Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 32

Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 32
187 1 13milljarðar er heildarvelta á íslenska markaðnum í janúar. er hve mörg ár sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur starfað. milljarðar króna voru fluttir til landsins í gegnum félagið Aserta, sem nú sætir lögreglurannsókn vegna gruns um gjaldeyrissvik. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Flutningar standa nú yfir hjá netleikjafyrirtækinu CCP úti á Granda. Fyrirtækið hefur fjölg- að starfsfólki verulega upp á síðkastið og þurft að dreifa úr sér. CCP var með efstu hæðirnar í Grandagarði 8 en hefur smám saman verið að taka þær neðri yfir. Teiknimyndafyrirtækið CAOZ og tengd fyrirtæki eru um þessar mundir að flytja út, ásamt almannatengslafyrirtæk- inu APPR, og mun komið undir annað þak. Sjóminjasafnið og heildverslunin Forval eru enn í húsinu og þykir spurning hve- nær þau hverfa á braut. Óvíst er hvort húsið dugi CCP, sem tútnar út sem aldrei fyrr. Ef allt þrýtur er aldrei að vita nema fyr- irtækið taki yfir varðskipið Óðin, sem liggur við bryggju h a n d - an við húsið. Heimsyfirráð CCP Og enn um CCP. Húsnæði fyrir- tækisins þykir flott og fönkí, eins og sagt er. Gæði húsgagnanna sem verið er að flytja inn á neðri hæðir Grandagarðsins, sem fyrirtækið er að taka yfir, þykja í dýrari kantinum og benda til að kreppa sé eitthvað sem ekki hrjái CCP-liða um þessar mund- ir. Þótt fyrirtækið blómstri nú sem aldrei fyrr er hins vegar langt í frá að menn þekki ekki kreppu hjá CCP. Eins og marg- ir muna lögðu elstu starfsmenn fyrirtækisins mikið á sig á fyrstu starfsárum þess og voru sumir í tveimur til þremur störf- um til að geta búið til netleikinn EVE Online á lúsarlaunum – ef nokkrum – á næturnar. Engin kreppa Stuldur á upplýsingum er varða Milestone og tengda aðila og birtust í DV vöktu heilmikla athygli í byrjun vikunnar. Stuldurinn virtist í fyrstu ævin- týralegur, jafnvel jaðra við að þjófarnir hafi haft snert af ofurmannlegri tækniþekkingu Lisbeths Salander í Millennium- þríleik Stiegs Larsson um ævin- týri blaðamannsins Mikaels Blomkvist. Þegar nánar var að gáð reyndist svo ekki raunin. Í íslenska tilvikinu virðist sem um hreint og klárt innbrot að ræða auk þess að Blomkvist birti aldrei gögn, sem gætu hugsan- lega spillt lög- reglurannsókn. Blomkvist

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.