Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 16
12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR2
Það er hugur í íslenskum líkams-
ræktariðkendum og -stjórnend-
um ef marka má fjölda þeirra
sem eru ýmist að opna ný lík-
amsræktarfyrirtæki, flytja í nýtt
húsnæði eða stækka við sig.
Sem dæmi má nefna Jafnvægi,
nýja líkamsræktarstöð í Garðabæ,
sem leggur áherslu á líkamsrækt
á rólegu nótunum. Stott Pilates,
hatha-jóga og TRX-æfingar með
teygjum eru meðal nýjunga sem
boðið er upp á í Garðabænum.
Þá opnar Árbæjarþrek nýja
aðstöðu fyrir þyngri lyftingar að
Selásbraut 98 í lok mánaðarins.
Þar verður meðal annars aðstaða
til ólympískra lyftinga.
Ein er sú nýopnaða stöð sem er
í óvenjulegri kantinum, en það er
stúdíó í Jakabóli, þar sem áhersl-
an er lögð á súluform, dans, jóga
og djarfan burlesque-dans. Einnig
er boðið upp á súlufitness í Happy
Eyes Studio í Skipholti.
Þá var heilsuræktarstöðin
Heilsuborg opnuð í Faxafeni í
ágúst síðastliðnum og til stendur
að vígja nýja líkamsræktarstöð við
Skólastíg á Akureyri í lok janúar.
Auk ofangreindra stöðva má
finna fjöldann allan af nýjum og
spennandi valkostum í líkamsrækt
um þessar mundir og um að gera
að prófa sig áfram.
Nýir
valkostir
Nokkrar nýjar heilsuræktarstöðvar hafa
opnað nýlega.
Sigríður Halldóra Matthíasdóttir
heitir hún en er þekkt úr líkams-
ræktargeiranum sem Sigga Dóra.
Nú hefur hún opnað heilsumiðstöð
á Stórhöfða 17 þar sem hún býður
upp á lóð, rope-jóga, fjölnotatæki,
nuddara og heilara.
„Það er notaleg og skemmti-
leg orka í þessu húsi. Hér snýst
allt um námskeið í umsjón kenn-
ara og ég ætla að vera með fjöl-
breytta dagskrá,“ segir Sigga
Dóra og nefnir salsadans og Jane
Fonda-æfingar, auk þess sem áður
er upp talið. Einnig verði fræðsla
um næringuna, enda sé ekki nóg
að æfa, heldur skipti miklu máli
að næra líkamann vel til að halda
heilsu. „Ég er með gott mælitæki
hér sem segir okkur í hvernig
ástandi líkaminn er, þannig að ég
sé hvernig brennsluofninn virk-
ar,“ segir Sigga Dóra og tekur
fram að aldrei séu fleiri en átta
til tíu manns á hverju námskeiði
og hver og einn fái persónulega
þjónustu.
Heilsusmiðstöðin er í 400 fer-
metra plássi fyrir ofan Vegg-
sport. Sigga Dóra segir sig lengi
hafa dreymt um svona miðstöð.
Margir góðir viðskiptavinir hafi
brett upp ermar og hjálpað henni
að innrétta húsnæðið. Á efri hæð-
inni er dekurstofa með arineldi og
huggulegheitum og þar er falleg
gufubaðstofa. Sigga Dóra tekur
fram að hún geti sérsniðið dekur
fyrir hópa ef þeir kjósi að leigja
efri hæðina í einn til tvo tíma.
Námskeiðin fóru í gang 7. jan-
úar. Hægt er að fá fjögurra vikna,
sex vikna og tólf vikna námskeið
og miðað er við þrjá tíma á viku.
„Námskeiðin eru þannig að hverj-
um og einum er fylgt vel eftir og
við erum alltaf með hollustudrykk
eftir hvern tíma þannig að það
er alltaf endað á barnum,“ segir
Sigga Dóra glaðlega og bætir við:
„Nú skilur fólk að það sem skiptir
máli er líkaminn og heilsan.“
gun@frettabladid.is
Notaleg orka í húsinu
Sigríður Halldóra Matthíasdóttir hefur opnað nýja heilsumiðstöð að Stórhöfða 17. Þar er boðið upp á
lóð, rope-jóga, fjölnotatæki, nuddara og heilara.
Sigga Dóra er þekkt úr líkamsræktargeiranum og hún segir marga hafa lagst á eitt við
að gera heilsumiðstöðina að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD LSH (BUGL) heldur
sína árlegu ráðstefnu um geðheilbrigðisþjónstu fyrir börn, unglinga
og fjölskyldur þeirra á föstudaginn. Tilgangurinn er að efla samfellu í
þjónustu fyrir þennan hóp. www.lsh.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
Þetta er mitt líf
Námskeið fyrir konur.
Meðal efnis:
Sjálfsmynd og samskipti
Áhyggjur og æðruleysi
Hefnd og fyrirgefning
Samviskuleysi og siðblinda
Námskeiðið verður haldið í Síðumúla 33,
annari hæð., 19.- 21. janúar n.k.
Upplýsingar og skráning í síma 694-7997
Ásta Kristrún Ólafsdóttir
Sálfræðingur og ráðgjafi .
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Velkomin í okkar hóp!
Barnagæsla - Leikland JSB
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Skýringar við stundatöflu
1. Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki
2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun
3. Pallatími, samsett spor, mikil brennsla
4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu,
lóð, stangir, teygjur
5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur
6. Opið yoga
7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa,
mambo, samba, jazz, funk og stuð
8. MRL - Magi, rass og læri
9. RopeYoga
10. STOTT PILATES - námskeið
11. Mótun - námskeið
12. TT-1 - átaksnámskeið fyrir konur
13. TT-3 - átaksnámskeið fyrir stelpur
14. 60+ - námskeið
15. Stutt og strangt - námskeið
Staðurinn - RæktintelpurS onuK r
Við bjóðum yfir 100 tíma
á viku! Nýir tímar í opna kerfinu!
Fim. 7:30, fös. 8:30,
þri., mið. og fim. 14:30
NÝTT!
Stutt og strangt í tækjasal
• 5 saman 5x í viku í 2 vikur
• Verð aðeins kr 10.000
• Ath. Skráning alltaf í gangi
S&S
stutt
ogst
rang
t
Stundatafla Dansræktar JSB
Opna kerfið og námskeið
mán þri mið fim fös lau
06:15 12. 9. 12. 9. 12.
06:30 4. / 15. 1. / 15. 1. / 15. 5. / 15. 15.
07:15 15. 15. 15. 15. 15.
07:20 12. 9. 12. 9. 12.
07:30 1. 1. 1. 4.
08:30 1. / 6. 1. 4. 1. 5.
09:25 14. 14.
09:30 14. lok 14. lok
10:00 9. 9.
10:15 12. 12. 12.
10:30 1. / 11. 1. / 11.
12:05 9. 9.
12:15 4. 5. 1. 1. 1.
14:20 12. 12. 12.
14:30 1. 1. 5.
15:30 1. 1.
16:30 1. / 9. 8. / 10. 1. / 9. / 11. 4. / 10. 11.
16:40 12. 12. 12.
17:00 15. 15. 15. 15. 15.
17:15 11. 11.
17:25 3. + 4. 3. + 4.
17:30 1. 1. 1.
17:40 12. 12. 12.
18:00 15. 15. 15. 15. 15.
18:25 13. 13. 12.
18:40 13. 13.
19:25 12. 12. Áskiljum okkur rétt til að breyta stundaskrá
Ódýr
námsmannakort:
4 mán kr. 12.000 og
9 mán kr. 20.000
Nýtt!