Fréttablaðið - 12.01.2010, Síða 2
2 12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Stefán, er þessi klukka tíma-
laus snilld?
„Já, fyrir minningarnar er hún það.“
Hárgreiðslumaðurinn Stefán Rósar
Esjarsson heldur mjög mikið upp á
gamla klukku sem afi hans gaf honum
á sínum tíma. Klukkan hefur hins vegar
ekki gengið lengi.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Gellur og kinnar
nýjar og saltaðar
Hrogn, lifur og kútmagi
Súr Hvalur
OPNUM KL 8.00
DÓMSMÁL Meint fórnarlamb sak-
borninganna í mansalsmálinu á
Suðurnesjum hefur verið í 24 tíma
gæslu og notið hámarksverndar hér
á landi. Stúlkan, sem er litháísk,
tæplega tvítug, er talin í stórhættu
af hálfu sakborninga, eða manna
sem þeir þekkja hér.
Þetta kom fram í Héraðsdómi
Reykjaness í gær, þar sem þingfest
var mál á hendur sex karlmönnum,
fimm Litháum og Íslendingi. Ríkis-
saksóknari hefur ákært menn-
ina fyrir mansal. Með hagsmuni
fórnar lambsins í huga úrskurð-
aði dómari, að framkominni kröfu
réttar gæslumanns litháísku stúlk-
unnar, að þinghald skyldi vera
lokað. Verjendur sakborninganna
mótmæltu þessum úrskurði dóm-
ara. Þá úrskurðaði dómari að sak-
borningar skuli víkja úr dómsal
meðan stúlkan ber vitni.
Íslendingurinn mætti ekki við
þingfestingu málsins, en Litháarn-
ir neituðu allir sök.
Í ákæru ríkissaksóknara segir
að stúlkan hafi verið beitt ólög-
mætri nauðung, frelsissviptingu
og ótilhlýðilegri meðferð áður en
og þegar hún var send til Íslands
9. október. Sama hafi gilt um hana
í meðförum sexmenninganna hér
á landi, sem tekið hafi við henni,
flutt hana og hýst í því skyni að not-
færa sér hana kynferðislega. Fyrir
komuna hingað hafi hún verið svipt
frelsi sínu í Litháen og neydd til að
stunda vændi þar í landi. Áður en
hún var send af stað til Íslands hafi
hár hennar verið klippt og litað og
tekin af henni ljósmynd sem sett
var í fölsuð skilríki.
Einn Litháanna fimm, sem
ákærðir hafa verið fyrir mansal,
hefur einnig verið ákærður fyrir
líkamsárásir, fjárkúgun og hylm-
ingu.
Manninum er gefið að sök sér-
staklega hættuleg líkamsárás,
þar sem hann stakk annan mann í
lærið með hnífi, þannig að af hlaust
um fjögurra sentimetra langt sár.
Atvikið átti sér stað í september
2009.
Þá er maðurinn ákærður fyrir
aðra líkamsárás. Laugardaginn 29.
nóvember 2008, fór hann í félagi
við annan á heimili manns, veittist
að honum með ofbeldi og sló hann
margsinnis hnefahöggum og spark-
aði í höfuð hans og líkama. Maður-
inn hlaut áverka í andliti og á lík-
ama, auk blóðmigu.
Í þriðja lagi er maðurinn ákærð-
ur fyrir fjárkúgun. Hann tók bíl af
manni með ofbeldi og hótunum og
ók honum í heimildarleysi í nokkr-
ar vikur. jss@frettabladid.is
Gæta fórnarlambsins
bæði á nóttu og degi
Fimm sakborningar í mansalsmálinu svokallaða á Suðurnesjum neituðu allir
sök fyrir dómi í gær. Meint fórnarlamb þeirra, nítján ára litháísk stúlka, nýtur
hámarksverndar hér. Dómari úrskurðaði að þinghald skyldi vera lokað.
MANSALSMENN Handjárn sakborning-
anna voru fest við mittisól.
