Samtíðin - 01.11.1955, Blaðsíða 17
SAMTÍÐIN
13
maður. Hins vegar voru teknar af
henni myndir og birtar, er verið var
að auglýsa nýjar hattagerðir. Brá þá
svo við, að sérhver hattur sýndist
fagur og seldist óðara, er hann prýddi
hið yndislega höfuð búðarstúlkunn-
ar.
Upp úr þessu vill svo til, að hún
er beðin að leika smáhlutverk í aug-
lýsingkvikmynd og seinna í grín-
mynd. Duldist engum, er sá mynd-
imar, fegurð hennar, en jafnframt
stakk virðuleg alvara hennar mjög í
stúf við það, sem menn áttu þá að
venjast á þessum vettvangi. Enn kom
það til, hve greind hún var og fljót
að átta sig á kröfum leikstjóra sinna.
Allt þetta leiddi til þess, að henni var
ráðlagt að ganga leiklistarbrautina.
Tókst henni að komast inn í Kgl.
leildistarskólann í Stokkhólmi, en
eldri bróðir hennar studdi hana fjár-
hagslega til námsins. Ekki hafði
Gréta Gustafsson, eins og hún hét
um þær mundir, verið nema 6 mán-
uði í skólanum, er hinn ágæti kvik-
myndagerðarmaður, Mauritz Stiller,
valdi hana til að fara með eitt veiga-
mesta kvenhlutverk stærstu kvik-
myndar, sem honum hafði verið falið
að taka, Sögu Gösta Berlings, byggðri
á samnefndri skáldsögu eftir Selmu
Lagerlöf.
Þannig hófst leikferill, sem ekki á
sinn líka í kvikmyndaheiminum.
Gréta hóf leikstarf sitt upp úr öldu-
dal hefðbundinnar venju, gæddi það
seiðmögnúðum virðuleik guðdóm-
legrar fegurðar og ógleymanlegs
persónuleika. Hún fór sér að engu
óðslega, en leyfði persónum þeim,
sem hún skóp á léreftinu, að færast
sjálfkrafa í aukana, opinbera skap-
ferð sína og höfða svo þráðbeint til
skilnings áhorfendanna, að þeir sátu
í myrkvuðum sölum kvikmyndahús-
anna gagnteknir og allir á valdi
hinnar djúpúðgu fegurðardísar, sem
hreif þá með fyrirmannlegu hæglæti
sínu.
Já, þetta var listin, sú heilaga, háa,
að hækkast ei yfir hið daglega, lága....
Kvikmyndtúlkunin hafði hlotið
æðri endurnýjun.
LEIKKONAN hafði nú skilið við
bernskuheim sinn. Að hætti margra
kvikmyndadísa skipti hún um nafn.
Föðurnafnið Gustafsson, sem er
fremur almúgalegt í Svíþjóð, þokaði
fyrir nýju nafni: Garbo.
Árið 1925 fór Mauritz Stiller með
Grétu til Berlínar og lét hana fara
þar með hlutverk í myndinni The
Joyless Street (nöfn myndanna verða
birt á ensku). Þar naut hún leik-
stjómar hins ágæta listamanns,
Pabst. Meðan þessu fór fram, komu
boð eftir Stiller frá Metro-Gold’wyn-
Mayer kvikmyndatökufélaginu í
Hollywood, sem hauð honum ráðn-
ingarsamning með vildarkjörum.
Stiller gerði það að ófrávíkjanlegu
sldlyrði fyrir vesturför sinni, að hin
nýja, sænska stjarna, Gréta Garbo,
kæmi með sér og fengi hlutverk.
Louis B. Mayer hafði engan áhuga
fyrir Grétu, en vildi fyrir hvern mun
fá Stiller, svo að hann leyfði honum
að hafa leikkonuna með sér.
Stiller féll ekki vistin í Hollywood,
svo að elckert varð úr því, að honum