Fréttablaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 28.12.2009, Blaðsíða 54
46 28. desember 2009 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt sjötta mark á tímabil- inu þegar hann tryggði Reading 1-1 jafntefli á móti Swansea á laugardaginn. Gylfi Þór skoraði markið beint úr aukaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. „Þetta var ágætis mark. Skot- ið fór rétt yfir vegginn og mark- maðurinn náði þessu ekki,“ lýsir Gylfi markinu sínu í leiknum. „Þrátt fyrir að þetta hafi verið gott mark þá hef ég skorað nokk- ur flottari,“ segir Gylfi spurður hvort markið um helgina komist í hóp með þeim bestu sem hann hefur skorað. „Ég er búinn að skora áður beint úr aukaspyrnu á tímabilinu því ég skoraði þannig mark á móti Peterborough í deild- inni,“ sagði Gylfi sem er marka- hæsti leikmaður Reading á tíma- bilinu ásamt Grzegorz Rasiak. „Það gengur mjög vel hjá mér að skora en við þurfum að fara að taka einhver stig og vinna ein- hverja leiki,“ segir Gylfi. „Þeir eru í fimmta sæti í deild- inni þannig að þeir eru með mjög gott lið. Þetta voru kannski sann- gjörn úrslit en við vorum að spila á heimavelli og vildum fá þrjú stig,“ sagði Gylfi sem átti möguleika á að skora sigurmarkið í seinni hálfleik en Dorus de Vries, mark- vörður Swansea, varði þá vel frá honum. Gylfi tekur næstum því allar aukaspyrnur fyrir Reading og það breytist ekki í bráð eftir markið á laugardaginn. „Ég hef tekið flestar auka- spyrnur í vetur eftir að ég kom inn í liðið. Maður fær alltaf nokk- ur tækifæri í hverjum leik til að skjóta á markið,“ segir Gylfi. „Ívar var eitthvað að biðja um að fá að taka einhverjar aukaspyrn- ur en ég held að hann sleppi því nú eftir þennan leik,“ sagði Gylfi í léttum tón. Gylfi lék allan leikinn með Reading alveg eins og landar hans Ívar Ingimarsson og Brynj- ar Björn Gunnarsson. „Ég held að þetta sé fyrsti leik- urinn sem við spilum allir á þessu tímabili. Brynjar var að spila sem bakvörð- ur þar sem hægri bakvörð- urinn okkar var smá meidd- ur. Brynjar spilaði mjög vel þannig að ég býst ekki við öðru en að hann spili líka á móti Plymouth á morgun [í dag],“ segir Gylfi og bætir við: „Það verða því mjög líklega fjórir Íslendingar á vellinum sem gerist ekki oft hérna úti,“ segir Gylfi. Kári Árnason og félag- ar í Plymouth unnu lang- þráðan en jafnframt óvæntan sigur þegar liðið vann 1-0 útisigur á Cardiff sem var í 4. sæti deildarinnar. Kári lék allan leikinn í miðverð- inum og stóð sig vel. Gylfi og félagar í Reading koma síðan í heimsókn í dag þegar liðin mætast í mikilvæg- um leik í fallbarátt- unni. - óój Gylfi Þór Sigurðsson skoraði jöfnunarmark Reading á laugardaginnn með skoti beint úr aukaspyrnu: Ég hef skorað flottari mörk en þetta SEX MÖRK Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað vel með Reading á tímabil- inu. Enska úrvalsdeildin BURNLEY-BOLTON 1-1 0-1 Gary Cahill (28.), 1-1 David Nugent (55.). Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn. LIVERPOOL - WOLVES 2-0 1-0 Steven Gerrard (61.), 2-0 Yossi Benayoun (69.). MANCHESTER CITY-STOKE CITY 2-0 1-0 Martin Petrov (27.), 2-0 Carlos Tevez (47.). SUNDERLAND-EVERTON 1-1 1-0 Darren Bent (16.), 1-1 Marouane Fellaini (84.). WEST HAM - PORTSMOUTH 2-0 1-0 Alessandro Diamanti (22.), 2-0 Radoslav Kovác (88.). Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Portsmouth. WIGAN-BLACKBURN ROVERS 1-1 0-1 Benni McCarthy (29.), 1-1 Hugo Rodallega (52.) ARSENAL - ASTON VILLA 3-0 1-0 Cesc Fabregas (64.), 2-0 Cesc Fabregas (80.), 3-0 Abou Diaby (90.). HULL CITY - MANCHESTER UNITED 1-3 0-1 Wayne Rooney (46.), 1-1 Craig Fagan (58.), 1-2 Sjálfsmark (73.), 1-3 Dimitar Berbatov (81.) STAÐAN: Chelsea 19 13 3 3 43-15 42 Man. United 19 13 1 5 40-18 40 Arsenal 18 12 2 4 47-20 38 Aston Villa 19 10 5 4 29-17 35 ----------------------------------------------------------- Tottenham 19 10 4 5 40-22 34 Man. City 