjúp siðfágunarinnar. Þú stendur á gægj- um og lest bréfið: „Elsku vina mín. Ég verð að hripa þér línur. Þú sldlur. Við verðum að komast að einhverri niðurstöðu. Þetta getur ekki gengið. Sama sagan og áðan má ekki endurtakast. Ég veit það. Þú veizt það líka. Og mamma segir, að ef þetta komi fyrir oftar, þá-------- Hún sagði, að þá yrðum við að skilja. — Þú veizt ekki, vina mín, hvað mér þykir þetta leitt. Ég botna bara ekkert í því, hvemig þetta gat skeð. Ég við- urkenni fúslega, að ég var að stríða þér. Ef til vill hef ég líka kreist þig. En ég held, að ég hafi alls ekki klipið þig. Var það? En ég skil ekkert í þér, að þú skyldir taka þessu svona. Fyrr má nú vera. Fyrst reifstu mig i kinnina. Og svo beiztu mig í þumal- fingurinn. Það blæddi þó nokkuð úr skrámunum. Og sviðinn. Hann var agalegur — þangað til mamma rauð á mig græðandi smyrslum. Það er þó ekkert að finna til lík- amlegra þjáninga. Andlega liðanin er

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.