Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 38
BAKÞANKAR
Önnu
Margrétar
Björnsson
18 12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hæ, ástin mín, ég ætlaði
bara að minna þig á að
Solla er að fara á fótbolta-
æfingu klukkan fjögur.
Ekki láta eins og
asni, Elísabet, mér
finnst þínar vera
flottar eins og þær
eru, þessar líta bara
alls ekki út fyrir að
vera náttúrulegar.
Elsa, ég hef
skráð hjá
mér að þú
eigir í erfið-
leikum með
hringtorgin.
Nei, nei, ég
hef fundið
góða
leið til að
sigrast á
þeim.
Að keyra í öfuga átt er ekki
góð leið til að sigrast á
hringtorgum!
Smátriði,
smáatriði,
smáatriði.
Mig er farið að
gruna að það
að keyra bíl eigi
ekkert sérstaklega
vel við þig, með
hliðsjón af þess-
um 250 ökutím-
um þínum.
Maður
gefur í
þegar
hraða-
strípurnar
birtast.
Ég vona að
þú sért ekki
að meina
gangbrautar-
merkin.
Alltaf svo
mikið af
fólki þar,
það er
reyndar
ókostur.
Mamma, hefurðu velt
því fyrir þér að gera
eitthvað fyrir sjálfa þig?
Hvað
meinarðu?
Þú veist, lýtaaðgerð og
eitthvað svoleiðis, til að
yngja aðeins upp?
Þér
finnst ég
líta út fyrir
að vera
gömul.
Nei,
alls ekki
gömul,
bara plöguð af
þyngdaraflinu.
Ég get ekki
verið á sex
stöðum í
einu.
Þú meinar
tveimur
stöðum í
einu.
HA! Ég held að
maður segi
tveimur stöð-
um í einu.
Heyrðu, ég er mamma og
það að vera á tveimur stöð-
um í einu er frídagur hjá mér.
Fréttir af skotárás á rútu landsliðs Tógóbúa á föstudag sem varð þrem-
ur að bana voru hörmulegar. Ég hafði nú
ekki hugsað mér að fylgjast með Afríku-
bikarnum þar sem fótboltaáhugi minn
er minni en enginn en árásin vakti sér-
staka athygli mína vegna þeirrar ástæðu
að ég sótti Tógó heim fyrir tveimur
árum. Fótbolti er Tógómönnum sérstak-
lega hugleikinn og ég minnist þess
með hlýju í hjarta hversu alsæl og
kát berfætt börn spörkuðu í bolta
á heitri rauðleitri jörð.
ÞESSI börn voru á heimili sem
Íslendingar hafa byggt handa
þeim í Lomé, í SPES-þorp-
inu sem prófessor Njörður P.
Njarðvík setti á fót í þessu
sárfátæka landi. Þörfin
fyrir slík heimili í Tógó,
eins og í fjölmörgum Afr-
íkulöndum, er mikil þar
sem veikir foreldrar deyja
iðulega frá ungum börn-
um sínum eða sjá sér ekki
fært að fæða þau. Eyðni,
malaría og fjöldi ann-
arra sjúkdóma herja á
Tógó líkt og önnur Afr-
íkulönd. Oft koma börn-
in sárlasin, niðurbrotin
og vannærð á heimilið, sem bjargar lífi
þeirra og sendir þau í skóla.
ÉG ferðaðist til Tógó fyrir hrunið, og
á því ári var eftirtektarvert að margir
íslenskir efnamenn sóttu Afríku heim.
Heimsálfan snerti væntanlega við mörg-
um þeirra sem gáfu fjármuni til góð-
gerðarsamtaka og meðal annars til þess
að styðja við uppbyggingu SPES í Tógó.
Í hinni hatursfullu umræðu um menn-
ina sem settu Ísland á hausinn má alveg
muna eftir því að eitthvað gott hlaust af.
HVARVETNA í Afríku eru litlir strákar
að sparka í bolta. Stundum er hann gerð-
ur úr plastpoka og stundum úr krum-
puðum pappír. En svo lengi sem það er
hægt að sparka í hann þá er hægt að
spila. Umræðan um Afríkubikarinn í
Angólu snýst núna aðallega um það að
heimsbikarkeppnin í fótbolta í Suður-
Afríku þetta árið verði stórhættuleg og
lituð af skæruliðaárásum. Hræðsla ríkir
um framvindu Afríkubikarsins í Angólu
og felmtri slegið Tógó-liðið hefur verið
sent heim og fær ekki að leika. Vonandi
mun þessi árás ekki eyðileggja fram-
vindu fótboltaársins mikla í heimsálf-
unni og vonandi verða þessar spennandi
keppnir til þess að færa hjarta Afríku
aðeins nær okkur.
Þar sem lífið er fótbolti
ST
O
FA
5
3
Jöfnunarstyrkur til náms
- Umsóknarfrestur á vorönn 2010 er til 15. febrúar -
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána
hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði.
Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að
stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að dvelja fjarri
lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám
frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að
kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).
Umsóknarfrestur vegna vorannar 2010 er til 15. febrúar nk.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Langar þig að syngja Messías?
Selkórinn auglýsir eftir karla-
og sópranröddum.
Kórinn hefur aðsetur á Seltjarnarnesi og æfir á
miðvikudögum og annan hvern laugardag.
Næsta verkefni kórsins er Messías eftir Händel.
Áhugasamir hafi samband við Jón Karl
Einarsson, kórstjóra, í síma 696 6616 eða
með tölvupósti jonkarl@cantus.is.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki