Samtíðin - 01.11.1955, Qupperneq 12

Samtíðin - 01.11.1955, Qupperneq 12
8 SAMTÍÐIN inn í ofn, sem er volgur, og látnir vera þar í 30—40 mínútur. Þegar botnarnir eru orðnir kaldir eða því sem næst, eru þeir telrnir úr formunum og niðursoðnir eða soðn- ir ávextir settir á milli þeirra ásamt þeyttum rjóma eða vanilluís. Svæk í Þjóðleikhúsinu ' j i ( • i I ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir um þessar mundir „Góða dátann Svæk“, leikrit, sem Karl ísfeld hefur umsamið eftir þýðingu sinni af hinni ágætu sögu Haseks með hliðsjón af leikriti Evans MacColls. — Leikstjóri er Indriði Waage, en með hlut- verlc Svæks fer með mikilli prýði einn af okkar snjöllustu yngri leikurum, Róbert Arnfinnsson, og sést hann hér á myndinni í gervi dátans. — Öll er þessi umsvifa- mikla leiksýning leikhúsinu til sóma. MUN I Ð Nora Magasín acjitexti mdnaóariná Hið undursamlega ævintýr Allt mun ganga greitt, á morgun gleðihnoss þér veitt, á morgun. Lát því aldrei hryggðarhag hugann buga um sólarlag. Lífið hefur breytt um brag, á morgun. Sólin gyllir sund, á morgun. Söngvar ylja lund, á morgun. Ekkert varir ár og síð, já, ekki heldur sorg og stríð, þín mun bíða betri tíð, á morgun. Svo reifast rökkurhjúpi þá rós hver og ský. Af dökkvans þögla djúpi rís dagur á ný ... Þér leikur allt í lyndi, á morgun, þín bíður ást og yndi, á morgun. Aldrei stund nein aftur snýr, en yfir vonatöfrum býr hið undursamlega ævintýr, á morgun. L. Guðmundsson. SAIVXAÐU TIL: að Jtað er ekki síður liægt að þekkja mann af óvinurn lians en vinum. ♦ að smjaðrari mundi aldrei segja það um þig, sem hann segir við þig. ♦ að líf, sem væri eintóm sæla, væri al- veg óþolandi. ♦ að aðrir menn hafa áhuga fyrir þér, ef þú átt þér áhugamál sjálfur. ♦ að þú yrðir óðara vitskertur, ef þú myndir allt, sem fyrir þig kemur. -----•------- ÍSLENZKAR KONUR. Lesið kvennaþætti Samtíðarinnar. Gerizt áskrifendur. Mun- ið: 10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. Send- ið okkur áskriftarbeiðnina neðst á bls. 2.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.