UMHVERFISMÁL Talningar vetrarfugla á Snæfellsnesi
sýna óvenju blómlegt fuglalíf líkt og í fyrravetur.
Ástæðan er mikil síldargengd í Breiðafirði.
Talningin fór fram í kringum áramótin en að
þessu sinni voru fuglar taldir mun víðar á Snæfells-
nesi en áður. Á talningarsvæðunum voru samtals
um tuttugu þúsund fuglar af 33 tegundum.
Algengasti fuglinn var æðarfugl en þar á eftir
komu hvítmáfur og svartbakur. Af einstökum taln-
ingarsvæðum voru flestir fuglar í Grundarfirði,
6.562 talsins.
Náttúrufræðistofnun tekur við niðurstöðum taln-
inganna og búast menn þar á bæ við að talið hafi
verið á um 170 svæðum á Íslandi í ár.
Eins og áður sagði er síldargöngum þakkað
hversu mikið og fjölbreytt fuglalífið er á Snæfells-
nesi. Síldargöngurnar hafa undanfarna vetur verið
gríðarlegar og flotinn hefur tekið megnið af leyfi-
legum síldarkvóta uppi í harða landi við Breiða-
fjörð. - shá
TALNINGARSVÆÐIN Á SNÆFELLSNESI Náttúrustofa Vesturlands
ber hitann og þungann af talningunum sem voru umfangs-
meiri en áður. MYND/NSV
Talningar vetrarfugla á Snæfellsnesi sýna blómlegt fuglalíf annað árið í röð:
Síldargöngur kalla til sín fugla
GLAÐLEGIR SAKBORNINGAR Það var ekki
að sjá að sakborningar í mansalsmálinu
svokallaða kviðu því sem þeirra beið í
dómsal, þegar þeir voru leiddir til þing-
festingar í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
FÓLK Hildur Dungal, sem hefur
verið í leyfi frá störfum sínum
sem forstjóri Útlendingastofn-
unar, hefur beðist lausnar á því
starfi. „Ég
baðst lausnar
fyrir áramót,
mér fannst
bara kominn
tími á að gera
eitthvað nýtt
eftir sjö ár hjá
stofnuninni,“
segir Hildur
sem hefur til-
kynnt þátttöku sína í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
sem fram fer í febrúar.
Hildur segir þátttöku í stjórn-
málum ekki hafa verið það sem
hún hafði í huga þegar hún hætti
en eftir áskoranir og umhugs-
un hafi hún ákveðið að slá til og
stefnir á eitt af toppsætunum á
lista sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi.
Að sögn Hildar gafst ekki tími
til að auglýsa forstjórastöðuna
fyrir áramót og var leyfi hennar
því framlengt þangað til í mars
þegar staðan verður auglýst. - sbt
Breyting á Útlendingastofnun:
Forstjóri hættir
og fer í framboð
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
Alþingis segir enga heimild í
lögum til að innheimta gjald af
þeim sem þurfa að fara á nám-
skeið eftir að hafa verið sviptir
ökuréttindum tímabundið.
Samgönguráðuneytið taldi
heimilt að leyfa ökuskólum að
innheimta gjald fyrir að halda
námskeiðið. Sömu lögmál giltu og
um almennt ökunám.
Á það fellst umboðsmaður
Alþingis ekki í nýju áliti. Hann
beinir þeim tilmælum til ráðu-
neytisins að breyta framkvæmd
námskeiðanna svo ekki verði inn-
heimt gjald fyrir námskeiðin án
lagaheimildar. - bj
Umboðsmaður Alþingis:
Má ekki rukka
fyrir námskeið
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness framlengdi í gær gæsluvarð-
hald yfir rúmenskum karlmanni,
sem tekinn var með rúmt hálft
kíló af kókaíni við komuna til
landsins 4. desember. Maðurinn
skal sæta gæsluvarðhaldi til 8.
febrúar.
Maðurinn kom hingað til lands
frá Kaupmannahöfn. Tollgæsla
stöðvaði hann við hefðbundið eft-
irlit. Hann var með efnin innvort-
is en skilaði þeim fljótlega af sér.
