Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 26
12. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Námsframboð fyrir fatlaða
hefur stóraukist með fjölgun
svokallaðra starfsbrauta og
sérdeilda í framhaldsskólum
síðustu ár. Stefnir allt í rétta
átt segir Fjölnir Ásbjörnsson,
skólastjóri fjölmenningarskóla
Tækniskólans, sem undir for-
merkjum Iðnskólans í Reykja-
vík ruddi brautina fyrir þessari
þróun.
„Þetta byrjaði eiginlega sem til-
raunaverkefni sem Öskjuhlíðar-
skóli átti frumkvæði að og tengd-
ist norrænu samstarfi sem mennta-
málaráðuneytið studdi á seinni
hluta níunda áratugarins. Iðnskól-
inn í Reykjavík var fenginn til að
taka verkefnið að sér fyrst undir
stjórn Öskjuhlíðarskóla en það
varð svo brátt að einum af náms-
leiðunum sem skólinn bauð upp á
og hefur gert síðan,“ rifjar Fjöln-
ir upp.
Hann segir að í fyrstu hafi verk-
efnið mætt ákveðinni tortryggni
af hálfu starfsmanna skólans.
„Sumum fannst skólinn hreinlega
settur niður við að taka inn getu-
litla nemendur,“ útskýrir hann en
bætir við að brátt hafi þó orðið
breyting á því viðhorfi. „Nem-
endurnir voru ekki lengi að sigra
hug og hjörtu manna og krakkarn-
ir voru mjög stoltir af því stunda
nám við skólann.“
Síðan þá hefur skólinn, að sögn
Fjölnis, tekið vel á móti nemend-
um með sérþarfir og allt gert til að
auka veg námsins. Þannig stendur
þeim líkt og öðrum nemendum við
skólann til boða blanda af fjögurra
ára bóklegu og verklegu námi en
með megináherslu á verklega þátt-
inn og starfstengt nám seinni tvö
árin.
Svipaða sögu er að segja um
flesta þá framhaldsskóla sem
fylgt hafa Iðnskólanum í Reykja-
vík í þessum efnum en þeim sem
það gera hefur fjölgað jafnt og þétt
síðustu ár. Fjölgunina má ekki síst
rekja til framhaldsskólalaga sem
sett voru árið 1996 sem kváðu á um
að stofna mætti starfsbrautir fyrir
fatlaða í framhaldsskólum, en það
var síðar áréttað með nýjum fram-
haldsskólalögum árið 2008.
Sama ár og framhaldsskólalögin
voru sett tók til starfa fyrsti fram-
haldsskólinn sem var sérstaklega
byggður með sérþarfir nemenda
í huga, Borgarholtsskóli. Fatlaðir
nemendur hafa aðstöðu miðsvæð-
is í skólanum auk þess sem grip-
ið hefur verið til ýmissa úrræða
svo hreyfihamlaðir nemendur hafi
góðan aðgang að allri byggingunni
og eigi þess því kost að stunda nám
á almennum brautum.
Nú er svo komið að framhalds-
skólar með starfsbrautir eða sér-
deildir eru tuttugu talsins á land-
inu samkvæmt upplýsingum frá
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu. Síðast bættist í hópinn
Iðnskólinn í Hafnafirði þar sem
starfsbraut var hleypt af stokkun-
um síðasta haust. Því virðist sífellt
betur koma í ljós hve mikil þörf er
á úrræðum handa nemendum með
sérþarfir á framhaldsskólastigi.
Fjölnir segir allra leiða leitað við
að þróa námið og laga að nýjum
og breyttum aðstæðum. „Þessir
krakkar eiga auðvitað sama rétt
og aðrir auk þess sem þetta und-
irbýr þá betur til þátttöku í samfé-
laginu.“ - rve
Fatlaðir hafa fleiri úrræði
Iðnskólinn í Reykjavík varð fyrstur íslenskra framhaldsskóla
til að taka við fötluðum nemendum. Var það gert að tilstuðlan
Öskjuhlíðarskóla og menntamálaráðuneytisins. Skólinn hefur
haldið því starfi áfram undir formerkjum Tækniskóla - skóla
atvinnulífsins. Þar stendur nemendum til boða kennsla í bók-
legu námi, svo sem íslensku, ensku, stærðfræði, tölvugreinum
og iðngreinar, eins og sauma og málmsmíði. Nú eru fjörutíu
nemendur skráðir á starfsbraut skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Iðnskólinn í Hafnarfirði hefur nú bæst í hóp þeirra framhaldsskóla sem bjóða upp á
starfsbraut. Nú eru sex nemendur skráðir á brautina þar sem boðið er upp á íslensku,
ensku, stærðfræði, lífsleikni, íþróttir og iðngreinar eins og trésmíði, vélfræði og
málmsmíði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Borgarholtsskóli er fyrsti skólinn sem byggður var á landinu
með sérþarfir nemenda í huga. Alls eru þrjátíu nemendur á
starfsbraut skólans og stendur þeim meðal annars til boða
nám með áherslu á listgreinar, iðngreinar, íþróttir, lífsleikni og
starfstengt nám á þriðja og fjórða ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hringsjá í Hátúni 10d er skóli fyrir þá sem eru
18 ára og eldri og þurfa á náms- og starfsendur-
hæfingu að halda vegna sjúkdóma, slysa, fötlun-
ar eða annarra áfalla. Endurhæfingin felst í ein-
staklingsmiðuðu námi í formi styttri námskeiða
eða fullu einingarbæru námi með sérhæfðri
ráðgjöf og stuðningi og í framhaldinu komast
margir ýmist í frekara nám eða starf á almenn-
um vinnumarkaði.
Hringsjá hefur verið starfrækt frá árinu 1987
og frá upphafi hafa um 400 manns verið útskrif-
aðir þaðan eftir fullt nám en mun fleiri lokið
námskeiðum eða hluta af námi. Námið hefur því
orðið til að auka lífsgæði mjög margra einstakl-
inga og fjölskyldna þeirra. - gun
Árangursrík endurhæfing
Nýlega útskrifuðust 14 nemendur frá Hringsjá. Hér eru 11 þeirra.
MYND/JÓHANNES LONG
www.tskoli.is
Námskeið
á nýju ári!
Hönnun og handverk
• Gítarsmíði
• Brúðarkjólasaumur
• Að hanna og prjóna einfaldar f líkur
• Að prjóna lopapeysu
• Litafræði fyrir bútasaum
• Skírnarkjólasaumur
• Steinaslípun – vinnustofa
• Höggvið í stein
• Útskurður
• Smíði úr íslenskum við - skál og amboð
Málmur og tré
• Málmsuða
• Húsgagnaviðgerðir
• “Sittu á strák þínum” frá 1940 - kollur með geymsluhólfi
Raftækni
• CanOpen kerf ið
• Gítaref fektar
• LCD skjáviðgerðir
• Leikhúslýsing
• MultiSim rafrásarhermir
• PIC stýriörgjörvar
Rekstur og stjórnun
• Breytingastjórnun og niðurskurður
• Mannauðsstjórnun
• Rekstrar- og birgðastjórnun
• Starfsmannasamtöl og launaviðtöl
• Stjórnun og stefnumótun
• Þekkingarstjórnun og fræðslustarf fyrirtækja
Skipstjórn - vélstjórn
• ARPA – ratsjárnámskeið. Grunn- og endurnýjun
• Smáskipanámskeið 12 m og styttri
• SSO - CSO. Verndarfulltrúi skipa og fyrirtækja
• GMDSS GOC - ROC
• ECDIS - rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi
• Endurnýjun skips- og vélstjórnarréttinda
• Hásetafræðsla
• IMDG meðferð á hættulegum farmi
• Vélgæslunámskeið
Tölvur- og upplýsingatækni
• Final Cut
• Revit þrívíddarforrit
• AutoCAD teikniforrit
Tungumál
• Enska fyrir starfsfólk í iðngreinum
• Lad os snakke sammen
Umhverf i og útivist
• GPS tæki og rötun
• Grjóthleðslur - torf og grjót
• Vatnajökulsþjóðgarður
Nánari upplýsingar um námskeiðin fást á vefnum
www.tskoli.is, í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601
eða á ave@tskoli.is