Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 42
26 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Milliríkjadómarinn Kristinn Jakobsson er staddur þessa dagana á
Möltu þar sem nú stendur yfir ráðstefna fyrir Elite/Premier dómara
evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA. Ráðstefnan er nú haldin í
átjánda skiptið en þar hittast nú allir fremstu dómarar Evrópu og
fara yfir stöðu mála fyrir lokasprettinn í Evrópudeild UEFA og
Meistaradeild Evrópu.
„Þetta snýst fyrst og fremst um að undirbúa þessa
dómara sem eru í efsta flokki fyrir komandi átök í 32 liða
úrslitum Evrópudeildar UEFA og 16 liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu. Þetta eru annars vegar fyrirlestrar og
fundir og hins vegar æfingar, mælingar og meldingar,“
segir Kristinn.
Þegar er búið að raða dómurum niður á komandi leik-
daga í bæði Evrópudeild UEFA og Meistaradeild Evrópu en
ekkert er uppljóstrað um hvaða leiki hver dómari dæmir fyrr
en aðeins nokkrir dagar eru í leik. Kristinn er búinn að fá
það verkefni að dæma seinni leik í 32 liða úrslitum Evrópu-
deildar UEFA sem fram fer hinn 25. febrúar næstkomandi og
er hann að vonum ánægður með það.
„Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni og þetta
er í raun frábært framhald á því sem maður hefur verið að
gera. Maður stefnir ávallt á sigur í hverjum leik og bíður svo
og vonar eftir því að fá fleiri skemmtileg verkefni. Það er líka
gaman að það verður keyrt áfram á þessu fimm manna
íslenska teymi sem við höfum myndað í þessari keppni,“
segir Kristinn og á þar við tilraunaverkefni sem UEFA er að
prófa með að hafa fimm manna dómarateymi á leikjum,
það er að segja aðaldómara, auk tveggja aðstoðardómara
og svo tveggja aukaaðstoðardómura sem staðsettir
eru fyrir aftan mörkin til þess að auka enn meira á
gæði dómgæslunnar.
„Ég held að svona atvik eins og þegar Thierry
Henry lagði upp sigurmark Frakka í umspilsleiknum gegn
Írum á dögunum með ólögmætum hætti verði til þess
að fá menn til þess að spyrja sig hvað hefði gerst hefðu
aukaaugu verið staðsett á bak við mörkin,“ segir Kristinn að
lokum.
KRISTINN JAKOBSSON: ER STADDUR Á MÖLTU TIL AÐ UNDIRBÚA SIG FYRIR KOMANDI ÁTÖK Í EVRÓPUDEILD UEFA
Maður stefnir alltaf á sigur í hverjum einasta leik
FÓTBOLTI John Terry mun komast
að því á föstudaginn hvort hann
verði áfram fyrirliði enska lands-
liðsins.
Þá mun landsliðsþjálfarinn,
Fabio Capello, funda með Terry
um kynlífshneykslið sem mikið
hefur verið fjallað um síðustu
daga.
Capello hefur sagt að hann viti
allt um málið en ætli ekki að tjá
sig fyrr en hann hefur rætt við
Terry. Leikmanninum hefur að
sama skapi verið ráðlagt að tjá
sig ekki við fjölmiðla fyrr en
fundi hans með Capello lýkur.
Sumir fjölmiðlar greindu síðan
frá því í gær að Terry myndi fá
frí hjá Chelsea svo hann gæti
farið til Dubai og reynt að bjarga
hjónabandi sínu. Þangað flúði
eiginkona hans er upp komst um
framhjáhald Terrys. - hbg
John Terry í stórræðum:
Terry sagt að
tjá sig ekki
> Lítið frí hjá Björgvini Páli
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fær
ekki mikinn tíma til þess að jafna sig eftir átökin á
EM. Hann kom heim með landsliðinu á
mánudag, hélt utan til Sviss í gær og mun
svo í kvöld spila með félagi sínu, Kadet-
ten Schaffhausen, í átta liða
úrslitum bikarkeppninnar gegn
Amicitia Zurich sem Kári Kristján
Kristjánsson spilar með. „Þetta er
svolítið lítil hvíld og ég er eiginlega
ekki enn búinn að fatta að það sé leikur
hjá mér strax,“ sagði Björgvin Páll við
Fréttablaðið í gær.
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR 2010
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands kynnti í gær hvaða kepp-
endur munu verja heiður Íslands
á vetrarólympíuleikunum í
Vancouver í þessum mánuði. Leik-
arnir eru frá 12. til 28. febrúar.
Fjórir keppendur fara frá Íslandi
að þessu sinni. Það eru þau Björg-
vin Björgvinsson frá Dalvík, Stef-
án Jón Sigurgeirsson frá Húsavík,
Árni Þorvaldsson úr Ármanni og
Íris Guðmundsdóttir frá Akureyri.
Öll taka þau þátt í alpagreinum.
Ísland sendir einnig einn kepp-
anda á Ólympíumót fatlaðra en það
er hún Erna Friðriksdóttir sem
keppir einnig í alpagreinum.
Tveir þjálfarar, þeir Pavel
Cebulj og Primoz Skerbinek, fara
með liðinu. Mundína Ásdís Krist-
insdóttir er sjúkraþjálfari hópsins
og Guðmundur Jakobsson flokks-
stjóri.
Andri Stefánsson er aðalfarar-
stjóri og þau Ólafur Rafnsson,
forseti ÍSÍ, og Líney Rut Halldórs-
dóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ,
verða einnig með í för. Þetta er í
allt ellefu manna hópur.
Björgvin er okkar reyndasti
skíðakappi en þeir Stefán Jón og
Árni hafa verið á uppleið.
Mótið stendur yfir eins og áður
segir í sautján daga en alls verða
5.500 manns á leikunum ef taldir
eru keppendur og aðstoðarfólk.
Áttatíu lönd senda fulltrúa til
þátttöku að þessu sinni en mikill
áhugi er hjá fjölmiðlum á leikun-
um og er búist við 10 þúsund full-
trúum fjölmiðla í Vancouver.
Rúv mun sýna beint frá leikun-
um en búist er við því að allt að
3 milljarðar muni fylgjast með
útsendingum frá leikunum að
þessu sinni.
- hbg
Ólympíulandslið Íslands fyrir vetrarólympíuleikana í Vancouver var kynnt í gær:
Fjórir keppendur frá Íslandi til Vancouver
Á LEIÐ TIL VANCOUVER Þeir Stefán Jón Sigurgeirsson, Árni Þorvaldsson og Björgvin
Björgvinsson halda á næstu dögum til Kanada þar sem þeir munu taka þátt í vetrar-
ólympíuleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN