Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN
17
„Kom fljótt! Kom fljótt! Kom
fljótt!
úr kjarri eða skógi eða dal
og segðu Svíakonungi
örlög hans öll fyrir.“
Því næst brenndi hann nokkrar
alveg sérstaklega þar til gerðar jurt-
ir, signdi sig þrisvar og stóð svo graf-
kyrr.
Hann beið stundarkorn og honum
varð mjög kalt. Hann fór að halda,
að honum hefði orðið eitthvað á í
messunni og að elckert myndi gerast.
En allt í einu fann hann, að hönd
var lögð léttilega á öxl honum, og
er hann leit við, sá hann, hvar litill
maður gráklæddur stóð fyrir aftan
hann.
Konungi varð svo felmt við þessa
sýn, að hann hörfaði ósjálfrátt aftur
á bak fyrir vofunni, en þá tók rödd
allt í einu til máls. Það var alveg
tvímælalaust kvenmannsrödd, og hún
virtist koma úr fjarlægð. Það var
eins og hún væri að tala við þriðja
manninn. Röddin sagði: „Svíþjóð á
sér mjög fljótfæran og þrákelknis-
legan konung. Hann hefur að
vísu getið sér góðan orðstir og er
ágætum hæfileikum búinn, en hann
mun stofna öllu í hættu með hóflausu
sjálfsáliti sínu.“
Meðan röddin mælti þess orð, stóð
litli gráklæddi maðurinn við hlið
konungs með höndina á öxl honum.
Það var náköld hönd, svo jökulköld,
að kuldann frá henni lagði gegnum
þykk herklæðin.
Röddin þagnaði nú, og þá fann
konungur, að honum var ekki leng-
ur varnað máls, enda þótt rödd hans
væri mjög óstyrk. Iskrandi stormur-
inn virtist lcæfa hana, en feykja orð-
unum langt, langt burt út í óra-
fjarlægð.
Niðurl. í næsta hefti.
------•-----
3. STAFALEIKUR
ÞETTA er mjög auðveldur stafa-
leikur. Þú átt aðeins að skipta um
einn staf frá orði til orðs. Við gefum
þér efsta orðið og merkingu orð-
anna, sem þú átt að setja í stað
punktanna, þannig að í neðsta orð-
inu hafi verið skipt um alla stafi
efsta orðsins.
KIND MERKINGAR
.... andlitshluti
.... get
.... neitun
.... lífvera
Ráðningin er á hls. 29.
Frœgir orðskviðir
Hvað yrði eftir, ef allir fengju
óskir sínar uppfylltar?
Hugsjónalaus maður er vesæll
aumingi.
Dugandi stjórnmálamaður snýr
ávallt vörn í sókn.
Drykkjumaðurinn fjargviðrast yfir
háu verði á nauðsynjavörum.
Ástin er yndisleg hjartveiki.
AIls konar bólstruð húsgögn ávallt
fyrirliggjandi.
Vönduð vinna. Hagstætt verð.
Húsgagnabólstrun
Gunnars Mekkínóssonar Frakkastíg 7.