Samtíðin - 01.07.1966, Blaðsíða 13

Samtíðin - 01.07.1966, Blaðsíða 13
SAMTÍÐIN 9 „Samanborið við þetta nýja gas, er necrogasið „ekki eitraðra en næturþoka, yðar hágöfgi" BAHIDAMABUR DAUDAIVS Niðurl. SAREK mælti: „Ó, verið þér hvergi smeykur, Feuerbauch. Sjáið þér nú til...“ Hann lét flösku detta á gólfið. Hún hopp- aði eins og holti, en lá síðan kyrr. Sarek sparkaði henni til hliðar. »Svo framarlega sem ekkert loft kcmst að henni, er öllu óhætt,“ sagði hann. „Þér gætuð jafnvel látið smábarn totta hana sem snuð ...“ Svona, komið þér nú ...“ »Eg vil fara héðan,“ sagði Feuerbaueh. »0g ég er að segja yður að koma!“ anz- aði Sarek. Peuerbauch leit um öxl. Hinar geysi- aiiklii rennihurðir höfðu lukzt sjálfkrafa. ^tann langaði mest ti'l að kasta upp. Sarek gaf honum aftur merki. Hann hljrddi því. ^ðrar dyr opnuðust. »Gasdeildin,“ tilkynnti Sarek. Herbergið var lýst ósýnilegum, hláum lömpum. Þar var hátt undir loft, en her- bergið var langt, og þvi var skipt með 'ajallhvitum glerbekkjum, þar sem grímu- öúnir menn stóðu grafkyrrir og þögulir °g einblíndu ofan í flöskur. Fyrir ofan bá héngu hrollvekjandi hvirfingar af til- raunaglösum. »Enda þótt ótrúlegt megi virðast, þá .vllnna allir þessir menn lisl tortímingar- 1]mar upp á sína tíu fingur,“ mælti Sarek. "Litið þér nú á,“ hætli hann við. Síðan gaf hann hendingu. Liiin maður gekk fram í hlátt ljósið — jýergvaxinn maður með skóladrengsand- • • Gegnum glerin i hlifðargleraugum clns blikuðu stór, hlá og barnsleg augu. „Þetta er Necros,“ mælti Sarek, „sá sem fann upp necrogasið, snjallasti vísinda- maðurinn minn.“ Necros hneigði sig. „Þakka yður fyrir, yðar hágöfgi,“ sagði hann skrækri röddu, sem livein i hljóðnema Feuerhauchs, eins og ungur hani væri að gala. „Og hvernig reynist nýja gasið, Necros?“ „Alveg prýðilega, yðar liágöfgi.“ „Er það nærri tilbúið til notkunar?“ „Já, yðar liágöfgi. Það er þegar tilbú- ið. Ég legg ti'l, að við köllum það: Lokaorð Sareks.“ „En af hverju hafið þér ekki sagt mér þetta fyrr?“ „Eg lauk verkinu i dag, yðar liágöfgi. Og auk þess ...“ „Er það gott?“ „Gott, yðar hágöfgi, það er hryllilegt.“ „Fint er ...“ „Samanborið við þetta nýja gas, er necrogasið ekki eitraðra en næturþoka, yðar hágöfgi." „Er það satt?“ mælti Sarek og 'hló við. „Þetta endar bara aldrei. Og hvaða verk- anir hefur það?“ „Yðar hágöfgi. Ég prófaði það á mús, naggrís, simpansa og — af vangá — á manni.“ „Hvaða manni?“ „Honum Mischa, yðar hágöfgi. Aum- ingja Misclia.“ „Og hvað skeði?“ „Yðar hágöfgi. Verkanir gassins eru sem hér segir: Það ræðst á heilastöðvarn- ar. Fyrir músinni fór þannig, að þegar hún

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.