Fréttablaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 56
48 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
Opnunartímar
Í dag 12.00 - 22.00
29. des. 10.00 - 22.00
30. des. 10.00 - 22.00
31. des. 10.00 - 16.00
06. jan. 10.00 - 18.00
Blaze and ice
100 skota
Verð kr. 20.000
Flugfélags Íslands Deildarb.
Undanúrslit kvenna
Valur-Haukar 31-26* (15-14)
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 11, Brynja
Steinsen 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4,
Ágústa Edda Björnsdóttir 2, Íris Ásta Péturs
dóttir 2, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Nína Kristín
Björnsdóttir 2/2, Soffía Rut Gísladóttir 1, Arndís
María Erlingsdóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1.
Sunneve Einarsdóttir varði 17 skot.
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 10, Erna Þráins
dóttir 8, Ester Óskarsdóttir 3, Erla Eiríksdóttir 1,
Sandra Sif Sigurðardóttir 1, Tatiana Zukovska 1,
Þórunn Friðriksdóttir 1, Tinna Guðrún Barkardóttir
1. Bryndís Jónsdóttir varði 23 skot.
* Haukar unnu leikinn 10-0 á kæru og
spila því til úrslita í dag.
Stjarnan-Fram 24-26 (16-12)
Mörk Stjörnunnar: Alina Tamasan 10/5, Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 6, Esther Ragnarsdóttir 3, Þórhildur
Gunnarsdóttir 2, Kristín Clausen 2, Elísabet
Gunnarsdóttir 1. Florentina Stanciu varði 17/3
Mörk Fram: Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 7, Karen
Knútsdóttir 6, Stella Sigurðardóttir 4/1, Ásta Birna
Gunnarsdóttir 3, Anna María Guðmundsdóttir
2, Marthe Sördal 2, Hafdís Hinriksdóttir 2. Varin
skot: Íris Björk Símonardóttir 12/1.
Saga úrslitaleikja kvenna
2006 Valur-ÍBV 26-24
2007 vor Stjarnan-Grótta 25-23
2007 jól Valur-Fram 26-21
2008 jól Stjarnan-Haukar 28-27
2009 jól Haukar-Stjarnan Í dag
Útskurður HSÍ í máli Nínu Kristínar
Björnsdóttur:
„Stjórn HSÍ hefur verið tilkynnt að
Valur hafi notast við ólöglegan
leikmann í leik Vals og Hauka í deild-
arbikar HSÍ 27.12.09
Þegar leikskýrsla leiksins er skoðuð
er skráð í lið Vals leikmaður nr. 27,
Nína K. Björnsdóttir. Sá leikmað-
ur er skráður í Hauka með gildan
leikmannasamning til 30.06.2010
og getur ekki fengið leikheimild
með Val fyrr en 07.01.2010. Að vel
athuguðu máli er framkvæmdastjóra
HSÍ ekki annað fært en að úrskurða
Haukum 10-0 sigur í leiknum.”
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI „Við sýndum alveg
hrikalega góðan karakter að klára
þetta. Ég er rosalega ánægð-
ur með stelpurnar að hafa snúið
þessu við,“ sagði Einar Jónsson,
þjálfari Fram, eftir 26-24 sigur á
Stjörnunni í stórskemmtilegum
leik í gær. Fátt virtist benda til
annars í fyrri hálfleik en Stjarn-
an myndi vinna frekar þægilegan
sigur. Garðabæjarstelpur voru 16-
12 yfir í hálfleik.
„Margt var ekki að ganga upp
hjá okkur í þessum leik og því er
ég mjög ánægður með að hafa
unnið hér tveggja marka sigur.
Það sem breytti þessu var varn-
arleikurinn í seinni hálfleik. Við
breyttum um varnarleik og hugar-
farið og sjálfstraustið varð miklu
meira,“ sagði Einar.
Stjarnan virtist vera með leik-
inn í höndum sér í fyrri hálfleikn-
um en Framliðið fór á kostum í
seinni hálfleik. Mikil spenna var
í lokin og hitinn í íþróttahúsinu
við Strandgötu rauk upp. Staðan
var 24-24 þegar skammt var eftir
en síðustu tvö mörk leiksins komu
frá Safamýrarliðinu.
Einar var mjög líflegur á
bekknum og lét mikið í sér heyra.
„Þetta var frábær handboltadag-
ur og flott að enda þetta á svona
flottum leik milli tveggja liða sem
hafa marga hildi háð. Ég held að
áhorfendur hafi vel fyrir pening-
inn sinn og rúmlega það,“ sagði
Einar.
Valskonur fá ekki að spila til
úrslita í keppninni þrátt fyrir að
hafa unnið 31-26 sigur á Haukum í
hinum undanúrslitaleiknum í gær.
Nína Kristín Björnsdóttir lék með
Val þrátt fyrir að vera ekki komin
með leikheimild. Hún er að skipta
í Val úr Haukum en fær ekki leik-
heimild fyrr en eftir áramót.
Gaman að mæta Haukum
„Það verður mjög gaman að mæta
Haukaliðinu. Við mættum því í
úrslitakeppninni á síðasta tímabili
og lögðum þær þar og líka í deild-
inni í vetur. Þær koma dýrvitlaus-
ar til þessa úrslitaleiks. Það er tit-
ill í boði,“ sagði Einar.
Gústaf Adolf Björnsson stýrði
Stjörnuliðinu í gær þar sem Atli
Hilmarsson er staddur erlendis.
Elísabet Gunnarsdóttir, fyrirliði
Stjörnuliðsins, var súr á svip eftir
leikinn.
„Ég bara hreinlega veit ekki
hvað gerðist. Við vorum komnar í
svo þægilega stöðu en svo hættum
við að sækja af sama krafti. Það
sem var inni í fyrri hálfleik var
hætt að detta inn. Svo voru tækni-
mistökin of mörg og það varð
okkur að falli,“ sagði Elísabet.
Hún vill ekki skrifa tapið á
kæruleysi. „Við vissum vel hvað
var undir svo ég get ekki skrif-
að þetta á neitt kæruleysi. Fyrri
og seinni hálfleikurinn var eins
og svart og hvítt. Þegar það voru
einhverjar þrjár mínútur eftir ná
þær að skora úr einhverju frákasti
sem ég skil ekki. Við áttum aldrei
að missa þennan leik svona úr
höndunum á okkur,“ sagði Elísa-
bet Gunnarsdóttir.
Stórleikur Hrafnhildar
Hrafnhildur Skúladóttir átti stór-
leik í fyrri leiknum sem Valsliðið
vann 31-26 en hún skoraði 11 mörk
í öllum regnbogaslitum í leiknum.
Valsliðið vann sig inn í leikinn
eftir slaka byrjun en eftir leikinn
kom í ljós að Haukar höfðu kært
þátttöku Nínu Kristínar Björns-
dóttur og að Valsliðið fengi ekki
að spila til úrslita í dag.
elvargeir@frettabladid.is
Frábær endurkoma Framkvenna
Það verða Haukar og Fram sem mætast í úrslitaleik deildabikars kvenna. Haukakonur töpuðu fyrir Val í
gær en Valsliðið var með ólöglegan leikmann. Allir voru löglegir þegar Fram vann Stjörnuna.
GÓÐ HÁLFLEIKSRÆÐA Einar Jónsson náði að vekja sínar stelpur í hálfleik. Hér rekur
hann þær áfram í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MARKAHÆST Guðrún Þóra Hálfdánar-
dóttir skorar eitt af sjö mörkum sínum á
móti Stjörnunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI