Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 28
12. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Hjá Kvíðameðferðarstöðinni
eru í boði alls kyns námskeið
og meðferð fyrir þá sem þjást
af hamlandi fælni eða kvíða,
svo sem félagsfælni, ofsakvíða
og tannlæknafælni. Einnig eru
í boði námskeið fyrir óörugga
unglinga.
Kvíðameðferðarstöðin hefur verið
starfrækt frá árinu 2007. Nám-
skeiðin sem þar verða næstu
vikur ættu að geta hjálpað fólki
með ýmiss konar fælni eða kvíða-
röskun. Þar á meðal félagsfælni
sem er algengasta kvíðaröskunin
að sögn Sóleyjar Drafnar Davíðs-
dóttur, sérfræðings í klínískri sál-
fræði, sem starfar hjá Kvíðameð-
ferðarstöðinni.
„Námskeiðin eru öllum opin
og á námskeiðinu sem tekur á fé-
lagsfælni er tekið á ótta fólks við
að verða sér til skammar, koma
illa fyrir og í raun að óttast aðrar
mannverur, eigin tegund, en það
síðastnefnda er það sem félags-
fælni snýst almennt um. Fólk
með óhóflegan ótta við álit
annarra er oft haldið félags-
fælni,“ útskýrir Sóley.
Einnig er þar í boði hóp-
meðferð við ofþyngd þar
sem fólki er kennt að hafa
stjórn á ákvörðunum sínum um
hvað það lætur ofan í sig, stoppa sig
af og rökræða við sjálfan sig um
gildi átsins. Af öðrum námskeiðum
sem eru í undirbúningi má nefna
flughræðslunámskeið, ofsakvíða-
námskeið og svo verður sérstakt
námskeið fyrir unglinga
sem þjást af óöryggi og
lélegri sjálfsmynd
svo dæmi séu
tekin.
Reglulega eru svo teknir til með-
ferðar einstaklingar til dæmis
með hundafælni og tannlækna-
fælni. Slíkt er unnið í samvinnu
við tannlækni, enda snýst með-
ferð sem tekur á hræðslu við af-
markaðan þátt mikið til um það að
horfast í augu við það sem viðkom-
andi hræðist. Sóley segir að áður
en einstaklingar komi á námskeið
sé nauðsynlegt að hitta sálfræðing
hjá Kvíðameðferðarstöðinni til að
fá rétta greiningu, enda sé fólk
ekki alltaf fært um að greina sig
sjálft. Þess má jafnframt geta að
öll námskeiðin byggja á hugrænni
atferlismeðferð.
„Við Kvíðameðferðarstöðina
hefur einnig verið haldið nám-
skeið í reiðistjórnun og svo höfum
við jafnvel hugsað okkur að halda
námskeið fyrir fólk sem þjáist af
hamlandi áhrifum fullkomnunar-
áráttu. Enn sem komið er eru fé-
lagsfælninámskeið þó okkar best
sóttu námskeið. Þau sækja að með-
altali um hundrað manns á hverju
ári.“ Nánari upplýsingar má nálg-
ast á www.kms.is - jma
Sóley Dröfn Davíðsdóttir segir að hugsanlega verði boðið upp á námskeið fyrir þá sem þjást af fullkomnunaráráttu hjá Kvíða-
meðferðarstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN
Kvíðameðferðarstöðin hefur boðið
upp á meðferð við ýmiss konar
fælni svo sem hundafælni og
flughræðslu.
Margir þjást af tannlæknafælni og
hræðast þá oft annaðhvort sársaukann
eða það að vera fastir í tannlæknastól
og komast hvergi og upplifa innilokun-
artilfinningu.
Flestir leita aðstoðar
vegna félagsfælni
Hið þekkta fréttatímarit Der Spiegel tekur Háskóla
Íslands til umfjöllunar í grein í nýjasta eintaki blaðs-
ins. Er námsaðstaða og þjónusta við nemendur skól-
ans þar fyrst og fremst til umfjöllunar og meðal ann-
ars er rætt við erlenda nemendur sem stunda nám við
skólann.
Skólinn fær afar góða dóma í greininni, bæði frá
blaðamanni og nemendum, en í greininni er háskólinn
meðal annars kallaður „háskólaperla, og sagður mjög
alþjóðlegur, hafi kennara með frábæra menntun og
fjölbreytt námsframboð fyrir erlenda nemendur.
Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og
kennslu við HÍ, segir skólayfirvöld ánægð með um-
fjöllunina. „Þetta er ágætur vitnisburður um okkar
starf og hefur mikla þýðingu fyrir orðspor okkar, sér-
staklega erlendis.“
Greinina er að finna í UniSPIEGEL sem er sér-
stakt fylgirit tímaritsins en í fylgiritinu er fjallað um
æðri menntun og háskóla um allan heim. - jma
HÍ sagður háskólaperla í Der Spiegel
Blaðamaður Der Spiegel segir kennara Háskóla Íslands afar vel
menntaða.
3 - 5 á r a
u n g t f ó l k
6 - 12 á r a
sími 551-1990 á skrifstofutíma mán-fim kl.13-17 og fös kl.13-16
barna- og unglinganámskeið
www.myndlistaskolinn.is
2010
K O R P Ú L F S S T A Ð I R
6 - 12 ára
m y n d l ý s i n g a r - b ó k a g e r ð
almenn námskeið
k e r a m i k
m á l u n - v a t n s l i t u n
l j ó s m y n d u n
i n d e s i g n - p h o t o s h o p
vorönn
Námskeiðin hefjast 18.1. - Skráning stendur yfir
ÓBREYTT
VERÐ
www.myndlistaskolinn.is
laugard. 10:15-12:00 3 - 5 ára Sigríður Helga Hauksdóttir
laugard. 12:30-14:15 3 - 5 ára Sigríður Helga Hauksdóttir
miðvikud. 15:15-17:00 fullbók. 3 - 5 ára Hildigunnur Birgisdóttir
miðvikud. 15:15-17:00 3 - 5 ára Sigríður Helga Hauksdóttir
mánud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Ína Salóme Hallgrímsdóttir
þriðjud. 15:15-17:00 fullbók. 6 - 9 ára Ína Salóme Hallgrímsdóttir
þriðjud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Arkitektúr Hildigunnur Birgisdóttir
miðvikud. 15:15-17:00 fullbók. 6 - 9 ára Anna Hallin
fimmtud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Björk Guðnadóttir
laugard. 10:15-12:00 6 - 9 ára Björk Guðnadóttir,Ólöf Björnsdóttir
laugard. 10:15-12:00 6 - 12 Myndlist f.sjónskert börn
Brynhildur Þorgeirsd. Elsa Dóróthea Gíslad.
fimmtud. 15:00-17:15 fullbók. 8 -11 ára Leirrennsla/mót. Guðbjörg Kárad.
mánud. 15:00-17:15 10-12 ára Arkitektúr NN
þriðjud. 15:00-17:15 fullbók. 10-12 ára Myndasögur og hreyfimyndir.
Þórey Mjallhvít og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
miðvikud. 15:00-17:15 10-12 ára Myndlist, handverk og hönnun
Kristín Reynisd., Bjarni Kristjánss. Þorbjörg Þorvaldsd.
fimmtud. 15:00-17:15 fullbók. 10-12 ára Teikning / Málun Katrín Briem
laugard. 10:00-12:15 fullbók. 10-12 ára Leirrennsla og mótun
Guðbjörg Káradóttir og Anna Hallin
þriðjud. 15:15-17:00 fullbók. 6 - 9 ára Korpúlfsst. Brynhildur Þorgeirsd.
fimmtud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Korpúlfsst. Brynhildur Þorgeirsd.
miðvikud. 15:00-17:15 fullbók. 10-12 ára Korpúlfsst. Brynhildur Þorgeirsd.
föstud. 16:00-19:00 fullbók. 13-16 ára Teikn-málun
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og JBK Ransú
föstud. 16:00-19:00 13-16 ára Leirmótun Guðný Magnúsdóttir
þriðjud. 17:30-20:25 Leirmótun og rennsla Guðný Magnúsdóttir
mánud. 17:30-20:15 Leirkerarennsla Guðbjörg Káradóttir
miðvikud. 18:00-22:00 Grundvallaratriði í keramiki - KEV173
Guðný Magnúsdóttir, Sigríður Helga Hauksdóttir, Anna Hallin
fimmtud. 18.00-22.00 Grundvallaratr. kermik frh. - KEV273
Guðný Magnúsd. Guðbjörg Kárad. Kolbrún Sigurðard.
lau og mán tími sjá lýs. Ljósmyndun stafræn Brooks Walker
lau og mán tími sjá lýs. Ljósm.stafræn framh. Brooks Walker
lau og mán tími sjá lýs. Ljósmyndun sv/hv Erla Stefánsdóttir
lau og mán tími sjá lýs.fullbók.Ljósm. sv/hv framh. Erla Stefánsdóttir og
Vigfús Birgisson.
föstud. 13:00-15:45 Frjáls málun Sigtryggur B. Baldvinsson
föstud. 09.00-11.45 fullbók. Málun 1 morguntímar Þorri Hringsson
þriðjud. 17:30-20:15 fullbók. Málun 1 Þorri Hringsson
föstud. 09.00-11.45 Málun 2 morguntímar Sigtryggur Baldvinss.
mánud. 17:30-20:15 Málun 2 Sigtryggur B.Baldvinsson
miðvikud. 17:30-20:15 Málun 3 - Möguleik.Formsins JBK Ransú
laugard. 10.00-12.45 Málun 4 Módel- og Portrettmálun.
Karl Jóhann Jónss. og Birgir Snæbj. Birgiss.
miðvikud. 09:00-11:45 Vatnslitun -Teikning morgunt. Hlíf Ásgrímsd.
þriðjud. 17:30-20:15 Vatnslitun framhald Hlíf Ásgrímsdóttir
þriðud. 17:30-21:40 Litaskynjun Eygló Harðardóttir
þriðjud. 18.00-20.45 Myndlýsingar - bókagerð Anja Kislich, Þorvaldur
Þorsteins. Brian Pilkinton,Tómas Ponzi, Kristín Ragna Gunnarsd.
t e i k n i n g
miðvikud. 17:30-20:40 Form, rými og hönnun Sólveig Aðalsteinsd.
Brynhildur Pálsd. og Guja Dögg Hauksdóttir
f o r m - r ý m i - h ö n n u n
mánud. 17.30-20.15 Myndasögur/ frá 16 ára Bjarni Hinriksson og
Búi Kristjánsson
mánud. 09.00-11.45 Teikning 1 morguntímar Eygló Harðardóttir
mánud. 17:30-21:30 Teikning 1 Eygló Harðardóttir
miðvikud. 17:30-21:30 Teikning 1 Kristín Reynisdóttir
fimmtud. 09:00-11:45 Teikning 2 morguntímar Katrín Briem
þriðjud. 17:30-21:30 Teikning 2 Sólveig Aðalsteinsdóttir
miðvikud. 09.00 - 11.45 Teikning 3 morguntímar Katrín Briem
mánud. 17:45-21:30 Módelteikning Þorbjörg Þorvaldsdóttir
miðvikud. 17:45-20:30 Módelteikning framhald Katrín Briem
Þr-Mi-Fö-La sjá lýs. InDesign-Photoshop Magnús Valur Pálsson
fullbók.
fullbók.
fullbók.
fullbók.
fullbók.
fullbók.