18 8 8 2 35-27 32 Liverpool 19 9 3 7 36-25 30 Birmingham 19 8 5 6 19-18 29 Fulham 18 7 6 5 23-17 27 Sunderland 19 6 4 9 26-29 22 Stoke City 18 5 6 7 15-22 21 Blackburn 19 5 5 9 18-33 20 Burnley 19 5 5 9 22-38 20 Everton 18 4 7 7 24-32 19 Wolves 19 5 4 10 17-33 19 Wigan 18 5 4 9 21-39 19 West Ham 19 4 6 9 28-35 18 ----------------------------------------------------------- Bolton 17 4 5 8 24-34 17 Hull City 19 4 5 10 18-40 17 Portsmouth 19 4 2 13 17-28 14 Leikirnir í dag: Tottenham-West Ham United (Klukkan: 12:45), Blackburn-Sunderland, Chelsea FC Fulham, Everton-Burnley, Stoke-Birmingham (15:00) og Wolves-Manchester City (19:45). Á morgun mætast: Aston Villa-Liverpool og Bolton-Hull City ENSKI BOLTINN KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar- son og félagar í Sundsvall fylgdu 84-77 sigri á Solna eftir með því að vinna 87-75 sigur á Gothia rétt fyrir jól. Með sigrinum komst Sundsvall upp í 2. sætið. Norrköping hefur stungið aðeins af en á meðan harðnar baráttan um annað sætið milli Sundsvall, Solna og Plannja. Jakon skoraði 24 stig í sigrin- um á Solna og var með 19 stig og 67 prósenta skotnýtingu í sigrin- um á Gothia. - óój Sænski körfuboltinn: Jakob og félagar upp í 2. sætið GÓÐUR Jakob Örn Sigurðarson hefur spilað vel með Sundsvall. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Íslandsmeistarar KR-inga skelltu sér til Kína skömmu fyrir jól og léku tvo sýningarleiki á móti Peking Aoshen. Miðherjinn Jón Orri Kristj- ánsson blómstraði í ferðinni og var með 26 stig og 18 fráköst samanlagt í leikjunum tveimur. Jón Orri sprakk út hinum megin á hnettinum eftir að hafa aðeins verið með 3,9 stig og 3,1 frákast að meðaltali í fyrstu 9 deildarleikjum sínum með Vesturbæjarliðinu. „Mér hlýtur bara að líða bara svona vel í Kína,“ segir Jón Orri í léttum tón en segir síðan: „Þetta var svolítið öðru- vísi körfubolti. Þeir slógu okkur, klipu og rifu í okkur og ég fann mig bara vel í þessum aðstæðum,“ segir Jón Orri sem er þekktur baráttumaður sem gefur ekkert eftir inni á vellinum. „Það var hrikalega gaman að koma til Kína og fá tækifæri til þess að komast inn í annan heim,“ rifjar Jón Orri upp. „Ég held að það sé á hreinu að hópurinn náði að þjappa sér betur saman i þess- ari ferð. Það eru fimm eða sex leikmenn sem hafa ekkert spilað með KR áður þannig að við máttum alveg við því að kynnast örlítið betur,“ segir Jón Orri. Hann vissi það líka best sjálfur að hann getur betur en hann hefur sýnt í leikjunum hér heima. „Ég er búinn að vera glataður í vetur og get ekkert hlaupið í felur með það. Ég er að komast í betra og betra form og ég hlýt bara að fara að finna mig betur. Ég var betri með Þór í fyrra og er í miklu betra formi núna. Eigum við ekki að segja að ég sé að bíða eftir því að úrslitakeppnin byrji,“ segir Jón Orri. Hann á í harðri sam- keppni við fyrirliðann Fannar Ólafsson og Finn Atla Magnús- son. „Þetta á að vera okkar styrkleiki að vera með þrjá stóra og sterka menn enda höfum við verið að taka fleiri fráköst en flest lið. Fannar og Finnur eru báðir búnir að spila brjál- æðislega vel. Ég hlýt að detta inn bráðum,“ segir Jón Orri. Jón Orri fékk strax viðurnefnið Kína-Jón eftir að hafa spilað svona vel í leikjunum á móti Peking Aoshen. „Þeir vonuðust til að Kína-Jón kæmi heim en ekki íslenski Jón. Ég á enn eftir að sýna það hvor maðurinn kom aftur heima frá Kína en strákarnir í KR-liðinu sögðust kunna miklu betur við Kína-Jón,“ segir Jón Orri hlæjandi. JÓN ORRI KRISTJÁNSSON: KALLAÐUR KÍNA-JÓN EFTIR GÓÐA FRAMMISTÖÐU MEÐ KR-LIÐINU Í KÍNAFERÐINNI Vonuðust til að Kína-Jón kæmi með heim > Jón Arnór hefur góð áhrif CB Granada vann í gær sinn annan leik í röð í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar liðið vann 83-76 sigur á Fuenlabrada á útivelli. Þetta var þriðji leikurinn hjá Jóni Arnóri síðan hann sneri til baka úr meiðslunum og því ljóst að