Maðurinn sem um ræðir er á þrí-
tugsaldri. - jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Kókaínmaður
áfram inni
EFNAHAGSMÁL Breytt lánshæfismat
íslenska ríkisins í kjölfar synjun-
ar forseta Íslands á lögum um rík-
isábyrgð vegna Icesave gæti haft
áhrif á lánsfjáraðgengi Landsvirkj-
unar, og setur þar með áform um
nýjar virkjanir í uppnám, segir
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar.
Hann segir sterka lausafjárstöðu
fyrirtækisins tryggja að hægt sé að
standa við allar núverandi skuld-
bindingar til ársins 2012. Lausafé
Landsvirkjunar í lok árs hafi numið
415 milljónum Bandaríkjadala, sem
jafngildi um 50 milljörðum króna.
Ekki hefur orðið breyting á láns-
hæfiseinkunn Landsvirkjunar.
Engin ákvæði eru í lánasamning-
um fyrirtækisins um breytingar
á vöxtum þótt lánshæfiseinkunn
lækki frekar, segir Þorsteinn.
Breytt lánshæfismat ríkisins
mun þó að líkindum gera það að
verkum að erfiðara verður að fjár-
magna nýjar framkvæmdir, til
dæmis Búðarhálsvirkjun.
Talað hefur verið um að orka frá
virkjuninni verði notuð til að knýja
stækkun á álveri Rio Tinto Alcan í
Straumsvík, segir Þorsteinn. Nú sé
óvíst hvort og hvenær verði farið
í þá framkvæmd. Kannað verði á
vormánuðum hvort fjármagn fáist,
og á hvaða kjörum. Óábyrgt væri að
nýta lausafé fyrirtækisins til ann-
ars en að standa undir núverandi
skuldbindingum. - bj
Lausafjárstaða Landsvirkjunar stendur undir núverandi skuldbindingum:
Óvissa með nýjar virkjanir
VIRKJUN Kannað verður á vormánuðum hvort fjármagn fæst á viðunandi kjörum til
að hægt sé að hefja framkvæmdir að nýju við Búðarhálsvirkjun.
SJÁVARÚTVEGUR Gulldepluveið-
in í upphafi árs er mun minni
en í fyrra, segir Albert Sveins-
son, skipstjóri á Faxa RE, skipi
HB Granda. Hann segir að skip-
um hafi fjölgað frá því í fyrra
og svæðið, sem er lítill blettur í
Grindavíkurdýpinu, sem veitt er
á þoli það illa. Alls eru skipin tíu
sem stunda veiðarnar.
Uppsjávarskip HB Granda eru
öll á gulldepluveiðum. Faxi var
kominn á miðin í Grindavíkurdjúpi
í gærmorgun eftir að hafa landað
490 tonnum á Akranesi. Auk Faxa
er Ingunn á miðunum og Lundey
NS er farin til sömu veiða. - shá
Tregt á miðunum:
Mun minna af
gulldeplu í ár
UTANRÍKISMÁL Kristín Aðalbjörg
Árnadóttir sendiherra afhenti
í gær Hu Jintao, forseta Kína,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Íslands í Kína,
fjórum dögum
eftir komu sína
til landsins.
Að afhendingu
lokinni fundaði
hún með forset-
anum og fleir-
um.
Í tilkynningu
segir að sér-
staklega hafi
verið vikið að samstarfi ríkjanna
á sviði jarðvarma og að heims-
sýningunni í Sjanghæ sem haldin
verður á þessu ári.
Þá gerði Kristín grein fyrir
stöðu efnahagsmála hér og fram-
gangi efnahagsáætlunar Íslands
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Kínaforseti kvaðst fylgjast vel
með þróun mála og vera þess full-
viss að stjórnvöldum takist að
ráða fram úr þeim vanda sem við
væri að etja. - óká
Nýr sendiherra Íslands í Kína:
Kínaforseti fylg-
ist með Íslandi
KRISTÍN A.
ÁRNADÓTTIR
HILDUR DUNGAL
SPURNING DAGSINS