Fréttablaðið - 12.01.2010, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2010 11skólar og námskeið ● fréttablaðið ●
Í sgerður Elfa Gunnarsdóttir leik-kona hóf nám í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands í haust, en
hafði áður lokið námið við Arts Ed-
ucation-leiklistarskólann í London
árið 2003. Hún segist kunna vel við
sig í stjórnmálafræðinni. „Væntan-
lega er langt síðan það hefur verið
jafn spennandi að læra stjórnmála-
fræði eins og núna, því námið er
svo nátengt öllum þessum hrær-
ingum allt í kringum okkur. Það
er gaman að öðlast meiri skiln-
ing á þessum hlutum en ég hefði
haft ella. Hluti af náminu er að
læra hagfræði og þar uppgötva
ég loksins þýðingu orða sem ég
hef heyrt margoft en ekki skilið al-
mennilega.“
Ísgerður hefur haldið áfram að
stunda leiklist samhliða náminu.
Hún segist ekki vita hvernig hún
muni nýta sér stjórnmálafræðina í
framtíðinni. „Ég sé mig ekki alveg
fyrir mér á þingi, en maður á aldrei
að segja aldrei,“ segir hún og hlær.
„Annars þykir mér alltaf best að
láta hlutina bara ráðast í stað þess
að skipuleggja allt út í hörgul.“
É g var rosalega stressuð fyrsta mánuðinn og leið stundum
eins og ég væri stödd á tunglinu.
Það var svolítið erfitt að byrja, að
rifja upp hvernig á að læra heima,
skrifa ritgerðir og slíkt, en eftir
um það bil mánuð var ég búinn
að læra inn á þetta upp á nýtt og
núna finnst mér þetta æðislegt,“
segir Ása Ottesen, sem hóf nám
í félagsfræði, með fjölmiðlafræði
sem aukagrein, við Háskóla Ís-
lands síðastliðið haust.
Ása kláraði stúdentsprófið árið
1999 og því leið heill áratugur
þar til hún settist aftur á skóla-
bekk. Í millitíðinni starfaði hún
í tískubransanum, enda mikil
áhugakona um hann. „Mig lang-
aði mikið til að mennta mig í ein-
hverju tískutengdu, en því miður
er ekki úr auðugum garði að
gresja í þeim efnum hér heima,
og það hefði reynst allt of dýrt að
fara í nám til útlanda. Þess vegna
ákvað ég að sætta mig við það
sem er í boði hér og þykir þetta
nám mjög áhugavert, sérstaklega
að blanda fjölmiðlafræðinni inn í.“
Hún segir mikinn mun á því
hvernig hún nálgast námið nú og
á árum áður. „Þegar maður byrj-
ar svona seint í háskólanámi er
maður ekkert að slugsa. Ég er
mun móttækilegri núna og í kjöl-
farið fylgja hærri einkunnir og þá
verður þetta allt miklu auðveld-
ara,“ segir Ása Ottesen.
SETJAST AFTUR Á SKÓLABEKK
Áratugur leið frá því að Ása lauk
stúdentsprófi þar til hún skráði sig í
Háskólann.
Ísgerður Elfa kann vel við sig í stjórn-
málafræðinni.
Stressuð fyrsta mánuðinn
Aldrei að segja aldrei
Á gúst Ólafur Ágústsson, fyrr-verandi varaformaður Sam-
fylkingarinnar, hóf tveggja ára
meistaranám í opinberri stjórn-
sýslu í New York University síð-
astliðið haust, eftir að hafa hætt í
pólitík fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar. Áherslan í náminu er á
stefnumótun og stjórnun hjá hinu
opinbera og í þriðja geiranum
sem tilheyrir svokölluðum „non-
profit“ samtökum og fyrirtækjum.
„Námið er krefjandi og áhuga-
vert og ég hef notið þess að vera
aftur sestur á skólabekk,“ segir
Ágúst Ólafur. „Það hefur verið
skemmtilegt að kynnast New
York með augum dætra minna
tveggja. Ég verð að viðurkenna
að ég sé ekki eftir þeirri ákvörð-
un að hafa hætt í stjórnmálum,
þótt starfið í pólitíkinni hafi verið
ánægjulegt. Það voru auðvitað
viðbrigði að fara aftur í nám eftir
að hafa verið í erilsömu starfi, en
ég býst við að flestir sem fara í
nám eftir nokkurt hlé geti tekið
undir að maður nálgast námið á
annan hátt,“ segir Ágúst.
- kg
Nálgast námið á annan hátt
Ágúst Ólafur er í meistaranámi í opin-
berri stjórnsýslu í New York.
LEONARDOCOMENIUSERASMUSGRUNDTVIG
LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB
Leonardó áætlunin: Dunhaga 5 | 107 Reykjavík | Sími: 525 4900
Erasmus, Comenius, Grundtvig: Háskólatorg | 101 Reykjavík | Sími: 525 4311
LÝST ER EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI
Í MENNTAÁÆTLUN EVRÓPUSAMBANDSINS
Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir menntun og þjálfun á öllum
stigum, frá leikskóla til háskóla auk fullorðinsfræðslu:
COMENIUS - leik-, grunn- og framhaldsskólastig ERASMUS - háskólastig
LEONARDO - starfsmenntun GRUNDTVIG - fullorðinsfræðsla
UMSÓKNARFRESTIR ÁRIÐ 2010 ERU EFTIRFARANDI:
ÁÆTLUN UMSÓKNAFRESTUR
Comenius og Grundtvig - endurmenntun 1 15. janúar 2010
30. apríl 2010
15. september 2010
Comenius - aðstoðarkennarar 29. janúar 2010
Leonardo - mannaskiptaverkefni 5. febrúar 2010
Jean Monnet áætlunin 12. febrúar 2010
Comenius, Grundtvig og Leonardo - samstarfsverkefni 19. febrúar 2010
Comenius – svæðasamstarf 19. febrúar 2010
Grundtvig – vinnustofur 19. febrúar 2010
Leonardo – fjölþjóðleg yfirfærsluverkefni 26. febrúar 2010
Comenius, Erasmus, Grundtvig og Leonardo
– miðstýrð fjölþjóðleg tilrauna-, net- og stoðverkefni 26. febrúar 2010
Þveráætlanir – rannsóknir, tungumál,upplýsingatækni,
stefnumótun og dreifing verkefnaniðurstaðna 26.febrúar 2010
Erasmus – stúdenta- og starfsmannaskipti og
hraðnámskeið (frestur háskóla) 12. mars 2010
Grundtvig – aðstoð, sjálfboðaliðaverkefni 31. mars 2010
Námsheimsóknir - stefnumótun fræðslumála 31. mars 2010
15. okt. 2010
Í tengslum við Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun árið 2010 eru
fyrirtæki, stofnanir og samtök sem vinna náið með einstaklingum sem standa
höllum fæti, s.s. ungu atvinnulausu fólki, fötluðum og minnihlutahópum,
sérstaklega hvött til að skoða tækifæri fyrir þessa hópa til þátttöku í áætlununum.
Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið og umsóknarfresti fyrir árið 2010 eru á
heimasíðu Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, www.lme.is.
Áhugasamir eru eindregið hvattir til að hafa samband við starfsfólk Landskrifstofunnar til að
fá ráðgjöf við undirbúning umsókna.
Kemur út fimmtudaginn 14. janúar 2010
Sérblað um fartölvur
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Hlynur Þór • hlynurs@365.is • Sími 5125439