Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 18

Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 18
MARKAÐURINN 3. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R Ríkisskuldabréfasjóðir gáfu einna hæsta ávöxtun meðal innlendra verðbréfasjóða á síðasta ári og var hún á bilinu 14,4 til 17 prósent. Af þeim sjóðum sem fjárfesta eingöngu í ríkistryggðum skulda- bréfum skilaði Skuldabréfasjóð- urinn hjá BYR hæstri ávöxtun, eða 17,01 prósent, í langtíma rík- isskuldabréfum, að því er fram kemur á upplýsingaveitunni sjodir.is. Sá sjóður er mun minni en sjóðir stóru bankanna þriggja. Af þeim skilaði Sjóður 7 hjá Ís- landsbanka hæstu ávöxtuninni eða 16,35 prósent. Af þeim sjóð- um sem fjárfesta í ríkistryggðum skuldabréfum til meðallangs tíma náði Sjóður 5 bestri ávöxtun, eða 16 prósent. Ríkisverðbréfasjóð- ur millilangur hjá Arion-banka skilaði 14,54 prósenta ávöxtun og Sparibréf meðallöng hjá Lands- bankanum 14,49 prósent. Lágmarkskaup á verðtryggðum ríkisskuldabréfum eru ein millj- ón króna. Margir einstaklingar sem vilja fjárfesta í ríkistryggð- um skuldabréfum eru því meðal viðskiptavina þessara sjóða. - pg Skuldabréfasjóðir skiluðu mestu sjóður ávöxtun 2009 BYR skuldabréfasjóður 17,01% ÍSB: Sjóður 7 16,35% ÍSB: Sjóður 5 15,98% LAIS sparibréf 15,94% Arion: Ríkisverðbr.sj.- langur 15,53% Arion Ríkisverðbr.sj. -millilangur 14,54% LAIS sparibréf meðallöng 14,49% Heimild: BYR Á V Ö X T U N R Í K I S B R É F A Óli Kristján Ármannsson skrifar „Sýningin var vel heppnuð og er orðin nokkuð stór, en þarna voru um 120 þúsund manns,“ segir Björn Gunnar Birgisson, yfirvörustjóri PC tölva og íhluta hjá Nýherja. Hann sótti heim CES-raftækjasýning- una sem haldin er í Las Vegas í Bandaríkjunum í janúar ár hvert. Þar keppast framleiðendur um að kynna „tækni framtíðarinnar“. Með því markverðasta sem fyrir augu bar þótti Birni Gunnari vera hversu langt er komin tækni þar sem tæki notast við „þráðlaust rafmagn“. Tæknin er skyld því sem fólk þekkir í spanhellum nýlegra eldavéla, en í henni felst að lítil borð geta leitt raf- magn yfir í raftæki sem hafa á að skipa búnaði til að taka við því. Þannig kunni hleðslutæki fyrir far- síma að heyra sögunni til ef hægt er að leggja frá sér farsíma á borð, eða mælaborð bílsins, þar sem hann dregur í sig hleðsl- una. Rafmagnsflutningurinn er líka nægur til þess að keyra raf- tæki beint án þess að þau hlaði einhverja rafhlöðu. „Þarna stóð maður og blandaði drykki í stríð- um straumi í „blender“ sem ekki þurfti í neina snúru,“ segir Björn Gunnar. „Það virðast lítil tak- mörk í þessum orkuflutningi og er alveg rosalega spennandi.“ Þá var mikið púður lagt í þrívíddarsjónvörp á sýn- ingunni og nær allir framleiðendur að kynna nýja tækni á því sviði. „Menn spá því að árið 2012 verði nánast helmingur allra sjónvarpstækja þrívíddar- tæki,“ segir Björn Gunnar. Önnur ný tækni sem er að ryðja sér til rúms eru svo rafbækurnar, en Björn Gunnar segir að Amaz- on.com hafi selt fleiri slíkar fyrir síðustu jól en hefð- bundnar bækur. Hér heima eigi menn í viðræðum við tollinn um hvernig eigi að flokka gripinn. „Þeir vilja tolla þetta með upptökutækjum sem kallar á 35 prósenta vörugjöld og verðleggur þetta beint út af markaðnum,“ segir hann og telur eðlilegra að raf- bækurnar fari í sama flokk og aðrar tölvur. „Annars var maður líka mikið að skoða það sem birgir okkar, Lenovo, var að kynna þarna,“ segir Björn og kvað hafa verið skemmtilegt að fyrirtæk- ið hafi fengið verðlaun á sýningunni fyrir að vera með flottustu fartölvurnar. Í nýrri umfjöllun breska dagblaðsins Daily Telegraph kemur fram að í Bretlandi sé ráðgert að sala á þrívíddarsjónvarpstækjum hefjist þegar í apríl á þessu ári. Verð á tækjunum er áætlað að verði tvö til þrjú þúsund pund, eða á milli 400 og 600 þúsund íslenskar krónur. CES Í LAS VEGAS Annað væri ekki við hæfi en að Elvis léti sjá sig á CES-raftækjasýningunni sem haldin er í Las Vegas í Bandaríkjunum ár hvert. Hér sýnir eftirherma nýja tækni í vídeó- tökuvélum sem stillir af myndina og dregur úr titringi. NORDICPHOTOS/AFP BJÖRN GUNNAR BIRGISSON Þráðlaust rafmagn og þrívíddarsjónvarp Einn helsti viðburður upplýsingatækninnar er árviss raf- tækjasýning í Las Vegas. Þrívíddarsjónvarp var áberandi og sagt ryðja sér hratt til rúms. Sömuleiðis þráðlaust rafmagn. B A N K A B Ó K I N Samanburður á vaxtatöflum bankanna Miðað er við 250.000 króna innlegg. 3% viðskiptagjald er skuldfært mánaðarlega fyrirfram af heimild yfirdráttarlána. *Markaðsreikningur er bundinn í tíu daga. **Vaxtareikningur er bundinn í sjö daga. ***Af Netreikningi er tekið 0,25% úttektargjald. ****MP 3 er bundinn í þrjá mánuði. Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja Markaðsreikningur 4,80% * 15,35% 15% Vaxtareikningur 5,80% ** 14% 14% Vaxtasproti 5,85% 14,25% 14% Netreikningur 6,0% *** 16,40% 15,75% MP 3 12,55 til 6,65% **** 14,05% 14,05% Samdráttur í sölu vegna innköllunar á bílum vegna galla í bensíngjöf nýrra Toyota-bíla kann að verða meiri en vegna fyrri innkallana, að sögn fram- kvæmdastjóra Toyota Motor Corp., Shinichi Sasaki. Hann segir þetta vera vegna þess að gallinn sé al- varlegri en áður hafi þekkst hjá fyrirtækinu. Sasaki, sem hefur umsjón með gæðastjórnun hjá bílaframleiðandanum, viðurkennir, að sögn frétta- stofu AP, að fyrirtækið hafi verið seint til að bregð- ast við vandanum sem fólst í gallaðri bensíngjöf sumra bíla. Gallinn lýsir sér í því að bensíngjöfin getur fest í fullri inngjöf. Hann segir enn ekki vitað hver áhrif innköllunar- innar verði, en nefnir að algengt sé að sala falli um fimmtung fyrsta mánuðinn eftir innköllun, en jafni sig svo smám saman. Samkvæmt tölum sem Toyota birti í gær nær innköllunin til 4,45 milljóna bíla um heim allan, 2,48 milljónir í Bandaríkjunum, 1,71 milljón í Evrópu, 80 þúsund bílar í Kína og 180 þúsund á öðrum svæðum. - óká Toyota reiknar með samdrætti TOYOTA-BÍLAR Fjárfestar virtust fagna aukinni upplýsingagjöf Toyota vegna galla og innköllunar bíla en í gær hækkuðu bréf félagsins um 4,5 prósent í kauphöllinni í Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Öll önnur starfsemi en söfnun fjármuna hefur verið stöðvuð hjá Wik- iLeaks, vefnum sem sérhæfir sig í að birta leyndar upplýsingar sem fólk kemur til hans frá fyrirtækjum og op- inberum stofnunum. Á vefnum kemur fram að reynt sé að tryggja það fjármagn sem þurfi til að halda vefnum gangandi út árið. Fram kemur að rekstrarkostnaður ársins, að meðtöldum launagreiðslum, nemi 600 þúsund dölum, eða rúmum 76 milljónum króna. Hingað til hafi hins vegar ekki safnast nema 130 þúsund dalir, eða 16,5 milljónir króna. WikiLeaks komst í nokkuð almenna um- ræðu hér heima þegar þar birtust upplýsing- ar úr lánabók Kaup- þings og önnur gögn. Julian Assange, stofn- andi vefjarins, sótti meðal annars land- ið heim í byrjun nóv- ember síðastliðinn til að kynna starfsemi hans. Í viðtali Frétta- blaðsins við hann kom fram að vefurinn reiði sig að stórum hluta á frjáls framlög, en á forsíðu WikiLeaks segir að starf- semin sé fjármögnuð af „fólki sem berst fyrir mannréttindum, rann- sóknarblaðamönnum, tæknifólki og almenningi“. - óká WikiLeaks enn lokað Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum VALITOR um hvaða lausnir henta þér best. Við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi og skjóta þjónustu. VISA og Mastercard færsluhirðing! FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is JULIAN ASSANGE

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.