Samtíðin - 01.04.1965, Side 35
SAMTÍÐIN
31
Þeir VITRU sögöu Nýjar bækur f
HALLDÓR LAXNESS: „Heimsfrægð nú
á dögum er komin undir þunga auglýs-
mgarinnar, enda er augulýsingin hið eina
8em stórþjóð getur lagt eftirlætisbörnum
sínum til umfram smáþjóðir. En sá sem
er listamaður af innri köllun, sannfær-
Jngu og samvizku, fyrir honum er sá stað-
Ur beztur, þar sem forsjónin hefur sett
hann. Hann er óháður auglýsingu og
S®ti ekki orðið meiri meistari, þó hann
yæri af öðru þjóðerni. Sagan sýnir, að
listamenn unnu bezt meðan þeir voru
°þekktir af heiminum og vanmetnir af
^ágrenni sínu. Nöfn hinna ágætustu meist-
ara hófust ekki til stjarnanna fyrr en
löngu eftir að bein þeirra voru orðin að
áufti jafnt og hinna sem dæmdu þá úr
^ik. Sú heimsfrægð sem auglýsingin skap-
ar í dag er hins vegar oft gleymd á morg-
un af því tíminn er vitrari listdómari en
au&lýsingakerfið. — Listaverki liggur ekk-
ert á.“
ELBERT HUBBARD: „Takið lífið ekki
of hátíðlega. Þér sleppið hvort sem
er ekki lifandi frá því.“
BERNARD SHAW: „Kvæntur maður
verður háður hjónabandsvenjunum eins
sjómaðurinn veðrabrigðunum á haf-
inu.“
JONATHAN SWIFT: „Peningar eru
eins og áburður. Það verður að dreifa
^eim, til þess að þeir komi að gagni.“
HELENA RUBINSTEIN: „Það, sem
^erir nútímakonurnar fagrar í útliti, er,
þær sýnast vera óháðar aldrinum.“
SAMUEL JOHNSON: „Frægðarljómi
Jjverrar þjóðar stafar að mestu frá rit-
a<>fundum hennar.“
. PETER USTINOV: „Það yrði lítið hleg-
í heiminum, ef snobbisminn liði undir
lok.“
Þorbjörg Árnadóttir: Signý hjúkrunarnemi i
framandi landi. Skáldsaga. 168 bls., íb. kr.
190.00.
Guðrún A. Jónsdóttir: Taminn til kosta. Skáld-
saga. Fyrri og síðari liluti. 298 bls., ib. kr.
240.00.
Jakob Jónasson: Myllusteinninn. Skáldsaga. 223
bls., ib. kr. 240.00.
Cyril Scott: Fullnuminn vestan hafs. Bók um
andleg mál og dulræna speki. Steinunn S.
Briem þýddi. 203 bls., íb. kr. 260.00.
Sigurður Jónsson frá Brún: Stafnsættirnar. Bók
um íslenzka góðliesta. Með myndum. 151 bls.,
íb. kr. 180.00.
Hendrik Ottósson: Gvendur Jóns og draugarnir
á Duus-bryggju. Prakkarasögur úr Vestur-
bænum. 101 bls., ób. kr. 85.00.
Bergsveinn Skúlason: Um eyjar og annes. 1.
bindi. Ferðaþættir og minningar frá Breiða-
firði. Með myndum. 274 bls., íb. kr. 280.00.
Esther Miller: Hárlokkurinn. Skáldsaga. Jón
Levi þýddi. 344 bls., íb. kr. 275.00.
Thea Schröck-Beck: Fósturdóttirin. Skáldsaga.
Lilja Bjarnadóttir Nissen þýddi. 230 bls., ib.
kr. 185.00.
Ingimar Óskarsson: Lífið i kringum okkur.
Þættir, sem fjalla um lifnaðarhætti ýmissa
dýra um víða veröld, bæði þeirra, er á landi
lifa og í sjó. Með myndum. 224 bls., íb. kr.
185.00.
Ingibjörg Jónsdóttir: Systurnar. Skáldsaga. 140
bls., íb. kr. 185.00.
Jón Björnsson: Jómfrú Þórdís. Skáldsaga byggð
á sögulegum beimildum um frægt sakamál frá
17. öld. 334 bls., íb. kr. 370.00.
Denise Robins: Réttur ástarinnar. Skáldsaga.
Skúli Jensson þýddi. 176 bls., íb. kr. 235.00.
Þorsteinn frá Hamri: Lágnætti á Kaldadal. Ljóð.
72 bls., íb. kr. 230.00.
Jakobína Sigurðardóttir: Púnktur á skökkum
stað. Smásögur. 137 bls., ib. kr. 260.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk-
urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun Isafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.