Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 4
4 12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
NÁM Ríflega 130 manns hafa
skráð sig á námskeiðið Orku-
bóndann sem haldið verður á
Egilsstöðum í dag og er þetta
metþátttaka í námskeiðinu sem
er fyrir áhugafólk um orku-
virkjun. Að sögn Bjarna Ell-
erts Ísleifssonar, verkefnastjóra
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,
má skýra mikinn áhuga á nám-
skeiðinu fyrir austan annars
vegar af mikilli þátttöku mennta-
skólanema, en sjötíu nemar þáðu
boð um að sitja fyrri námskeiðs-
daginn.
„Það er mjög misjafnt í hvaða
pælingum þátttakendur eru,
sumir eru að velta fyrir sér
að gera eigin virkjun, aðrir að
hugsa um hvernig hægt sé að
spara rafmagn heima hjá sér,“
segir Bjarni. - sbt
Orkunám á Egilsstöðum:
Mikill áhugi á
orkuframleiðslu
ÁHUGASÖM UM ORKU Góð þátttaka var
á námskeiðinu Orkubóndanum í Árborg
þar sem myndin var tekin.
LÖGREGLUMÁL Skotið var á sumar-
bústað í landi Nesja í Grímsnes-
og Grafningshreppi úr riffli um
þarsíðustu helgi. Selfosslögregl-
an var kölluð á staðinn þegar göt
eftir byssukúlur uppgötvuðust á
glugga bústaðarins.
Lögregla segir að í ljós hafi
komið að þremur riffilskot-
um hafi verið skotið í gegnum
gluggarúðu og að leifar af blýkúl-
um hafi fundist á gólfi við vegg-
inn gegnt glugganum. Þetta hafi
gerst á tímabilinu frá 1. til 3. jan-
úar. Engar vísbendingar eru um
hver var að verki. - sh
Þrjú skotgöt í gluggarúðu:
Skotið á rúðu í
sumarbústað
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
2°
-3°
1°
1°
-3°
1°
1°
1°
21°
1°
15°
3°
15°
-3°
-2°
15°
-1°
Á MORGUN
5-16 m/s
Hvassast allra syðst.
FIMMTUDAGUR
Suðlægar áttir,
víða 8-13 m/s.
4
1
0
-1
-2
2
1
6
4
7
-2
8
9
4
4
5
6
7
9
12
13
6
5
0 1
3
3
6 6
3
3
4
5
BEST NORÐANTIL
Í dag og næstu
daga verður ansi
vætusamt suðaust-
anlands. Þar má
búast við rigningu
en í öðrum lands-
hlutum verður úr-
koma í formi skúra
eða slyddu með
köfl um. Norðan-
og norðvestantil
verður að mestu
þurrt.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNMÁL „Sameiginleg niður-
staða okkar allra, stjórnar og
stjórnarandstöðu, er að kanna
grundvöll þess á næstu dögum að
koma þessu máli í ákveðinn sátta-
farveg,“ sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra eftir fund
forystumanna stjórnar og stjórn-
arandstöðu í gær um stöðuna í
Icesave-málinu.
Forsætisráðherra sagði ýmsar
hliðar málsins hafa verið reifað-
ar á fundinum. Stefnan væri sú að
ræða aftur við Breta og Hollend-
inga. Markmiðið væri að koma
málinu í sáttafarveg við þá.
„Þeir hafa skilning á þeirri
stöðu sem upp er komin þótt þeir
hafi lýst vonbrigðum með niður-
stöðuna,“ sagði Jóhanna spurð um
viðbrögð forsætisráðherra Bret-
lands, Hollands, Noregs, Svíþjóðar
og Finnlands sem hún hefur rætt
við á síðustu dögum.
Áfram er unnið að þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Jóhanna sagði
alltof snemmt að segja til um hvort
hún yrði slegin af.
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði að
finna þyrfti sáttagrundvöll. „Hann
þarf annars vegar auðvitað að vera
til staðar hér heima fyrir og hjá
þeim senm við erum að ræða við,“
sagði Bjarni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, sagði gagnlegt að menn settust
saman við borð og töluðu saman.
„Menn þurfa að byrja á að samein-
ast um það að senda þau skilaboð
út á við að Íslendingar þurfa betri
niðurstöðu heldur en þessi samn-
ingsdrög segja til um,“ sagði Sig-
mundur.
Birgitta Jónsdóttir, formaður
þingflokks Hreyfingarinnar, sagð-
ist vonast til að það tækist að finna
sameiginlegan flöt á málinu. „Ég
er mjög bjartsýn að eðlisfari og vil
því ekki hafa alltof miklar yfirlýs-
ingar,“ sagði Birgitta.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði gott að menn
væru að tala saman. „Fyrstu
skrefin eru að ræða saman um
stjórnmálin á Íslandi,“ sagði Stein-
grímur, sem eins og aðrir sagði
algerlega ótímabært að ræða hugs-
anleg samningsmarkmið gagnvart
Bretum og Hollendingum.
„Þessi staða felur í sér tæki-
færi. Synjunin gerir það að verk-
um að forystumenn Evrópu hljóta
að gera sér grein fyrir hve massív
andstaða er hér við Icesave,“ sagði
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra.
