Fréttablaðið - 25.01.2010, Síða 41

Fréttablaðið - 25.01.2010, Síða 41
MÁNUDAGUR 25. janúar 2010 25 AUDDI OG ÞÚ Í BEINNI SENDU KVEÐJU TIL STRÁKANNA OKKAR Notaðu vefmyndavélina þína til að hvetja strákana okkar til dáða. Farðu inn á ibs.is til að senda þína kveðju og skoða kveðjur annarra. Þú getur líka sent textakveðju. Bestu kveðjurnar fá verðlaun. FYLGSTU MEÐ AUDDA Auddi verður í beinni með góðum gestum meðan á leikjum íslenska liðsins stendur. Fylgstu með Audda í beinni á ibs.is og sjáðu leikinn frá öðru sjónarhorni. FARÐU INN Á WWW.IBS.IS OG SKEMMTU ÞÉR VEL ICELANDAIR STYÐUR LANDSLIÐIÐ N1-deild kvenna: Fylkir – Valur 14-31 Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 6, Sunna Jónsdóttir 3, Hildur Harðardóttir 2, Laufey Guðmundsdóttir 1, Elín Helga Jónsdóttir 1, Tinna Soffía Traustadóttir 1. Mörk Vals: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 7, Íris Ásta Pétursdóttir 5, Kristín Guðmundsdóttir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 3, Karólína Gunnarsdóttir 3, Rebekka Skúladóttir 2, Arndís Erlingsdóttir 2, Katrín Andrésdóttir 1, Soffía Rut Gísladóttir 1, Berglind Íris Hansdóttir 1, Ágústa Edda Björns- dóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1. Haukar – Stjarnan 26-22 Mörk Hauka: Hanna Stefánsdóttir 7, Ramune Pekarskyte 7, Erna Þráinsdóttir 5, Nína Arn- finnsdóttir 3, Þórunn Friðriksdóttir 2, Sandra Sigurjónsdóttir 1, Ester Óskarsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Harpa Sig Eyjólfsdóttir 6, Alina Daniela Tamasan 5, Aðalheiður Hreinsdóttir 3, Þorgerður Atladóttir 3, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 2, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1. KA/Þór – Víkingur 30-19 Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 6, Inga Dís Sigurðardóttir 5, Unnur Ómarsdóttir 5, Katrín Vilhjálmsdóttir 4, Ásdís Sigurðardóttir 3, Emma Havin Sardardóttir 3, Kolbrún Einarsdóttr 2, Aldís Mánadóttir 1, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1. Mörk Víkings: Guðríður Ósk Jónsdóttir 6, Jóhanna Guðbjörnsdóttir 4, María Karlsdóttir 3, Fríða Jónsdóttir 2, Berglind Halldórsdóttir 1, Helga Hall- dórsdóttir 1, Brynhildur Bolladóttir 1, Alexandra Kristjánsdóttir 1. ÚRSLIT ENN Á TOPPNUM Anna Úrsula og félagar í Val eru óstöðvandi og unnu enn einn leikinn um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON IE-deild karla: Stjarnan-Snæfell 87-93 Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 22, Jovan Zdra- vevski 20, Kjartan Kjartansson 13, Fannar Helgas. 12, Magnús Helgas. 11, Guðjón Lárusson 9. Stig Snæfells: Sean Burton 22, Emil Jóhannsson 21, Hlynur Bæringsson 19, Sigurður Þorvalds. 18, Jón Jónsson 5, Sveinn Davíðs. 5, Páll Helgas. 3. Hamar-ÍR 102-81 Stig Hamars: Marvin Valdimarsson 29, Oddur Ólafsson 26, Andre Dabney 23, Svavar Pálsson 13, Ragnar Nathanaels. 10, Viðar Hafsteinsson 1. Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 19, Eiríkur Önundarson 17, Michael Jefferson 13, Ólafur Þórisson 10, Kristinn Jónasson 8, Nemanja Sovic 7, Steinar Arason 5, Elvar Guðmundsson 2. Fjölnir-Keflavík 84-103 Stig Fjölnis: Chris Smith 27, Tómas Tómasson 19, Ægir Steinarsson 13, Sindri Kárason 7, Magni Hafsteinsson 7, Sverrir Karlsson 6, Arnþór Guð- mundsson 3, Jón Sverrisson 2. Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 25, Draelon Burns 17, Þröstur Jóhannsson 17, Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Sigurður Þorsteinsson 8, Jón Nordal Hafsteinsson 8, Elentínus Margeirsson 5, Sverrir Sverrisson 4, Gunnar Stefánsson 2. EM í handbolta: Frakkland-Þýskaland 24-22 Spánn-Pólland 26-32 Slóvenía-Tékkland 35-37 ÚRSLIT HANDBOLTI Frakkar og Pólverjar standa ansi vel að vígi í milliriðli 2 á EM eftir sigra í gær. Frakkar lögðu Þjóðverja og Pólverjar skelltu Spánverjum í afar mikilvægum leik. Fyrir vikið eru Frakkar og Pólverjar í efstu sætum riðilsins með fimm stig. Spánverjar eru aftur á móti með þrjú stig. Tékkar eru með tvö stig eins og Slóvenía eftir að hafa unnið afar óvæntan sigur á spútnikliði Slóveníu í gær. Þjóð- verjar hafa eitt stig. - hbg Milliriðill 2 á EM í handbolta: Frakkar og Pólverjar efstir KÖRFUBOLTI „Þetta var sætaskipta- leikur sem við náðum að vinna og við erum virkilega stoltir af því,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálf- ari Snæfells, eftir sigur liðsins á Stjörnunni í Garðabænum í gær. Leikurinn endaði 87-93 og var virkilega jafn og spennandi eins og búist var við. „Það er ekki auðvelt að spila við Stjörnuna á þeirra heimavelli og ég er mjög sáttur við að landa sigri, sérstaklega eftir svona rússí- banaleik. Þeir þrír sem fyrirfram eru okkar lykilmenn voru að skila góðu framlagi,“ sagði Ingi og var þar að tala um Hlyn Bæringsson, Sean Burton og Sigurð Þorvalds- son. „Að auki sýndi Emil Þór (Jóhann- esson) hversu megnugur hann er og Sveinn Arnar (Davíðsson) kom mjög flottur inn. Ég er rosalega ánægður með hvernig þeir stigu upp.“ Stjörnumenn voru betri á fyrstu andartökum leiksins og náðu fljót- lega ágætri forystu. Snæfellingar fundu betri takt í leik sinn hægt og rólega en voru tveimur stigum undir eftir fyrsta leikhluta 23-21. Þeir komust yfir í fyrsta sinn þegar rúm mínúta var eftir af öðrum leikhluta og fóru til bún- ingsherbergja með þriggja stiga forystu, staðan 43-46 í hálfleik. Hart var barist í þriðja leikhlut- anum og liðin skiptust á um að hafa forystuna. Heimamenn leiddu með sjö stigum fyrir lokafjórðunginn. Á lokasprettinum reyndust Snæ- fellingar hins vegar sterkari og tilraunir Stjörnunnar til að jafna í lokin gengu ekki. Spennan var mikil en gestirnir glöddust mikið þegar leiktíminn rann út. Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörn- unnar, var sammála blaðamanni um að spilamennska liðsins hafi verið of sveiflukennd. „Við spil- uðum bara ekki nægilega vel og gátum oft gert betur. Það er í raun bara furðulegt að við höfum verið inni í leiknum allan tímann miðað við hvernig við spiluðum,“ sagði Teitur en Garðbæingar hafa nú tapað tveimur leikjum í röð. „Við erum frekar þunnir núna og ekki nægilega margir sem hafa afrekað eitthvað inni á vellinum. Það er að bíta á. Við megum ekki við neinum meiðslum. Þetta er mjög erfitt en samt engin afsök- un fyrir því að við spiluðum ekki betur í dag.“ elvargeir@frettabladid.is Rússíbanaleikur í Ásgarði Snæfell fór góða ferð í Garðabæinn. Þjálfari Stjörnunnar segir furðulegt að sín- ir menn hafi verið inn í leiknum allan tímann miðað við spilamennskuna. BARÁTTA Hlynur Bæringsson og Jovan Zdravevski berjast hér um boltann í Ásgarði í gær. Það var hart tekist á eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.