Íslendingurinn er strax farinn að hafa góð áhrif á Granada-liðið sem var búið að tapa nokkrum leikjum í röð fyrir endurkomu hans. Jón Arnór var með 6 stig og 2 stoðsendingar á 22 mínútum og spilaði lokamínútur leiksins þegar Granada landaði sigrinum. FÓTBOLTI Spennan magnaðist á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar en topp- lið Chelsea varð enn á ný að sjá á eftir stigum þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Birm- ingham. Manchester United nýtti sér þetta með því að minnka for- skot lærisveina Carlo Ancelotti í aðeins tvö stig og 3-0 sigur Arsen- al á Aston Villa þýðir að mennirn- ir hans Arsene Wenger eru aðeins fjórum stigum á eftir Chelsea og eiga að auki leik inni. Manchester United komst aftur á sigurbraut eftir 3-1 sigur á Hull á útivelli. Wayne Rooney lagði upp tvö mörk á síðustu 17 mínútunum og sá til þess að mistök sín kost- uðu ekki Manchester United stig. Rooney skoraði fyrsta markið og átti því þátt í öllum mörkum sinna manna í leiknum. „Þeir skoruðu markið eftir mín mistök og stjórinn hefði ekki verið ánægður með mig ef við hefðum ekki unnið,“ sagði Rooney eftir leikinn. „Þetta er geðveik deild, fullt af liðum að tapa stigum og þetta er orðið mjög jafnt. Vonandi náum við upp meiri stöðugleika í seinni hlutanum,“ sagði Wayne Rooney. Arsenal vann 3-0 sigur á Aston Villa í baráttu lið- anna í 3. og 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal- liðsins, byrjaði á bekknum en kom inn á og skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum. Fabregas skoraði glæsimark beint úr aukaspyrnu aðeins átta mínútum eftir að hann kom inn í leikinn í seinni hálfleik og gerði síðan seinna markið sitt níu mín- útum fyrir leikslok eftir frábæra sendingu frá Theo Walcott. Fabre- gas meiddist um leið og hann skor- aði seinna markið sitt og varð að fara af velli í kjölfarið. „Við vissum fyrir leikinn að hann væri ekki alveg búinn að ná sér. Vonandi kostar þetta ekki langa fjarveru. Þetta er líklega bara smá tognun en hann hefur rifið vöðvann á ný þá þýðir þetta þriggja vikna fjarveru,“ sagði Arsene Wenger eftir leikinn. Robert Mancini byrjaði stjóra- ferilinn vel með Manchester City á laugardaginn en liðið vann 2-0 sigur á Stoke í hans fyrsta leik. „Þetta var góður leikur að mínu mati. Leikmennirnir mínir voru frábærir því það er ekki auð- velt að spila á móti Stoke. Fyrsta vikan er allt í lagi en við getum gert miklu betur en þetta,“ sagði Roberto Mancini sem mætti með City-trefilinn um hálsinn. Chelsea náði aðeins markalausu jafntefli á móti Birmingham þrátt fyrir fjölda tækifæri en Joe Hart átti stórleik í marki Birmingahm og varð fyrsti markvörðurinn til þess að halda hreinu á móti Chel- sea í vetur. Liverpool komst upp í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Wolves á Anfi- eld í kvöld. Bæði mörk Liverpool komu eftir fyrirgjafir frá Emilia- no Insua og eftir að Stephen Ward var rekinn útaf í upphafi seinni hálfleiks. „Þetta snérist allt um að ná fyrsta markinu. Við vorum stressaðir á tíma í leiknum og við vorum komnir með stuðnings- mennina á bakið. Við vissum að það væri lykilatriðið að halda í trúna um að markið kæmi og það kom,“ sagði Steven Gerrard sem skoraði fyrsta mark Liverpool með þrumuskalla. Það er skammt stórra högga á milli því næsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst strax í dag með sex leikjum. ooj@frettabladid.is Forskot Chelsea aðeins tvö stig Manchester United og Arsenal voru einu toppliðin sem unnu í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Liverpool vann langþráðan sigur og komst upp í 7. sætið. Manchester City byrjaði vel undir stjórn Roberto Mancini. BÆTTI FYRIR MISTÖKIN Wayne Rooney MYND/AFP FRÁBÆR INNKOMA Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, þurfti ekki langan tíma til að sýna snilli sína. MYND/GETTYIMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.