Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þessar litlu könnur undir olíu og
edik eru í raun tengdar tvennum
minningum,“ byrjar Anna Þor-
björg frásögn sína um leið og hún
hefur á loft skrautleg ílát í ker-
amikkörfu. „Þegar við maðurinn
minn, Þórarinn Guðnason, vorum
ungir námsmenn í Gautaborg í Sví-
þjóð ákváðum við að senda börnin
heim til Íslands og skreppa sjálf í
vikuferð til Suður-Ítalíu. Við fórum
með danskri ferðaskrifstofu, flug-
um frá Kaupmannahöfn og vorum
svo fátæk að við sváfum í bílnum
á Kastrup. Þar með var tónninn
sleginn og þetta varð voða róm-
antísk ferð í eitt og allt. Við skoð-
uðum Pompei, Vesúvíus, hellana á
Capri og margt fleira eftirminni-
legt. Í litlu þorpunum á ströndinni
var allt fullt af keramiki og mér
fannst litirnir í því minna mig svo
á ömmu en við höfðum eytt öllum
peningnum í flugið og keyptum
ekkert.“
Þegar Anna Þorbjörg kom heim
til Íslands og hitti þar ömmu sína,
Önnu Þorbjörgu Kristjánsdótt-
ur, sagði hún henni frá ferðinni.
„Þá kom í ljós að hún hafði verið á
sömu slóðum með afa að minnsta
kosti þrjátíu árum fyrr. Hún var
mjög hneyksluð á því að ég hefði
ekki keypt neitt keramik, fannst
það merki um helst til mikla fátækt
að láta það ekki eftir sér. Þegar ég
hitti hana viku seinna gaf hún mér
þessar litlu könnur sem hún hafði
keypt þar. Sagði að það væri okkar
sameiginlega minning um þennan
stað. Ég hef þær alltaf inni í stofu
hjá mér þó mér finnist þær ekk-
ert gífurlega fallegar. Þær minna
mig annars vegar á þessa ferð með
manninum mínum og hin mörgu
litlu ævintýri sem við lentum í og
hins vegar á ömmu mína.“
Í lokin kveðst Anna Þorbjörg
vera eiginlega komin öfugu megin
við borðið í þessu viðtali. „Ég er
sjálf í söfnun á munum og er allt-
af að kreista fram sögurnar með,
annars hafa hlutirnir svo litla þýð-
ingu, jafnvel fyrir söfnin. Það eru
þær sem skipta máli. Svo þetta
kom vel á vondan.“
gun@frettabladid.is
Rómantíkin rifjast upp
Tvær litlar keramikkönnur minna Önnu Þorbjörgu Kristjánsdóttur, safnstjóra Læknaminjasafns Íslands, á
ævintýraferð til Ítalíu með eiginmanninum og líka á ömmuna sem bjargaði henni fyrir horn.
Anna Þorbjörg með keramikið frá ömmu sem indælar minningar eru tengdar við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FREDERIK ROIJÉ er hollenskur hönnuður
sem nýlega kynnti nýjar skálar á hönnunarsýningu
í Köln. Skálarnar eru allar mótaðar eftir kortum af
hinum ýmsu borgum í heiminum.
Gardinur
fataefni
gjafavara
‘
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Fyrst og fremst í heilsudýnum
3 mán.
vaxtalausar greiðslur Opið virkadaga frá 10.00-18.00 lau 12.00-16.00
ÚTSALA 20-50% afslátturaf völdum vörum
TÍU
ÞÚSUND
KRÓNUR
PENINGABAN
KI
ÍSLANDS
SAMKVÆMT S
VEFN & HEILS
U
JANÚAR 2005
E20052006
E20052006
Matthías Ásgei
rsson
TTT 10.000 kr. vöruúttekt
fylgir hverju heilsurúmi
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447