Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 18
14
SAMTÍÐIN
yrði falin upptaka annarrar Garbo-
myndarinnar, The Temptress, sem
þar var gerð. Hann hélt því heim
til Svíþjóðar, veikur og vonsvikinn,
og lézt nokkru seinna. En það er af
Grétu að segja, að með meðferð sinni
á fyrsta kvikmyndahlutverki sínu í
HollyWood í myndinni The Torrent,
kom hún þeim Metro- Goldwyn-
Mayer mönnum svo á óvart, að þeir
urðu alveg höggdofa af hrifningu,
enda varð hún nú í skjótri svipan
fræg um alla Vesturálfu.
Vel má vera, að henni hafi farið
eins og Mauritz Stiller, að hún hafi
verið frábitin Hollytwood og vitað er,
að aldrei hefur henni geðjazt að and-
rúmsloftinu þar. En hún unni list-
arstarfi sínu af heilum hug og hét
því að sigra á vettvangi kvikmynd-
anna. Metnaður hennar og starfs-
þrek vann bug á andúð hennar og
ímugusti. Hávaxin var hún og beina-
stór, gædd frumstæðum yndisþokka,
sem gagntók jafnvel harkalegustu
myndatökumenn. En hún hefur ekki
farið varhluta af þrálátum lasleika,
og er tilnefnd ennisholubólga, sem
oft reynist mjög þreytandi kvilli.
UM HÆFILEIKA Grétu Garbo
hefur sjaldan verið rætt, svo hafnir
eru þeir yfir allan vafa. Hins vegar
hefur þeim mun meira verið um
hana rætt á öðrum sviðum. Þessi
hlédræga kona, sem vön var að segja
að loknu starfi: „Nú Iangar mig til
að vera ein. Ég held ég fari heim“,
hefur ekki farið varhluta af ágengni
heimsins. Aðdáendurnir skildu ekki
hlédrægni leikkonunnar, sem oft var
eignuð annarlegum hvötum, einatt
talin auglýsingabragð og ekkert ann-
að. Mjög hefur skort á, að Gréta
Garbo hafi hlotið þann frið fyrir
ágangi fólks, sem hún hefur átt
kröfu til. Og mikið má vera, ef hún
hefur ekki heyrt undrunarópið, sem
ferðafólkið rak upp um daginn, er
það sá hana í Feneyjum! Hafði hún
þó ekki annað til saka unnið en að
ganga þar milli búðanna eins og
ferðamanna er siður.
Á fimmtugsafmæli leikkonunnar
koma fram í hugann nöfn nokkurra
helztu myndanna, sem hún hefur
leikið í, en þær eru auk þess, sem
áður er talið: Anna Christie, As You
Desire Me, Queen Christina, Anna
Karenina, Camille, Marie Walewska
og Ninotchka.
Hún hvarf frá leikstörfum, þegar
hæst hóaði og rýmdi þá fúslega fyrir
nýjum stjörnum. Nú lifir hún borg-
aralegu lífi trú æskusjónarmiði sínu
að þrá einförli. Hún iðkar af ástríðu
göngufarir, siglingar, sund og bók-
lestur og ann dýrum. Vinasnauð get-
ur hún auðvitað ekki lifað fremur en
annað fólk, en hún á fáa vini og er
vinavönd. Þeim, sem hafa gaman af
verulega góðum kvikmyndum,
verður oft hugsað til hennar með
saknaðarblandinni aðdáun, sænsku
stúlkunnar, er rejmdist svo sterk og
upphafin í list sinni, að Ameríku-
menn kenndu um skeið ættjörð henn-
ar ýmist við hana eða sjálfa miðnæt-
ursólina.
ALLAR BÍLAVÖRUR
verður hagkvæmast að kaupa hjá
KRISTNI GUÐNASYNI
Klapparstíg 27. — Sími 2314.