Fréttablaðið - 12.01.2010, Side 41
ÞRIÐJUDAGUR 12. janúar 2010 21
Þrátt fyrir að leikkonan Linds-
ay Lohan hafi lofað átakalausu
ári nú í byrjun ársins 2010 hefur
stúlkan ekki náð að standa við
það því hún hefur verið sökuð um
hugmyndastuld. Aðeins nokkr-
um dögum eftir að ný fatalína
Lohans og fatamerkisins 6126 var
frumsýnd hafa tveir hönnuðir
komið fram og lýst yfir óánægju
sinni. Hönnuðurinn James Lillis
skrifaði á vefsíðu sinni að legg-
ingsbuxur Lohans væru nákvæm
eftirmynd af hans hönnun. Hönn-
uðurinn Jen Kao sagði jafnframt
að kjóll sem Lohan hannaði væri
afskaplega líkur kjól sem Kao
hafði hannað og sem Lohan hafði
klæðst fyrr í vor. „Við vitum öll
að í þessum bransa er mikið um
eftirhermur, en mér finnst þró-
unin vera komin á hættulegt
stig,“ sagði Jen Kao.
Stelur hug-
myndum
HERMIKRÁKA Lindsay Lohan er sökuð
um að stela hugmyndum annarra
hönnuða.
Slash, fyrrum gítarleikari Guns
N´Roses, segist hafa notað heró-
ín á árum áður vegna þess að það
hæfði persónuleika hans. „Her-
óin passaði fullkomlega við per-
sónuleika minn,“ sagði Slash.
„Allir aðrir voru að nota kókaín
og spítt sem gerði þá sem voru
ofvirkir enn þá ofvirkari. Hvað
mig varðar þá gerði heróínið mig
hæglátari og ég lokaði mig meira
af. Það var mín leið til að flýja í
burtu,“ sagði hann. „Ég
sé ekki eftir neinu
enda trúi ég ekki á
eftirsjá. En ég fór
í meðferð í einn
mánuð eftir þetta
tímabil og mig
hefur ekki langað
í eiturlyf síðan.
Ég hætti bara
öllu og núna
líður mér
mjög vel.“
Heróínið
hentaði Slash
SLASH Notaði
heróín þegar
hann var gít-
arleikari Guns
N´Roses.
Karen Sala, konan sem hélt því fram
að leikarinn Keanu Reeves væri
faðir fjögurra uppkominna barna
sinna, heldur því fram að Reeves
sé hamskiptingur og því hafi fað-
ernisprófið reynst neikvætt.
Samkvæmt Sala býr leikarinn
bæði yfir dáleiðsluhæfileikum auk
þess sem hann á að geta breytt útliti
sínu eftir hentugleika og á meðal
annars að hafa breytt sér í eigin-
mann Sala á tímum. Sala segir að
ástæðan fyrir því sé sú að Reeves
vildi geta tekið þátt í heimilislífi
Sala og verið viðstaddur fæðingu
barna þeirra. Sala heldur því einn-
ig fram að hún hafi þekkt leikarann
frá því hún var fjögurra ára gömul,
nema þá hét hann ekki Keanu Ree-
ves heldur Marty Spencer.
Hamskiptingur
HAMSKIPTINGUR Aðdáandi Keanu
Reeves heldur því fram að leikarinn sé
hamskiptingur og hafi eignast fjögur
börn með henni.
Leikkonan Catherine Zeta-
Jones frá Wales getur ekki
hugsað sér að vera í sambandi
með yngri mönnum. „Ég veit
að ungir menn eru meira til
í að leika sér og eru í betra
formi, það er enginn vafi á
því. En þeir eru einnig eigin-
gjarnari og uppteknari af sjálf-
um sér. Þess vegna áttu þeir
aldrei möguleika á því að fara
með mér á stefnumót,“ sagði
Zeta, sem giftist leikaranum
Michael Douglas árið 2000.
Hann er 65 ára en hún er fer-
tug, eða 25 árum yngri. „Ég
þarf á manni að halda sem er
viðkvæmur og góður í sér. Ein-
hvern sem ég get litið upp til
og treyst. En það þýðir ekki að
ég hafi áhuga á feitum, göml-
um mönnum.“
Zeta, sem á tvö börn með
Douglas, segir að hann sé
virkilega góðhjartaður og að
aldursmunurinn hafi aldrei
háð þeim. „Hann sendir mér
blóm og grætur þegar krakk-
arnir segja eitthvað sem snert-
ir strengi í honum. Við höfum
aldrei spáð í aldursmuninn.
Við treystum miklu frekar til-
finningum okkar. Þannig hefur
þetta verið og þannig ætti þetta
alltaf að vera,“ sagði Zeta.
Ungir menn eru eigingjarnir
HAMINGJUSÖM HJÓN Catherine
Zeta-Jones segir að eiginmaður
sinn, Michael Douglas, sé virkilega
góðhjartaður maður.
Námskeið
vorið 2010
Gítarnámskeið fyrir byrjendur
Fyrir alla aldurshópa / 50 mín. á viku í 12 vikur
Langar þig að læra á gítar? Viltu vera stjarnan í
partýinu eða geta spilað lag fyrir ástina þína?
Langar þig kannski bara að koma þér af stað
og stofna í kjölfarið rokkhljómsveit?
Einhvers staðar verða menn að byrja og þetta
námskeið er kjörinn byrjunarreitur. Kennt er í
4-6 manna hópum þar sem raðað er niður eftir
stöðu hvers og eins. Markmið námskeiðsins er
að nemendur læri undirstöðuatriði gítarleiks,
kunni öll helstu gítargripin og þar með öll
helstu undirstöðuatriði gítarleiks.
Gítarnámskeið fyrir lengra komna
Fyrir alla aldurshópa / 30 mín á viku í 12 vikur - Einkatímar
Þeir sem hafa verið áður hjá okkur
fá kennslu við hæfi miðað við framfarir.
Upptöku- og útsetninganámskeið
Tónvinnslunámskeiðið hefst í febrúar.
Farið verður í ProTools 101 og ProTools 110.
Prufuupptökugerð (demo) í Midi-umhverfi ProTools
og forritin Reason og Melodine kynnt.
Upptökur á frumsömdu lagi í hljóðveri með
hljóðfæraleikurum.
Masterclass í hljóðblöndun í ProTools
(EQ, Compressors, Reverb, Delay, Chorus, o.fl.)
Sponsored Digidesign School
Söngur og framkoma
14 ára og eldri / 1 klst. á viku í 10 vikur.
Tímarnir byggjast á aðferð sem Kristin Linklater setur
fram í bókinni “Freeing the Natural Voice”. Aðferðin
byggist meðal annars á að geta notað röddina án óþarfa
spennu og kvíða, styrkja röddina og stækka með tækni
sem styðst við öndun og líkamsliðkun. Einnig eru gefin
ráð um hvernig best er að velja sér lög við hæfi og lögð
áhersla á textameðferð.
Tvennir tónleikar verða á námskeiðinu.
Kennarar: Margrét Eir og Erna Hrönn
Söngur og framkoma - framhald
14 ára og eldri / 1 klst. á viku í 10 vikur.
Kennarar: Margrét Eir og Erna Hrönn
Erna Hrönn - Margrét Eir
Skráning er hafin á slóðinni
www.tonvinnsluskoli.is eða í síma 5349090
Þorvaldur Bjarni - Vignir Snær