Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN
27
Výjar et'lehctar bœkur
GYLDENDAL í Khöfn hefur sent
okkur 5 listaverkabækur til viðbótar
þeim 6, sem áður voru komnar, úr
ritsafninu Malerkunstens Mestre. Ný-
komnu bækumar geyma verk eftir
meistarana Degas, Gauguin, Manet,
Utrillo og Rubens. 1 hverri bók er
fjöldi litmynda eftir meistarann, en
auk þess margar myndir, prentaðar
í dökkum lit, og ýtarlegar skýringar
fylgja. Kunnir, danskir listfræðingar
skrifa æviágrip listmálaranna. Rit-
safn þetta er hið vandaðasta og lit-
prentun listaverkanna einkar haglega
gerð. Verðið er ótrúlega lágt, d. kr.
4.90 á bók.
Áse Gruda Skard: Vore Unger
og kunsten af gore mennesker af
dem. Þetta er þörf bók. 1 60 stuttum
og læsilegum greinum (upphaflega
blaðagreinum) er gripið á ýmsum
helztu atriðum varðandi bamaupp-
eldi, sem uppeldisfræðingar nefna
tíðast vandamál, en skemmtilegra
væri aðkalla viðfangsefni. Frú Skard
er dóttir hins kunna, norska prófess-
ors og stjórnmálamanns Halvdans
Kohts, en gift Sigmund Skard, pró-
fessor í amerískum bókmenntum við
Öslóarháskóla. Sjálf er frúin dósent
í sálarfræði við háskólann i ósló, rit-
stjóri uppeldismálatímarits, meðlim-
ur í barnaverndarráði Noregs, og
hver veit hvað og hefur látið rit-
störf mikið til sín taka. Allt þetta
ætti að vera nokkur trygging fyrir
því, að hún kunni að skrifa bók.
Hitt skiptir þó ekki síður máli, að
hún er móðir allstórs barnahóps, því
SKÓSALAN
Laugavegi 1.
VOLTI
VINNUR
VEL
ALLS KONAR
aflagnir
afvélaverkstæði
afvéla- og
aftækjaviðgerðir
VOLTI
raf tæk j averkstæði
Norðurstíg 3 A.
Reykjavík.
Sími 6458.