Reiknað er með að forystumenn-
irnir ræði aftur saman á næstu
dögum.
gar@frettabladid.is
Allir flokkarnir reyna
að ná sátt um Icesave
Stjórn og stjórnarandstaða ætla að finna sáttagrundvöll í Icesave-málinu með
nýjar viðræður við Breta og Hollendinga í huga. Þurfum sameiginleg skilaboð
um að Íslendingar vilji betri niðurstöðu, segir formaður Framsóknarflokksins.
SÁTTAFUNDUR Í STJÓRNARRÁÐINU Þráinn Bertelsson, Bjarni Benediktsson, Stein-
grímur J. Sigfússon, Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Birgitta Jónsdóttir
og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddu í gær um að slíðra sverðin í Icesave-mál-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANDARÍKIN, AP Hillary Clin-
ton, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, segir óðum styttast í
að Bandaríkin beiti Írani refsi-
aðgerðum geri stjórnvöld þar
ekki grein fyrir kjarnorkumál-
um sínum.
Clinton segir að ríkisstjórn
Baracks Obama hafi komist að
þeirri niðurstöðu að refsiaðgerð-
ir séu besta leiðin til að beita
Írani þrýstingi í þessu máli.
Hún tók þó fram að tryggja
verði að refsiaðgerðirnar bitni
á stjórnendum landsins, ekki
almenningi.
- gb
Hillary Clinton um Íran:
Segir styttast
í refsiaðgerðir
BANDARÍKIN, AP Í San Francisco
eru hafin fyrstu réttarhöldin í
sögu Bandaríkjanna um það hvort
bann við hjónaböndum samkyn-
hneigðra brjóti í bága við stjórnar-
skrá landsins.
Kjósendur í Kaliforníu sam-
þykktu í nóvember 2008 bann við
því að samkynhneigðir gangi í
hjónaband. Tvö samkynhneigð pör
kærðu bannið.
Allar líkur eru til þess að málið
fari fyrir hæstarétt Bandaríkj-
anna, hvernig svo sem dóms úr-
skurður fellur í Kaliforníu. - gb
Réttarhöld í San Francisco:
Samkynhneigð
ósátt við bann
FÖGNUÐUR Um hundrað manns söfn-
uðust saman fyrir utan alríkisdómstólinn
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR Ekki er ljóst hvort
efnahags- og viðskiptaráðuneytið
hefur heimildir til að stöðva veit-
ingu svokallaðra SMS-lána hér á
landi. Gylfi Magnússon, efnahags-
og viðskiptaráðherra, segir ráðu-
neytið nú kanna hvort hægt sé að
stöðva lánveitingarnar.
Neytendasamtökin sendu Gylfa
erindi fyrir áramót þar sem varað
var við lánunum, og óskað eftir því
að komið yrði í veg fyrir frekari
framgang þeirra hér á landi.
„Ég deili fyllilega áhyggjum
Neytendasamtakanna og tel að
þetta sé ekki jákvæð þróun,“ segir
Gylfi. Hann vari fólk eindregið við
því að taka lán á svo „hryllileg-
um“ kjörum. Lánunum sé einkum
beint að ungu fólki, sem hafi margt
hvert komið sér í miklar skuldir í
þenslunni. Verið sé að gera fólki
mikinn bjarnargreiða með því að
bjóða svo óhagstæð lán.
Hægt er að fá frá 10 til 40 þús-
und krónur að láni í hvert skipti.
Lántakandinn þarf að skrá sig á
vefsíðu lánafyrirtækisins og send-
ir svo SMS til að fá lánið. Endur-
greiða þarf lánið eftir fimmtán
daga. Af 10 þúsund króna láni
greiðist 2.500 króna kostnaður,
sem jafngildir 600 prósent kostn-
aði á ársgrundvelli samkvæmt
erindi Neytendasamtakanna.
Ekki náðist í forsvarsmann
Kredia, sem býður upp á SMS-lánin
á Íslandi, við vinnslu fréttar innar.
- bj
Viðskiptaráðherra segist deila áhyggjum Neytendasamtakanna af SMS-lánum:
Varar við hryllilegum kjörum
LÁN Það er bjarnargreiði að bjóða ungu
fólki lán á svo slæmum kjörum, segir
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Slasaðist í Húsavíkurfjalli
Björgunarsveitin Garðar frá Húsavík
sótti slasaða konu í Dagmálalág í
Húsavíkurfjalli á áttunda tímanum í
gærkvöldi. Konan, sem hafði verið á
kvöldgöngu, missti fótanna og rann
tugi metra á hjarni og malarskrið-
um. Konan var flutt niður á börum.
Farið var með konuna á Heilsugæslu
Húsavíkur.
BJÖRGUNARSTARF
Synjunin gerir það að
verkum að forystumenn
Evrópu hljóta að gera sér grein
fyrir hve massív andstaða er hér
við Icesave
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
GENGIÐ 11.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,7015
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,98 124,58
200,39 201,37
179,91 180,91
24,174 24,316
22,062 22,192
17,640 17,744
1,3398 1,3476
194,80 195,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is