Fréttablaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 64
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Jogastudio.org
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
LAUGARD. 11 – 16
SUNNUD. 13 – 16 Faxafen 12 S. 533-1550.
LAGER
ALSA
á völdu
m vetra
rvörum
1 Skemmdarverk unnin á bíl og
húsi Íslendings í Bretlandi
2 Björgunarafrek Guðmundar:
„Þessi saga kom mér ekki á …“
3 Femínistar fagna dræmri sölu
á Barbie-dúkkum
4 Ný stjórn skipuð í
Íslandsbanka
5 Stálu bíl af einstæðri móður
yfir jólin
Endurnærðar löggur
Lögreglublaðið kom út á dögunum,
sneisafullt af efni eins og venju-
lega. Á baksíðu blaðsins er auglýst
krem sem þykir sérstaklega endur-
nærandi og er því lofað að það losi
við þreytulegt útlit. Þykir auglýs-
ingin við hæfi enda niðurskurður
fram undan hjá lögreglunni
eins og annars
staðar, en ýmsir
hafa stigið fram og
lýst yfir áhyggjum af
mönnum Stefáns
Eiríkssonar.
Kremið leysir
væntanlega
ekki vandamál
kreppunnar, en
endurnærðir og
frískir lögreglu-
menn verða
vonandi áberandi
á næstunni.
Fréttastofa ríkissjóðs
Kristófer Svavarssyni varð á í
messunni á dögunum þegar hann
las fréttir Ríkisútvarpsins. Í upphafi
fréttatímans kynnti hann sjálfan
sig og sagði fréttirnar vera frá
fréttastofu ríkissjóðs. Þrátt fyrir að
treysta á fjárveitingar frá sjóðnum
þá skulum við vona að fréttastofan
ætli ekki að taka skrefið til fulls á
næstunni með nafnbreytingu ...
Jarðarför aldarinnar
Uppistandarinn Ari Eldjárn hefur
vakið talsverða athygli með uppi-
standshópnum Mið-Ísland. Hann
gaf á dögunum út plötuna Grín
Skrín sem er ávöxtur vinnu sem
fór að mestu leyti fram á dimmum
kvöldum að hefðbundnum vinnu-
degi loknum. Á
Youtube má finna
grínið Jarðarför
aldarinnar af
plötunni, en það
fer nú eins og
eldur í sinu milli
fólks á samskipta-
síðum. - afb