Fréttablaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 32
28. desember 2009 MÁNUDAGUR4
Mér finnst jólin rosalega skemmtileg og hef
gaman af því að skreyta,“ segir glæpasagna-
höfundurinn Yrsa Sigurðardóttir, sem einmitt
gefur út sína tíundu bók nú fyrir jólin.
„Er það satt sem ég hef heyrt að þú kaup-
ir alltaf risastórt jólatré og skreytir það með
3.000 ljósaperum,“ spyr blaðamaður ísmeygi-
lega eins og það sé einhver glæpur. „Já, já,
það er alveg satt,“ játar Yrsa eins og ekkert
sé eðlilegra. „Þetta byrjaði þannig að í garð-
inum okkar voru svo mörg jólatré að hann
þurfti að grisja. Maðurinn minn og ég felld-
um þrjú og færðum þau inn í hús og skreytt-
um.“ Blaðamaður hváir og ósjálfrátt missir
hann út úr sér: „Þrjú?“ Yrsa lætur það ekk-
ert á sig fá og heldur áfram. „Já, þrjú og við
skreyttum þau öll. Þetta var mjög jólalegt.
En þetta voru bara þessi einu jól en eftir þau
átti ég svo mikið af jólaljósum og skrauti að
ég ákvað að kaupa eitt stórt jólatré og skreyta
það. Ég skreyti það mjög þétt og já, það fara
að minnsta kosti um 3.000 ljósaperur á það en
það er afskaplega fallegt og þess virði, þótt
fingur verði aumir og rispaðir í nokkra daga,“
segir hún og hlær.
Það er ljóst að Yrsa er ein af þeim sem sitja
aldrei með hendur í skauti. Þegar hún er ekki
að vinna sem verkfræðingur, þá skrifar hún
glæpasögur og þegar hún er búin að senda
frá sér bók tekur við annað risastórt verk-
efni – sem sagt skreyting jólatrés sem myndi
sóma sér vel á hvaða jólatrésskemmtun sem
er. „Jú, jú, ég tek mér frí á aðfangadag,“ segir
hún og hlær.
„Desembermánuður er oft annasamur
ef ég er að gefa út bók eins og núna, en það
er glæpasagan, Horfðu á mig. Það þarf að
fylgja bókunum úr hlaði og jafnvel þótt þetta
sé tíunda bókin mín þá virðist ég seint venj-
ast þessu. Mér finnst alltaf jafnskrítið að sjá
umfjöllun um mig eða bækurnar mínar í fjöl-
miðlum.“
En ætlarðu einhvern tímann að skrifa
glæpasögu sem gerist um jól? „Ja, ég bara
veit það ekki. En reyndar er bókarkápan í ár
mjög hátíðleg en það er reyndar bara tilvilj-
un. En jú, glæpir gerast líka um hátíðir.“
unnur@frettabladid.is
Skreytir greinar þrjú
þúsund jólaljósum
Yrsa Sigurðardóttir er kona sem hugsar stórt. Einu sinni hafði hún þrjú jólatré í stofunni
hjá sér en nú hefur hún aðeins eitt. En þetta aðeins eina er reyndar risastórt og það skreyt-
ir hún hvorki meira né minna en með 3.000 jólaljósum!
Yrsa með hundana sína Pillu og Palla fyrir framan skrautlegt jólatréð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mikið verk er að skreyta jólatréð fína en Yrsa telur það
ekki eftir sér þó fingur hennar verði aumir og rispaðir.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Chesterfield leðursett 3+1+1
Bonn Man-8205
Köln 3+1+1
aspen boston-luxBonn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
man-75 leður bogasófi
Fusite -6731 Leðursett 3+1+1
p-8185 Hornsófi 2H2
295.1
10 kr
Verð
áður
327.9
00kr
299.9
00 kr
Verð
áður
469.0
00kr
199.9
50 kr
Verð
áður
399.0
00kr
Við framleiðum
hornsófa, tungusófa
sófasett og staka sófa
eftir óskum hvers og eins.
Mikið úrval af áklæðum
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...